Fréttablaðið - 10.10.2019, Síða 72
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann
Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
Tryggðu þér áskrift
HOLLAND NÍRLAND UNGVERJALANDKRÓATÍA
Í KVÖLD 18:35
FÖSTUDAG 18:35
TÉKKLAND ENGLAND TYRKLAND ALBANÍA
LAUGARDAG
DANMÖRK SVISS
15:50 18:35
NOREGUR SPÁNN
Í dag verður tilkynnt um samstarf tveggja kanóna í íslensk r i fat ahönnun, Kormáks & Skjaldar og 66°Norður. Um er að ræða nýja útfærslu af jakkanum
Öxi, en hún er tileinkuð íslenskum
hestamönnum. Jakkinn er hluti af
reiðfatalínu Kormáks & Skjaldar
sem er væntanleg í verslanir þeirra.
Öxi jakkinn hentar frábærlega í
almenna útivist, dagsdaglega og
ekki síður í reiðmennsku líkt og
margar flíkur sem 66°Norður hefur
framleitt síðustu áratugi. Jakk-
inn kemur í kvenmanns- og karl-
mannssniði, hvort um sig í tveimur
útgáfum.
Byrjuðu í notuðum fötum
„Við reyndum að láta þeirra stíl
og útlit mæta okkar í jakkanum.
Við fórum þá leið að gera tvíd-
print-útgáfu af jakka frá þeim, til
að tengja ólíka stíla fyrirtækjanna
saman. Jakkinn er svo hluti af miklu
stærra verkefni hjá okkur,“ segir
Gunnar Hilmarsson, yfirhönnuður
Kormáks & Skjaldar.
Kormákur & Skjöldur eru vana-
lega með frekar stórar línur, bæði
karl- og kvenmannsfatnað.
„Við byrjuðum fyrir alvöru að
framleiða okkar eigin línur árið
2010,“ segir Kormákur Geirharðs-
son, annar eigandi verslunarinnar.
„Við byrjuðum á sínum tíma
með notuð föt fyrir tuttugu
árum í kjallara
hérna á Hverfis-
g ö t u , “ s e g i r
Skjöldur Sigur-
jón s son, h i n n
helming ur t ví-
eykisins.
„ Aðalástæð-
an fyrir því að
v ið fór um að
framleiða sjálfir
var sú að við
f u ndu m ek k i
það sem okkur
langaði að selja.
Neyðin kennir
naktri konu að
spinna,“ segir
Kormákur.
Ekki bara fyrir hestafólk
Eins og áður sagði heitir nýjasta
línan Reiðklæði.
„Þetta er reiðfatnaður en ekki
endilega bara til að fara á hestbak
í, þú getur klæðst þessu líka dags-
daglega,“ segir Skjöldur.
Kormákur segist alltaf hafa litið á
þetta fyrst og fremst sem útivistar-
fatnað.
„Þetta passar vel við hesta en líka
allt eins til að fara út að ganga með
hundinn,“ bætir Skjöldur við.
„Þetta snýst kannski smá um að
ramma inn ákveðna menningu,
eins og þeir segja þá getur þetta allt
eins verið notað í veiðar eða hvað
sem er,“ segir Gunnar, en hann segir
reiðtenginguna fyrst og fremst lýsa
stílnum á fatnaðinum.
„Sumt af þessu getur maður
notað sem jakkaföt dagsdaglega,“
segir Kormákur.
Fyrir íslenskt veðurfar
Kormákur segir að fatnaðurinn sem
þeir framleiða henti sérstaklega vel
fyrir íslenskt veðurfar.
„Fólk sem er að koma
til okkar talar sérstak-
lega um hvað þeim
f innst hentugt að
geta klæðst þessu
a llt á r ið, þet t a
eru þannig efni,“
bætir hann við.
„Svo leggjum við upp úr því að
vera með mjög vönduð efni og að
gera föt sem endast, þannig að það
spornar gegn sóun. Þá kaupir fólk
sér aðeins dýrara en f líkin nýtist
mun lengur og vinnan á bak við
hana er vönduð,“ segir Skjöldur.
Örfá eintök í boði
Gunnar segir að tilurð samstarfsins
hafi verið skemmtileg og það hafi
gengið einstaklega fyrir sig.
„66°Norður er náttúrulega leið-
andi í gerð útivistarfatnaðar og
mikið notað af hestafólki. Okkur
langaði líka að finna leiðina frá
okkar útliti yfir í þeirra og mæta
því í miðjunni. Það var skemmtilegt
ferli. Þótt fyrirtækin séu ólík þá eiga
þau margt sameiginlegt, þau ganga
bæði út frá svipuðum hugsjónum
með sögu, nýtingu og gæði,“ segir
Gunnar.
„Þau voru nú þegar að hugsa
um að endurvekja reiðlínuna sína,
þannig að þetta gekk mjög f ljótt
saman og var gott samstarf. En
jakkinn var ekki framleiddur í
mörgum eintökum, svo fólk verður
að drífa sig og kaupa
hann,“ segir Kor-
mákur léttur og
þeir hlæja allir
þrír.
S a m s t a r f i ð
verður kynnt og
jakkinn fer í sölu
klukkan 17.00
í v e r s l u n
6 6° N o r ð u r
við Laugaveg.
steingerdur@
frettabladid.is
Samstarf tveggja kanóna
Í dag verður kynnt samstarf Kormáks & Skjaldar og 66°Norður. Um
er að ræða jakka þar sem stílbrigði beggja framleiðenda mætast.
Eigendurnir Skjöldur og Kormákur ásamt Gunnari Hilmarssyni aðalhönnuði. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
1 0 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R46 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð