Hlynur - 15.12.1961, Qupperneq 6
Ég sit við skrifborð með blokk
og blýant fyrir framan mig og á
stól andspænis mér er maður á
bezta aldri, sem kallað er, hár og
grannur, brúnn í andliti af sól og
veðrum og vöflulaus í viðmóti. Hér
er kominn Ingólfur Viktorsson, er
fyrstur manna gegndi loftskeyta-
störfum á samvinnuflotanum ís-
lenzka. Hefur hann unnið þar óslitið
síðan, eða öll þessi fimmtán ár, sem
liðin eru síðan Hvassafellið, fyrsta
íslenzka samvinnuskipið, kom til
landsins.
— Eruð þið margir, Ingólfur, sem
hafið verið á flota Sambandsins frá
upphafi hans?
— Ég held við séum sjö talsins.
— Varstu búinn að stunda sjó-
mennsku lengi áður en þú fórst á
Hvassafellið?
— Nei, ekkert að ráði. Ég var þá
við ýmis störf, meðal annars um
skeið hjá verðlagseftirlitinu.
— Ertu fæddur hér syðra?
— Nei, ég er Breiðfirðingur, fædd-
ur í Flatey. En hef búið í bænum
um langt skeið.
— Varstu lengi á Hvassafellinu?
— í átta ár. Svo fór ég á Helga-
fellið 1954, þegar það kom, og var
þar í, ja við skulum nú sjá til, í
fjögur ár. Svo fór ég á Hamrafellið
og hef verið þar síðan, og líkað reglu-
lega vel.
— Segðu mér eitthvað af dvöl þinni
á Hvassafellinu.
— Þá er fyrst að segja af því
þegar við náðum í það til Bretlands.
Svo var mál að vöxtum, að hingað
höfðu verið fengnir frá Bretum þrír
hraðbátar, er nota átti til strand-
gæslu. Þeir reyndust þó óhentugir
þegar til kom og var því ákveðið
að skila þeim. Voru þá slegnar tvær
flugur í einu höggi og við látnir
sigla þeim út um leið og við náðum
í Hvassafellið. Var ég þá eini loft-
skeytamaðurinn á þessum þremur
bátum. Við vorum þrjátíu og sex
tíma til Skotlands, og held ég að
mér sé óhætt að fullyrða að það sé
fljótasta ferð skips undir íslenzkum
fána á þeirri leið.
— Og fóruð þið víða á Hvassafell-
inu?
0 HLYNUR