Hlynur - 15.12.1961, Page 5
Björn Gunnarsson,
25 ár.
Ásgeir Jónsson,
25 ár.
Metúsalem Stefáns-
son, 25 ár.
Skúli Olafsson,
25 ár.
Starfsaldursmerki ....
Framh. af bls. 2
stjóri í Véladeild, Metúsalem Stef-
ánsson, verkstjóri í vörugeymslum
og Skúli Ólafsson, deildarstjóri í Bú-
vörudeild.
Engan þarf að undra, þótt stofnun,
sem byggir á slíkri hugsjón sem
Samband íslenzkra samvinnufélaga,
hafi notið gæfu og gengis í störfum
sínum. Margt hefur þar til borið, og
ber þá ekki sízt að geta þeirra mörgu
starfsmanna, er gefið hafa fyrirtæk-
inu beztu ár starfsaldurs síns og
láta enn engan bilbug á sér finna.
— Starfsaldursmerkin eru fag-
ur og virðulegur vottur þess, að
stjórn Sambandsins metur að verð
leikum slíka þjónustu og þá menn, er
látið hafa hana í té. Um leið og við
árnum heilla þeim átján, er fyrstir
hafa orðið þessa heiðurs aðnjótandi,
látum við 1 ljós þær vonir, að sem
flestir eigi eftir að fylla flokk þeirra
og bera starfsaldursmerki sín með
stolti góðs samvinnustarfsmanns.
Húsvörður Sambands-
ins — kaupfélagsstjóri
á Óspakseyri
Ragnar Sveinbjörnsson hefur nú
látið af störfum sem húsvörður í
Sambandshúsinu, en við tekið Þorkell
Guðmundsson.
Þorkell er fæddur að Melum í Ár-
neshreppi 3. apríl 1905. Hefur ver-
ið bóndi að Óspakseyri síðan 1937 og
kaupfélagsstjóri hjá Kaupfélagi
Bitrufjarðar, s.st., síðan það var
stofnað 1942. Þorkell er kvæntur
Ástríði I. Stefánsdóttur frá Kleifum
í Gilsfirði og eiga þau fjóra syni.
Við kaupfélagsstjórn og búskap á
Óspakseyri hefur tekið Jón G. Jóns-
son. Er hann fæddur 20. okt. 1933
að Broddanesi í Kollafirði. Jón
stundaði nám við búnaðarskólann að
Hvanneyri í fjóra vetur og útskrifað-
ist þaðan 1955. Kona hans er Ásdís
Jónsdóttir.
Þorkell Jón
HLYNUR 5