Fréttablaðið - 10.10.2019, Blaðsíða 48
Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir
hjordiserna@frettabladid.is
Verð 9.900 kr.
Stærð 36 - 46
Fallegar blússur
Laugavegi 178 | Sími 555 1516
Opið: Virkir dagar 11-18 | Laugardagar 11-15
Við erum á facebook
Holtasmára 1
201 Kópavogur
(Hjartaverndarhúsið)
Sími 571 5464
NETVERSLUN WWW.TISKUHUS.IS
SMART FÖT, FYRIR SMART KONUR
Við getum ekki kennt þér á
net- og samfélagsmiðla...
En við getum tryggt að þú vitir
hvað er að frétta!
Jackie brosir út að eyrum í bleiku dragtinni fyrr um daginn örlagaríka.
Forsetahjónin skömmu áður en forsetinn var myrtur.
Jackie, enn
klædd bleiku
dragtinni, við
hlið Lyndon B.
Johnson þegar
hann sór eið um
borð í forseta-
flugvélinni.
Þegar Jackie og eiginmaður hennar, John F. Kennedy, lentu á f lugherstöð í útjaðri
Forth Worth í Texas, þann 21. nóv-
ember árið 1963, grunaði þau
eflaust ekki hvað var í vændum.
Forsetahjónin voru að vanda vel
til fara og vakti Jackie þá sem fyrr
mikla athygli fyrir óaðfinnanlegan
klæðaburð. Þennan örlagaríka dag
klæddist hún bleikri dragt með
hatt í stíl.
Ógleymanlegur dagur
Dragtin var nákvæm eftirgerð
sams konar dragtar frá Chanel sem
kom fram á sjónarsviðið árið 1961
og var hluti af haust- og vetrar-
línu franska tískuhússins. Sagt
hefur verið að dragtin hafi verið í
miklu eftirlæti hjá forsetanum og
að hann hafi valið hana sérstak-
lega þegar Jackie leitaði álits hjá
honum.
Daginn eftir, föstudaginn
22. nóvember sátu þau hjónin
svo í opinni Lincoln-glæsikerru,
þar sem þau, ásamt fjölmennri
bílalest, óku um götur Dallas. Það
var þá sem forsetinn var veginn
úr launsátri og hafa fáir atburðir
hafa haft jafn mikil áhrif á banda-
rísku þjóðina eins og þetta ægilega
augnablik.
Myndir og myndskeið af vett-
vangi sýna Jackie í örvæntingu
snúa sér við í átt að húddinu og
fálma út í loftið í glundroðanum
sem fylgdi. Rétt eins og móðir
sem grípur brothætta muni með
leifturhraða, telja margir að Jackie
hafi ósjálfrátt reynt að grípa leif-
arnar af heila eiginmanns síns sem
splundruðust í allar áttir út um
útgangssárið á hnakka hans.
Líktist bleikri blómabreiðu
Síðar lýsti Lady Bird, eiginkona
þáverandi varaforseta, Lyndons B.
Johnson, vettvanginum sem fyrir
augu hennar bar á þann veg að hún
hefði séð það sem líktist bleikri
blómabreiðu, liggjandi í aftur-
sætinu. „Ég held að það hafi verið
Bleik og blóði
drifin dragt
Jackie Kennedy, fyrrverandi forsetafrú Bandaríkjanna, er
ein áhrifamesta tískufyrirmynd 20. aldar. Ein þekktasta
flíkin sem Jackie klæddist á sér þó grafalvarlega sögu.
frú Kennedy, þar sem hún lá yfir
líkama forsetans.“ Bleiki hatturinn
týndist í hamaganginum og hefur
aldrei komið í leitirnar.
Eftir að hryllingurinn var afstað-
inn harðneitaði Jackie að skipta
um föt, þrátt fyrir að vera þakin
blóð- og heilaslettum úr nýmyrt-
um eiginmanni sínum. Þá neitaði
hún ennfremur að yfirgefa Dallas
án líks forsetans en samkvæmt
lögum átti að kryfja lík áður en
þau væru flutt frá Texas-fylki. Sló
í brýnu á milli aðstoðarmanns
forsetans og réttarlæknisins, Earls
Rose, en sá síðarnefndi gaf f ljótt
eftir.
Einungis nokkrum klukkutím-
um eftir að forsetinn var ráðinn
af dögum voru Jackie, varafor-
setinn og eiginkona hans, ásamt
tilheyrandi fylgdarliði, komin um
borð í forsetaflugvélina. Það var
þá sem Jackie, enn stjörf og klædd
blóðugri dragtinni, stóð við hlið
Lyndons B. Johnson á meðan hann
sór eið sem 36. forseti Banda-
ríkjanna.
Jackie klæddist blóðugri
dragtinni það sem eftir lifði dags.
„Ég vil að þeir sjái það sem þeir
gerðu Jack,“ svaraði hún þegar
arftaki hennar, Lady Bird, spurði
hvort hún vildi ekki hafa fata-
skipti. Hverjir „þeir“ voru eru svo
seinni tíma vangaveltur en eins og
margir vita þá eru fáir atburðir í
mannkynssögunni sem hafa verið
kveikjan að jafn mörgum sam-
særiskenningum.
10 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 0 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R