Fréttablaðið - 10.10.2019, Qupperneq 58
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Ragna Friðriksdóttir
lést sunnudaginn
6. október síðastliðinn.
Útför hennar fer fram mánudaginn
14. október kl. 11 frá Digraneskirkju.
Fjölskyldan.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, systir og amma,
Guðríður Helga
Magnúsdóttir
Túngötu 36, Reykjavík,
lést þriðjudaginn 8. október.
Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni
miðvikudaginn 16. október kl. 13.
Þórir Ragnarsson
Sigurður Thoroddsen
Ingibjörg Þórisdóttir Guðmundur Möller
Ragnar Þórisson
Jósef Magnússon
Jakob H. Magnússon Valgerður Jóhannsdóttir
og barnabörn.
Okkar kæri
Hafsteinn Þorvaldsson
Freyjugötu 47,
lést á heimili sínu þann 3. október.
Útförin fer fram frá Grensáskirkju
fimmtudaginn 17. október kl. 13.00.
Aðstandendur.
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Eyjólfur G. Jónsson
Arnarfelli, Mosfellsbæ,
lést hinn 3. október síðastliðinn á
hjúkrunarheimilinu Eir.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hins látna.
Inga Jóna Sigurðardóttir
Eyþór Eyjólfsson
Eyjólfur M. Eyjólfsson Hugrún Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Júlíus Pétur Bergsson
fiskimatsmaður
Stórholti 9, Akureyri,
lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri
sunnudaginn 22. september 2019.
Útförin fer fra frá Akureyrarkirkju föstudaginn
11. október kl. 13.30.
Anna Jónína Þorsteinsdóttir
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Helga Jóhanna
Kristjánsdóttir
Gnoðarvogi 20, Reykjavík,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Grund fimmtudaginn 3. október.
Útförin verður auglýst síðar.
Kristjana G. Magnúsdóttir Egill Jónsson
Erla G. Magnúsdóttir
Helgi M. Magnússon Ingunn G. Björnsdóttir
Hafdís Magnúsdóttir Hjörleifur L. Hilmarsson
Jóna Björg Magnúsdóttir
Smári Magnússon Regína Ásdísardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Garðar Sigurðsson
vélvirkjameistari,
Herjólfsgötu 32,
áður Köldukinn 26, Hafnarfirði,
andaðist á Líknardeild Landspítalans
7. október. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
föstudaginn 18. október kl. 13.00.
Erla Elísabet Jónatansdóttir
Jónatan Garðarsson Rósa Sigurbergsdóttir
Jenný Garðarsdóttir Arnór Friðþjófsson
Erla Björg Garðarsdóttir Arnlaugur Ólafsson
Hrafnhildur Garðarsdóttir Sigurjón Þórðarson
Kristín Garðarsdóttir Hlynur Guðjónsson
Drífa Garðarsdóttir Ármann Úlfarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Sonja Backman
Fjölnisvegi 15,
Reykjavík,
lést á Líknardeild Landspítalans
laugardaginn 5. október.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Birgir Ísleifur Gunnarsson
Björg Jóna Birgisdóttir Már Vilhjálmsson
Gunnar Jóhann Birgisson Sveinbjörg Jónsdóttir
Ingunn Mjöll Birgisdóttir Viktor Gunnar Edvardsson
Lilja Dögg Birgisdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar okkar
ástkæra eiginmanns, föður,
tengdaföður og afa,
Kjartans Konráðs
Úlfarssonar
Boðaþingi 24, Kópavogi
Sérstakar þakkir til starfsfólks.
Boðans, Hrafnistu Kópavogi.
Margrét Andersdóttir
Anders Kjartansson Dagbjört Þuríður Oddsdóttir
María Ingibjörg Kjartansdóttir Andrés Eyberg Jóhannsson
Úlfar Kjartansson Ingunn Heiðrún Óladóttir
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir,
tengdafaðir og afi,
Björn Sævar Ástvaldsson
framkvæmdastjóri,
Langholtsvegi 24,
lést á Landspítalanum 30. september
sl. Útför fer fram frá Áskirkju
mánudaginn 14. október kl. 13.
Kristín Rós Andrésdóttir
Svanfríður Steinsdóttir
Brynleifur Birgir Björnsson Ingibjörg Ösp Magnúsdóttir
Sandra Rós Björnsdóttir
Birna Karen Björnsdóttir Bjarki Hjálmarsson
Dagmar Þorsteinsdóttir Magnús J. Magnússon
og barnabörn.
Hekla Dögg Jónsdóttir my nd l ist a rkona er fimmtíu ára og einum degi betur og ætlar að halda upp á tímamótin um aðra helgi með list-
viðburði í léttum dúr.
Hún er í smá pásu frá kennslu í mynd-
listardeild LHÍ í Laugarnesinu og gefur
sér tíma í smá spjall. Er fyrst spurð
hvenær hún hafi ákveðið að verða
listamaður. „Það kom smátt og smátt.
Ég hafði alltaf gaman af myndmennt í
barnaskóla og að búa hluti til. Fannst ég
samt ekkert besti teiknarinn á svæðinu
en hélt þá að það væri mikilvægast í
myndlist. Var á tímabili að hugsa um
að fara í gullsmíði eða iðnhönnun en í
stað þess að fara í Iðnskólann ákvað ég
að fara í listadeild Fjölbrautar í Breið-
holti. Þar áttaði ég mig á hvað frelsið var
mikið í myndlistinni. Umfjöllunarefnið,
stefnan og efnið, þessu öllu ræður lista-
maðurinn og ég verð alltaf þakklát FB
fyrir að opna augu mín fyrir því. Það
er bara ekki nægur tími til að láta allar
hugmyndir verða að veruleika!“
Hekla Dögg var ráðin prófessor við
LHÍ 2012 en hafði verið stundakennari
áður. „Ég var viðloðandi deildina frá
því ég kom úr námi í Kaliforníu og mér
fannst strax gaman að kenna. Það var
líka frábær leið fyrir mig til að komast
inn í myndlistarsenuna og samfélagið.“
Innt eftir eftirminnilegum afmælum
frá bernsku kveðst Hekla Dögg eiga
mjög listræna móður, Þrúði Helga-
dóttur, sem hafi látið eftir henni ýmsar
óskir í sambandi við afmæliskökur. „Í
eitt skiptið vildi ég fá hlaupköku úr jelly
og við krakkarnir lékum okkur aðallega
að hlaupinu. Í annað skipti bað ég um
tertu á mörgum hæðum og úr varð alger
regnbogakaka hjá móður minni. Þannig
að ég tengi afmælin við mjög sjónrænar
tertur!“
Ætlar hún kannski að panta eina hjá
mömmu núna? „Ég veit ekki hvort ég fer
að ónáða hana en hún kemur sterk inn í
afmæli barnabarnanna.“
gun@frettabladid.is
Verð alltaf þakklát FB
Hin fimmtuga Hekla Dögg Jónsdóttir, prófessor við Listaháskólann, tengir minningar
sínar um afmæli í æsku við ævintýralegar afmælistertur úr smiðju móður sinnar.
„Ég hafði alltaf gaman af myndmennt í barnaskóla og að búa hluti til,“ segir Hekla Dögg. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
1 0 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R32 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT