Fréttablaðið - 10.10.2019, Qupperneq 9
Takmark okkar er
að koma í veg fyrir
skelfingarástand við suður-
landamæri okkar og að
koma á friði á svæðinu.
Racip Erdogan, forseti Tyrklands.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · BVA Egilsstöðum www.skoda.is
ŠKODA
OCTAVIA
G-TEC
SPARNEYTNIN
OPNAR ÞÉR
NÝJAR LEIÐIR
Škoda Octavia hefur verið einn ástsælasti fjölskyldubíllinn hjá íslensku þjóðinni
í áratugi. Aksturseiginleikarnir, þægindin, rýmið og sparneytnin hafa einkennt
Octaviuna allar götur frá því hún kom á markað. Skiptu yfir í Octaviu G-Tec;
hagkvæmasta vistvæna kostinn fyrir fjölskylduna og fyrirtækin.
Hlökkum til að sjá þig!
Octavia G-Tec – vinsælasti metanbíllinn 2018.
5
ár
a
áb
yr
gð
fy
lg
ir
fó
lk
sb
ílu
m
H
EK
LU
a
ð
up
pf
yl
ltu
m
á
kv
æ
ðu
m
á
by
rg
ða
rs
ki
lm
ál
a.
Þ
á
er
a
ð
fin
na
á
w
w
w
.h
ek
la
.is
/a
by
rg
d
ŠKODA
OCTAVIA
60 ÁRA 1 9 5 9 - 2 0 1 9
Verð frá 3.990.000 kr.
Octavia G-Tec
Combi / 1.5 TGI / 130 Hö / Sjálfsk. METAN
BRETLAND Lögreglan fjarlægði með
valdi mæður sem tóku þátt í fjölda-
mótmælum í miðborg Lundúna í
gær. Um er að ræða tveggja vikna
mótmæli sem kennd eru við útrým-
ingu mannkyns þar sem mæður með
börn á brjósti loka götum nálægt
þinghúsinu til að mótmæla aðgerða-
leysi stjórnvalda í loftslagsmálum.
Alls voru 600 manns handteknir í
gær á þriðja degi mótmælanna.
Boris Johnson forsætisráðherra
hæddist að mótmælendunum og
kallaði þá „ósamvinnuþýða and-
ófsmenn“. Athygli vakti að Stanley
Johnson, faðir forsætisráðherra,
mætti á mótmælin og túlkaði orð
sonar síns sem gullhamra.
Lögreglan í Lundúnum hefur
kallað á liðsauka og hafa hundruð
lögreglumanna úr öllum umdæm-
um á Englandi og Wales sent menn
til höfuðborgarinnar vegna mót-
mælanna. – ab
Mæður bornar á brott
Móðir borin á brott í gær í fjöldamótmælum í miðborg Lund-
úna. Alls voru 600 manns handteknir. NORDICPHOTOS/GETTY
SÝRLAND Tyrkir hófu árás á Rojava,
sjálfstjórnarhérað Kúrda í norð-
austurhluta Sýrlands, í gær, aðgerð
sem þeir kalla Friðarvor. Racip
Erdogan Tyrklandsforseti tilkynnti
árásina á Twitter-síðu sinni og jafn-
framt að sýrlenski stjórnarherinn
tæki þátt í henni.
„Takmark okkar er að koma í veg
fyrir skelfingarástand við suður-
landamæri okkar og að koma á friði
á svæðinu,“ sagði í yfirlýsingunni.
Árásin kemur í beinu framhaldi
af brotthvarfi bandaríska hersins og
þrátt fyrir hótanir Donalds Trump
Bandaríkjaforseta um að hún muni
hafa efnahagslegar og pólitískar
afleiðingar. „Bandaríkin styðja ekki
þessa árás og hafa tjáð Tyrklandi á
skýran máta að hún sé vond hug-
mynd,“ sagði í yfirlýsingu Trumps.
Loftárásir og árásir stórskota-
liðs hófust um miðjan dag í gær,
skömmu eftir yfirlýsingu Erdogans.
Mustafa Bali, talsmaður hers Kúrda
(SDF), sagði að loftárásunum væri
beint að almennum borgurum og
heimilum. Einnig að mikil örvænt-
ing og glundroði væri á svæðinu.
Hundruð almennra borgara f lúðu
frá landamærasvæðunum skömmu
eftir að innrásin hófst. Borgin Ras
Al-Ain við landamærin er sá staður
þar sem þungi loftárásanna hefur
verið mestur, en þar búa um 30
þúsund manns.
Tyrkir hafa einnig beint sprengj-
um sínum að hernaðarmannvirkj-
um og verksmiðjum.
Til að bregðast við hefur land-
stjórn Rojava beðið alla borgara að
grípa til vopna og verja svæðið fyrir
innrásarliðinu, það væri siðferðis-
leg skylda þeirra. Jafnframt var því
lýst yfir að baráttan gegn hryðju-
verkasamtökunum ISIS yrði sett
á ís, en Kúrdar hafa verið ötulustu
stuðningsmenn vestrænna þjóða í
að kveða niður samtökin.
Guðlaugur Þór Þórðarson utan-
ríkisráðherra lýsti yfir áhyggjum af
ástandinu og að það gæti orðið til
þess að blása lífi í ISIS. „Við þurfum
vopnahlé í Sýrlandi, ekki frekari
stigmögnun of beldis,“ sagði hann.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
fundar í dag vegna innrásarinnar og
á föstudag mun Jens Stoltenberg,
framkvæmdastjóri NATO, funda
með Erdogan.
kristinnhaukur@frettabladid.is
Tyrkir ráðast
gegn Kúrdum
Innrás Tyrklandshers í héröð Kúrda í Sýrlandi
hófst í gær eftir yfirlýsingu Erdogans forseta.
Sprengjum rigndi yfir borgir við landamærin.
Tyrkneskir hermenn við landamæri Sýrlands bíða. NORDICPHOTOS/GETTY
+PLÚS
1 0 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R8