Fréttablaðið - 10.10.2019, Side 23

Fréttablaðið - 10.10.2019, Side 23
Þorvaldur Gylfason Í DAG Osló – Margt virðist nú benda til að Trump Bandaríkjafor­seti og nokkrir menn aðrir handgengnir honum verði að endingu dæmdir í fangelsi þar sem nokkrir nánir samstarfsmenn forsetans sitja nú þegar fyrir ýmis brot, þ. á m. fv. lögfræðingur forsetans. Vísbendingar um yfirvofandi dóma eru óháðar því hvort ákæra fulltrúadeildar Banda­ ríkjaþings á hendur forsetanum dugir til sakfellingar af hálfu aukins meiri hluta öldungadeildarinnar enda virð­ ist sakfelling ólíkleg þar. Öðru máli gegnir um dómskerfið. Órækir vitnis­ burðir liggja nú fyrir um ólöglegar tilraunir forsetans til að ýmist þvinga eða laða erlend ríki til að grafa undan andstæðingum forsetans heima fyrir auk ýmissa annarra meintra brota gegn lögum og stjórnarskrá sem eru nú langt komin í rannsókn. Meint af brot forsetans hafa verið á margra vörum um langt árabil. Frá 1789 hefur fulltrúadeildin fjallað um 62 ákærur á hendur emb­ ættismönnum og ákært 19 menn, þar af 15 dómara, tvo forseta sem báðir hlutu sýknu í öldungadeildinni, einn ráðherra og einn öldungadeildarþing­ mann. Þannig eru Bandaríkin. Réttar­ kerfið fer ekki í manngreinarálit. Með þessu er ekki sagt að allir séu þar jafnir fyrir lögum eins og t.d. margir blökkumenn geta borið vitni um og einnig bankamenn sem var hlíft við ákærum eftir 2008. Réttarkerfið hlífir þó yfirleitt ekki hátt settum stjórn­ málamönnum stöðu þeirra vegna enda sitja margir slíkir í fangelsi. For­ setinn er ekki heldur ofar lögum. Bandarískt stjórnarfar hvílir á skil­ virkri þrískiptingu valds, styrkum fjölmiðlum og jafnræði hárra og lágra fyrir lögum. Þetta dugði til að knýja Richard Nixon forseta til að segja af sér 1974 frekar en að sæta ákæru til embættissviptingar. Nixon hefði þurft að fara í fangelsi hefði eftir­ maður hans ekki náðað hann. Trump forseti virðist ekki geta gengið að náðun vísri verði hann dæmdur nema hann segi af sér eins og Nixon. Frá Ameríku til Íslands Þessi lýsing á bandarísku réttarfari gildir í grófum dráttum einnig um t.d. um Frakkland. Einkunnin sem World Justice Project, stofnun á vegum Bandaríska lögfræðingafélagsins, gefur Bandaríkjunum fyrir lög og rétt er 7,1 á móti 7,3 í Frakklandi og 8,4 til 9,0 í Þýzkalandi og á Norður­ löndum án Íslands sem hefur ekki enn verið gefin einkunn. Á Íslandi er hvorki skilvirkri þrískiptingu valds né jafnræði fyrir lögum fyrir að fara þótt sumum fjölmiðlum hafi að sönnu farið fram. Meint lögbrot vel tengdra manna hafa yfirleitt verið látin afskiptalaus svo sem ég lýsti í rit­ gerðinni Samstæð sakamál í Tímariti Máls og menningar 2018. Eina stóra hermangsmálið sem kom til kasta dómstóla var olíumálið, eitt mesta fjársvikamál lýðveldissögunar. Brotin voru framin 1950­1960. Fv. utanríkisráðherra, seðlabankastjóri, stjórnarformaður Olíufélagsins og virðingarmaður í Framsóknarf lokkn­ um var fundinn sekur í Hæstarétti, en sök hans var fyrnd. Aðrir stjórnar­ menn Olíufélagsins fengu væga sektardóma. Framkvæmdastjóri var dæmdur til fangavistar. Sagan endurtók sig eftir hrunið 2008 þegar þrír ráðherrar og fjórir