Hlynur - 15.12.1961, Qupperneq 7
— Fyrsta árið á því heimsóttum
við þrjátíu borgir. Maður hafði varla
látið sér detta í hug að maður ætti
eftir að upplifa svoleiðis, áður en
út í þetta var komið. Við sigldum þá
mikið til Miðjarðarhafslandanna,
Spánar, Ítalíu, Grikklands og Afríku.
Fórum þangað með saltfisk og tókum
ýmiskonar varning til baka, svo sem
ávexti.
— Hvar kunnirðu bezt við þig?
— >að er ekki svo gott að segja
um það. Ég var ákaflega hrifinn af
Genúa; fannst hún mjög skemmti-
legur bær. Allt öðru máli gegnir um
Napólí. Þú kannast við máltækið: Sjá
Napólí og dey síðan. Mér hefði staðið
á sama þótt ég hefði drepist án þess
að sjá Napólí. Þetta er voða róna-
legur staður. Norður-Ítalía er allt
annað. — í sambandi við þessar Mið-
jarðarhafsferðir má geta þess, að
við sigldum stundum með farþega á
þær slóðir. Meðal annarra fóru með
okkur Guðni Þórðarson, þá blaða-
maður við Tímann og Vigfús Guð-
mundsson, veitingamaður. Vigfús er
skemmtilegasti farþegi sem ég hef
siglt með. Það var alltaf uppi húmor-
inn hjá honum. Það var í þeirri ferð
einu sinni að morgni dags, er við
sigldum framhjá Kaprí, að ég spurði
Vigfús hvort hann myndi nokkru
sinni muna eftir okkur héðan af
skipinu, ef hann rækist á okkur síð-
ar. Ef þú hittir mig seinna, sagði
hann, skaltu spyrja mig: Manstu eftir
Kaprí í ljósaskiptunum? Ætli ég
ranki þá ekki við mér.
— Hvað um Spán?
— Þangað er gaman að koma. Mér
virtist einhvernveginn meira varið
í fólkið þar en víða annarsstaðar þar
suður frá.
— Grikkland?
— Þar var margt að sjá. Einu
sinni fórum við nokkrir saman til
Aþenu og skoðuðum rústirnar á
Akrópólis. Þá varð einum félaganna
að orði: Mikið andskoti hafa Þjóð-
verjarnir bombardérað hér í stríð-
inu!
— Þið fáið sannarlega tækifæri
til að skoða ykkur um, sjómennirn-
ir. — Þú ert sennilega búinn að sjá
flestar álfur heims?
— Já, ég hef siglt til Afríku,
Evrópu, Norður- og Suður-Ameríku
og Asíu. Síðustu árin hef ég verið á
Hamrafellinu, farið 10—12 túra til
Batúm. Það er bezta sigling sem hægt
er að hugsa sér, enda oftast gott í
sjóinn á Miðjarðarhafinu.
— En þið komið næstum því hvergi
við á leiðinni, nema í Gíbraltar.
Hvernig líst þér á þann stað?
Framhald á bls. 30.
Rætt við
Ingólf Viktorsson,
loftskeytamann
Ingólfur
HLYNUR 7