Hlynur - 15.12.1961, Qupperneq 13

Hlynur - 15.12.1961, Qupperneq 13
Hún er lýsing á hrikalegum, miskunn- arlausum leik náttúruaflanna, andar hæfilega köldu eins og norðansvelj- andinn, sem gerði auvirðilegasta her- fang fuglakonungsins að banabita hans. Bak við upphafið, sveitarlýsing- una, heyrum við dyn grjótskriðunn- ar, er hrynur úr hömi-unum undir hásæti kóngsins, fylgjumst síðan með ránsferðum hans, sem engu eirir og magnast við hverja raun, unz norðanveðrið, þrungið jafnmisk- unnarlausum náttúrukrafti og hann sjálfur, verður honum ofjarl. Þá nær spennan hámarki. Bændaglím- an, harmur ekkjunnar á berggníp- unni og fuglshræið í fjörunni mynda prýðilegan eftirmála, logn á eftir æðandi stormi. Söngvarinn og Æskuást eru stuttar, en orðfagrar að sama skapi, minna á órímaða lýrik. Sérstaklega fer höfundur næmum höndum um músarindilinn, sem situr hlýr og vongóður í holu sinni undir tryllt- um veðraham vetrarins, en fer á ról fyrsta daginn og lygnir og létt- ir til. „Söngur hans er mjúkur og hlýr, lofgerð um lífið og birtuna — ómar eins og yndislegt barns- hjal í blágresisbrekku, þegar sól- far og sunnanvindur vermir gró- andi jörð.“ Sigurjón er Austulr-Skaftfelling- ur, sonur þeirrar sýslu, er ef til vill ber meiri merki sands og sævar en nokkur önnur á landinu. Þvi fer að líkum, að sögur hans marg- ar lýsa baráttu mannsins við þessi náttúruöfl, er mörgum hafa búið döpur og ógnþrungin örlög. Svo er um sögur eins og Brimhljóð, Fjöru- sand og Við naustið. Annars stað ar mildar góðlátleg kímni alvöru- þrunginn undirtón, svo sem í Dís- inni úr björgunum, Hlöðukálfi og Fyrirdrætti. Mörg fleiri orð mætti hafa um sögur Sigurjóns, er hér er þess ekki kostur að sinni. Vil ég aðeins taka það fram að lokum, að mér er sérstakt fagnaðarefni að vita svo góðan rithöfund í hópi okkar sam- Framhald á bls. 30. Deildarstjóri í Rafmagnsdeild — fulltrúi í Bifreiðadeild 1. október urðu mannaskipti í raf- magnsdeild Véla- deildar. Karl Stef- ánsson lét af störfum eftir eig- in ósk samkvæmt læknisráði en við tók Einar Birnir. Einar Birnir er fæddur 30. sept- Einar ember 1930 að Grafarholti, Mosfellssveit. Foreldr- ar: Björn Birnir og Bryndís E. Birn- ir. Eiginkona Jóhanna I. Birnir og eiga þau 4 börn. Einar er stúdent að menntun. Hann var ráðinn til Sam- vinnutrygginga 10. júlí 1954. Þar hef- ur Einar starfað i bifreiðadeild, síð- an sem fulltrúi í brunadeild og nú síðast sem fulltrúi í bifreiðadeild fyr- irtækisins. Við störfum Ein- ars í Bifreiðadeild Samvinnutrygg- inga hefur tekið Bjarni Pétursson. Bjarni er fæddur 30.4. 1936 að Grund Framhald á bls. 30. Bjarni HLYNUR 13

x

Hlynur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.