embættismenn sem Rannsóknar­ nefnd Alþingis taldi hafa sýnt af sér vanrækslu í skilningi laga voru ekki látnir sæta ábyrgð nema forsætisráð­ herrann einn fyrir Landsrétti. Sak­ sóknarar létu Alþingi ráða ferðinni þótt þingið væri skipað fólki sem skv. skýrslu RNA hafði þegið 300 mkr. á núvirði af föllnu bönkunum 2004­2008. Bankamenn voru dæmdir, einkum smáfiskar, en stærstu löx­ unum var sleppt. Einn þeirra bíður nú dóms í Hæstarétti Frakklands. Fjórflokkurinn er réttnefni Réttarfarið á Íslandi riðar. Ríkislög­ reglustjóri nýtur ekki trausts innan lögreglunnar en hann situr þó enn í embætti. Hæstaréttardómarar hafa sakað hver annan um lögbrot án þess að á því hafi verið tekið. Fjár­ festingar hæstaréttardómara eru nú til athugunar fyrir Mannréttinda­ dómstóli Evrópu. Seðlabankinn birti, eftir að meint brot voru fyrnd, skýrslu um Kaupþingslánið án þess að nefna að þriðjungur lánsfjárins var lagður samdægurs inn á reikning á Tortólu 6. október 2008. Seðla­ bankinn greiddi götu hrunþýfis aftur heim frekar en að spyrja um uppruna fjárins. Bankinn neitar enn að birta nöfn þeirra sem f luttu féð heim. Svein Harald Øygard sem var seðlabanka­ stjóri í nokkra mánuði 2009 lagði til að slóð hrunþýfisins yrði rakin og segir í nýrri bók: „Þegar ég mætti mót spyrnu lét ég bók færa álit mitt í fundargerð.“ Þessa fundargerð – og aðrar! – þarf að birta m.a. svo ljóst megi verða hvað aðrir fundarmenn lögðu til máls. Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur 2009­2013 reyndist ófær um eða ófús til að stöðva sukkið og spillinguna sem settu landið á hliðina 2008. Sam­ fylkingin og VG bera ábyrgð á að nýja stjórnarskráin, sem sker upp herör gegn spillingu með því m.a. að leysa stjórnmálaf lokkana úr herkví útvegs­ fyrirtækjanna, strandaði í þinginu 2013 og bíður þar enn eftir að verða lögfest. Þessir f lokkar bera báðir þunga ábyrgð. Fjórf lokkurinn – sem Jóhanna lýsti svo 2010 – er réttnefni. Góðan dag, gamla Ísland Eina stóra hermangsmálið sem kom til kasta dómstóla var olíu- málið, eitt mesta fjársvikamál lýðveldissögunar. Brotin voru framin 1950-1960. Fv. utanrík- isráðherra, seðlabankastjóri, stjórnarformaður Olíufélagsins og virðingarmaður í Fram- sóknarflokknum var fundinn sekur í Hæstarétti, en sök hans var fyrnd. E N N E M M / S ÍA / N M 9 5 1 1 4 H y u n d a i i2 0 a lm e n n 5 x 2 0 á g ú s t Hyundai | Kauptúni 1 | Sími 575 1200 | www.hyundai.is Nýr og spennandi Hyundai i20. Sýndu skynsemi. Veldu nýjan i20. Nýr i20 er fáanlegur með sjálfvirkri neyðarhemlun, akreinavara og sjálfvirkri hækkun og lækkun aðalljósa. Innréttingin hefur fengið nýtt og vandaðra yfirbragð, nýr 7" snertiskjár nýtir sér fullkomnustu margmiðlunartækni á borð við Apple CarPlay™ og Android Auto™. Verið velkomin að reynsluaka nýjum og glæsilegum Hyundai i20. Verð frá: 2.390.000 kr. Hyundai býður viðskiptavinum sínum upp á eina víðtækustu ábyrgð sem völ er á. Öllum Hyundai bílum fylgir 5 ára verksmiðjuábyrgð og ótakmarkaður akstur. S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 21F I M M T U D A G U R 1 0 . O K T Ó B E R 2 0 1 9

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.