Hlynur - 15.12.1961, Page 16

Hlynur - 15.12.1961, Page 16
Stundum er reynt að gera grein fyrir helgi jólanna með því að setja hátíð þessa í samband við vetrarsól- hvörfin, gera hana að hátíð hinnar rísandi sólar. Sagt er: „Dagarnir taka að lengjast; vorið er að hefja göngu til norðlægari landa, birtan hefur sigrað myrkrið. Vér skulum því halda ljóssins hátíð“. — Það er ekki að efa, að jólaljósin hafa oft orðið tákn vorbirtunnar í skammdegis- myrkrunum, vakið vonir um bjart- ari tíma og lengri daga. — Það er næsta skiljanlegt, að einmitt þessi þáttur í helgi jólanna hafi orðið oss íslendingum íhugunarefni vegna þess, að skammdegið hefur legið þyngra á oss en flestum öðrum þjóð- um. Annar þáttur jólahelginnar mun þó líklega hafa orkað sterkar á hugi mannanna og skilið eftir sig varan- legri spor í sögu einstaklinga og þjóða: Það er „friðurinn, sættin,“ jólafriðurinn. Fyrir þessu eru margir vitnisburðir og verður fátt rakið hér. Til skamms tíma hefur sá háttur verið hafður á, þegar saga mann- kyns hefur verið rakin, að draga fyrst og fremst fram styrjaldir manna og þjóða, vígaferðir og yfir- gang. Hefur slíkt helzt þótt frásagn- arvert, enda af nógu að taka. En jafnvel í heiftinni og harðneskjunni hefur ekki reynzt hægt að útiloka jólafriðinn. Hefur það löngum verið talin ósvinna að rjúfa frið jólanna og vopnaviðskipti þótt helgibrot. Það hefur meira að segja oft komið fyrir að svokallaðar víglínur hafa þurrk- ast út á jólahátíðinni og „fjand- mennirnir" haldið jól saman. En jólafriðarins hefur gætt víðar en meðal fjandmanna og á vígvöll- um. Hans gætir í þjóðlífi og fjöl- skyldulífi. Jólafriðurinn þurrkar út markalínur milli einstaklinga og þjóða, allir verða eitt í gleði og fögn- uði. Varla munum vér fyllilega gera oss ljóst, hversu mikið af jafnréttis- hugsjónum kristinna manna á rætur að rekja til jólafriðarins. Varla munum vér gjöra oss ljóst hversu mikið af lýðræðishugsjónum vorra tíma hafa komið fram beint eða ó- beint vegna þess sérkennilega hug- blæs, er kristnir menn öðlast á jóla- hátíðinni. Hugir manna eru felldir saman og samúð og samkennd skap- ast svo rík og sterk að vér finnum aldrei endranær til slíks. — Það var undir áhrifum þess konar hugblæs að Einar Kvaran orti á einni af jóla- hátíðum fyrri heimsstyrjaldar: „Því þó að vér aðhyllumst þrjózku og tál; þá þráir þig, Kristur hver ein- asta sál; frá sólskini suðrænna landa; til næðinga nyrztu stranda.“ — Á jólahátíðinni verða kristnir menn eitt. „Kærleiki þjóðarinnar er styrkur minn.“ Þetta kjörorð valdi einn af konungum Norðurlanda sér. Þau eiga við um jólahátíðina þessi orð: Styrkur hennar, hið sérkenni- lega við hana er kærleikur þjóða og einstaklinga, sem skyndilega brýzt fram eins og stíflur hafi þvingað hann áður, en nú megi hann stutta stund óþvingaður streyma. Friðar- 16 HLYNUR

x

Hlynur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.