Hlynur - 15.12.1961, Qupperneq 20
Árshátíð
SF/SÍS
Árshátíð Starfsmannafélags SÍS,
Reykjavík, var haldin á Hótel Borg
laugardaginn 18. nóvember s. 1. Var
þar fjölmenni viðstatt og skemmtu
menn sér hið bezta. Meðal gesta
voru margir kaupfélagsstjórar, en
fundi þeirra var þá nýlokið. Veizlu-
stjóri var Eysteinn R. Jóhannsson,
formaður Sf/SÍS.
Meðan setið var að borðum, fluttu
þeir Erlendur Einarsson, forstjóri
og Þórir Gröndal, fulltrúi mjög snjall-
ar ræður og var gerður að þeim hinn
bezti rómur.. Þá söng Guðmundur
Guðjónsson, óperusöngvari, nokkur
lög. Hámarki sínu náði hátíðin er
Erlendur Einarsson afhenti þeim
starfsmönnum, er unnið hafa hjá
Sambandinu í 25 ár og 40 ár, heiðurs-
merki úr gulli og silfri. Er nánar
skýrt frá þeim viðburði á annarri
síðu blaðsins. Fögnuðu hátíðargestir
handhöfum merkjanna ákaft, er þeir
gengu fyrir forstjóra.
Að athöfn þessari lokinni fór Árni
Tryggvason, leikari, með gamanþátt,
en síðan var dans stiginn af miklu
fjöri fram eftir nóttu.
Meðfylgjandi myndir tók Þorvald-
ur Ágústsson við afhendingu starfs-
aldursmerkjanna. Myndin á þessari
síðu er tekin í anddyri Hótel Borgar
af handhöfum merkjanna. Sitjandi
eru (talið frá vinstri): Helgi Péturs-
son, Hallgrímur Sigtryggsson, Pétur
Jónsson og Helgi Jónsson. Standandi
eru (talið frá vinstri): Ólafur Jóns-
son, Björn Gunnarsson, Ólafur Þór-
arinsson, Helgi Þorsteinsson, Her-
mann Þorsteinsson, Víglundur Guð-
mundsson, Metúsalem Stefánsson,
Sigurgrímur Grímsson, Ásgeir Jóns-
son, Einar Jónsson og Þórarinn Jó-
Framhald á bls. 23.
20 HLYNUR