Fréttablaðið - 10.10.2019, Síða 42
Anna Maria
Milosz, Inga
Björk Færseth
og Nura Rashid.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Markmiðið með stofnun þessara stuðningshópa var það að ná betur til
einstaklinga sem eru ekki með
íslensku sem móðurmál og hafa
sjálfir greinst með krabbamein
eða eru aðstandendur, segir Inga.
„Öll námskeið eru alltaf miðuð
við að þú talir íslensku, hvort sem
það er hér hjá okkur eða í Ljós-
inu, þannig að þetta er svona eini
vettvangurinn þar sem fólk getur
komið saman og tjáð sig annað-
hvort á ensku eða pólsku.“
Margar spurningar
sem fylgja greiningu
Að greinast með krabbamein er
mikið áfall, bæði fyrir einstakling-
inn og fjölskyldu viðkomandi, og
er upplifunin sérstaklega ein-
manaleg meðal þeirra sem hafa
ekki íslensku að móðurmáli. Á
einu augnabliki gjörbreytist lífið
og segir Inga að margar spurningar
vakni í ferlinu. Hún vonast því til
að þessi þjónusta geti reynst þeim
sem hana þurfa hjálpleg.
Þjónustan sem boðið er upp á
er margþætt en að undanskildum
stuðningsfundum geta notendur
fengið aðstoð við að nálgast ýmsar
hagnýtar upplýsingar sem erfitt
getur verið að ráða úr. „Margar
spurningar sem vakna eru bæði
tengdar sjúkdómnum, fjölskyldum
og réttindum, eins og hvað varðar
veikindarétt og slíkt og svo tengsl
við Sjúkratryggingar Íslands og
Tryggingastofnun,“ segir Inga.
„Á hverjum stuðningsfundi er
einn enskumælandi stuðnings-
fulltrúi og einn pólskumælandi
auk félagsráðgjafa frá Ráðgjafar-
þjónustu Krabbameinsfélagsins.“
Þær Anna Maria Miloz, sem er
frá Póllandi og er bæði pólsku- og
íslenskumælandi, og Nura Rashid,
sem er frá Singapúr, og er ensku-
og íslenskumælandi, eru báðar
stuðningsfulltrúar og starfa við
hlið Ingu á fundunum.
Upphaflega voru hóparnir tveir
og fóru fundirnir fram á ensku
annars vegar og pólsku hins vegar,
en nýverið var ákveðið að sameina
þá í einn hóp sem hittist þriðja
fimmtudag hvers mánaðar. Um
er að ræða jafningjafræðslu og
stuðning. „Við erum nú komnar
með stuðningshóp fyrir alla ein-
staklinga af erlendum uppruna,
hvort sem þeir sjálfir hafa greinst
eða þeir eru aðstandendur.
Hagræðingin í því að hafa
þessa hópa saman er sú að fólk
getur þá valið hvort það kýs að
tala íslensku, ensku eða pólsku,“
útskýrir Inga. „Við þrjár höfum svo
tækifæri til þess að skipta okkur
niður í allt að þrjár grúppur út frá
samsetningu þeirra sem mæta.“
Þá nefnir Inga sérstaklega mikil-
vægi þess að bjóða upp á úrræði
fyrir pólskar konur sem komnar
eru á efri ár og hafa þörf fyrir
stuðning sem fer fram á þeirra
móðurmáli. „Margir Pólverjanna
sem eru eldri tala eingöngu pólsku
og þykir mörgum erfitt að geta
ekki tjáð sig á sínu tungumáli í
veikindum.“
Viðeigandi úrræði vantar
Tilurð þessa úrræðis má rekja til
einstaklinga sem greinst höfðu
með krabbamein og aðstandenda
Mikilvægt er að ná til allra
kvenna af erlendum uppruna
Inga Björk Færseth, félagsráðgjafi hjá Krabbameinsfélaginu, hefur umsjón með stuðnings-
hópum fyrir erlendar konur sem hafa greinst með krabbamein. Hún segir skjólstæðinga sína oft
upplifa mikla einangrun í kjölfar greiningar og því skipti miklu máli að þeim sé veittur stuðningur.
For English and Polish speaking
The Cancer Society offers Peer
Support and education about
cancer. Every third Thursday in
a month at 16.30-17.30 a group
intended for English and Polish
speaking individuals who deal
with cancer or their relatives
meet at the Icelandic Cancer
Society in Skógarhlíð 8, Reykja-
vik. The Counselling Service is
open Monday to Wednesday
from 9-16, on Thursdays from
9-18 and Fridays from 9-14. On
weekdays support is also given
by professionals by calling 800
4040 or you can email us at
radgjof@krabb.is.
þeirra sem leituðu til Krabba-
meinsfélagsins eftir stuðningi.
„Þessir stuðningshópar byrjuðu
haustið 2018 og upphaflega kom
beiðni til okkar frá aðstandanda
krabbameinssjúklings og einstakl-
ingi sem hafði sjálfur greinst með
krabbamein en báðir þessir aðilar
töluðu um skort á stuðningi á sínu
móðurmáli.
Þetta hefur farið hægt að stað
en við erum með stuðningsfull-
trúa sem eru reynslumiklir og
starfa meðal annars í stuðnings-
netinu,“ svarar Inga þegar hún er
spurð hvort þjónustan hafi borið
góðan árangur. Rannsóknir hafa
sýnt fram á að þau sem taka þátt
í stuðningshópum upplifi betri
líðan og aukin lífsgæði. Þau sem
nýti sér þjónustu af þessu tagi séu
gjarnan vonbetri og ákveðnari í að
takast á við viðfangsefnið.
Inga hvetur þá sem þurfa á
þjónustunni að halda að leita til
samtakanna og biður jafnframt
alla sem þekkja til einstaklinga í
þessum sporum að vekja athygli
þeirra á þjónustunni. „Við viljum
hvetja fólk til þess að mæta til
okkar, hvetja þá sem vita af ein-
staklingum af erlendum uppruna
sem hafa greinst eða eru aðstand-
endur til þess að láta þá vita af
okkur og þessum stuðningshópi.
Ráðgjafarþjónustan er opin á
mánudögum til miðvikudags frá
kl. 9-16, á fimmtudögum frá 9-19
og á föstudögum frá 9-14.
Ekki er nauðsynlegt að hafa
samband fyrirfram. „Fólk getur
mætt án þess að gera boð á undan
sér. Hóparnir koma saman einu
sinni í mánuði, þriðja fimmtudag
kl. 16.30-18, til okkar í Skógarhlíð
8, á fyrstu hæð.“
„Fólk er alltaf velkomið til okkar
í kaffisopa eða að hringja í okkur í
síma 800-4040 og einnig er hægt
að senda tölvupóst á radgjof@
krabb.is.“
Á hverjum stuðn-
ingsfundi er einn
enskumælandi stuðn-
ingsfulltrúi og einn
pólskumælandi auk
félagsráðgjafa.
10 BLEIKA SLAUFAN 1 0 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R