Hlynur - 15.12.1961, Page 22
Aðalfundur
SF/SÍS,
Reykjavík
Aðalfundur Sf/
SÍS var haldinn í
samkomusal Sam-
bandshússins
mánudaginn 30.
október. Formað-
ur félagsins, Arn-
ór Valgeirsson,
setti fundinn og
skipaði Jón Þór Jó-
hannsson fundar-
stjóra og Árna
Reynisson fundar-
ritara. Var síðan
lesin upp fundargerð síðasta fundar
og þvínæst fluttar skýrslur stjórnar
og nefnda. Kom fram í þeim að starf-
semin hafði verið með líkum hætti
og undanfarin ár. Skálanefnd hafði
starfað af vaxandi krafti; voru alls
farnar í skálann 19 ferðir á árinu og
tók þátt í þeim um 200 manns.
Starfsemi íþróttanefndar hafði einn-
ig gengið með ágætum, en fátt var
tíðinda af starfssviði annarra
nefnda.
Eysteinn
Ekki urðu neinar umræður um
skýrslur og reikninga, var hvort
tveggja borið undir atkvæði og sam-
þykkt einróma.
Sveinn H. Valdimarsson tók þá tii
máls og flutti greinargott erindi um
Lífeyrissjóð SÍS, sögu hans og helztu
tímamót, tilgang og stöðu í dag. —
Þvínæst var gengið til kosninga og
kosið í stjórn og nefndir svo sem
hér segir:
Formaður:
Eysteinn R. Jóhannsson.
Stjórn:
Árni Reynisson,
Kristján Fjeldsted,
Sigrún Sigurjónsdóttir,
Þór S. Ragnarsson.
Varamenn:
Ragnar Sigurjónsson,
Vigfús Gunnarsson.
Skemmtinefnd:
Árni Reynisson,
Einar Kjartansson,
Guðrún Árnadóttir,
Guðrún Þorvaldsdóttir,
Ólafur G. Sigurðsson.
Varamenn:
Richard Sigurbaldason,
Geir Geirsson.
Skálanefnd:
Ragnar Sigurjónsson,
Framhald á bls. 31.
Árni Kristján Sigrún I*úr
22 HLYNUR