Hlynur - 15.12.1961, Page 19

Hlynur - 15.12.1961, Page 19
Um jólamyndagátuna að þessu sinni gilda sömu reglur og undan- farin ár. Enginn greinarmunur er gerður á i og í, a og á, o og ó, e og é og u og ú. Verðlaun fyrir rétta ráðningu eru 500 krónur og berist tvær eða fleiri ráðningar réttar, verð- ur dregið um hver hnossið hlýtur. Ráðningarnar þurfa að hafa borizt blaðinu fyrir janúarlok n. k. Ný kjörbúð . . . . i Framhald á bls. 15. son, og teiknaði hann húsið. Það er tvær hæðir og kjallari og um 2.200 rúmmetrar að stærð. Búðarhæð er um 350 fermetrar, þar af er sjálf búðin um 230 fermetrar. Múrhúðun önnuðust Sigurður Hannesson og fé- lagar. Um búðarinnréttingu sá hús-- gagnaverkstæði Ólafs Ágústssonar, en teikningar að innréttingunni gerði Teiknistofa SÍS. Raflögn ann- aðist Raflagnadeild KEA, en hita- og kælilögn var gerð af Vélaverk- stæðinu Odda og Blikksmiðjunni. Um uppsetningu hreinlætislagna sá Gunnar Austfjörð, en málarameist- ari var Jón A. Jónsson. í búðinni vinna sex manns, og kjörbúðarstjóri er Torfi Gunnlaugs- son. Er hann yngstur útibússtjóra í þjónustu KEA, aðeins tvítugur að aldri. Þessi nýja, myndarlega verzlun er íbúum Glerárhverfis mikið gleðiefni og markar mikilvægt framfaraspor í verzlunarsögu Akureyrar. HLYNUR 19

x

Hlynur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.