Hlynur - 15.12.1961, Blaðsíða 12
Siffurjón
Nýlega er út komin á vegum Bóka-
útgáfunnar Fróða smásagnasafnið
Sandur og sær, eftir Sigurjón Jóns-
son frá Þorgeirsstöðum. Enda þótt
hér sé um fyrstu bókina frá hendi
höfundar að ræða, er hann fjarri
því að vera nokkur nýgræðingur á
ritvellinum, þvert á móti er hann
löngu kunnur fyrir smásögur og
þætti, er birzt hafa eftir hann í blöð-
um og tímaritum á liðnum árum.
Þessar sögur Sigurjóns, er nú
koma fyrir sjónir lesenda, bera því
líka fullkomið vitni, að hér er á ferð
maður, sem á að baki langa sögu
listrænnar fágunar og vandvirkni í
meðferð efnis, máls og stíls. — Efn-
ið er í meginatriðum sótt í faðm
íslenzkrar náttúru, grófan og hrjúf-
an, en jafnframt öran og gjöfulan,
hvort heldur er á efnisleg eða fag-
urfræðileg gæði. Málið er kjarnyrt
og þróttmikið; stíllinn meitlaður,
skrumlaus og gersneyddur orðskrúði
og málalengingum, eins og vera ber
hjá góðum smásagnahöfundi.
SANDUR
OG SÆR
Sögur bókarinnar eru alls tuttugu
og fimm að tölu og að sjálfsögðu
ólíkar innbyrðis að ýmsu leyti, eftir
því á hvaða strengi er slegið hverju
sinni. Bezt virðist mér þó höfundi
takast upp er hann tekur litlu bræð-
ur okkar, málleysingjana, til meðferð-
ar, í sögum eins og Krepptar klær, Ef
til vill, Söngvarinn og Æskuást, enda
þótt svipmyndir þær, er þar er
brugðið upp, séu harla sundurleitar.
Að mínu áliti eru Krepptar klær
eftirminnilegasta saga bókarinnar.
Þessi mynd er af fremri kápusíðu bókar-
innar, er Höskuldur Björnsson, listmálari,
hefur gert. Hugmyndin að myndinni er
sótt í Krepptar klær. Höskuldur hefur einn-
ig skreytt upphöf sagnanna með mjög
fallegu myndletri.
12 HLYNUR