Hlynur - 15.12.1961, Síða 23
Kaupfélags-
stjóraskipti
á Hellissandi
Matthías Pétursson hefur nú látið
af kaupfélagsstjórn á Hellissandi og
gerst bókhaldari hjá Kaupfélagi
Rangæinga, Hvolsvelli.
Matthías er fæddur 22. ágúst, 1926
aS Skjaldarbjarnarvík í Strandasýslu.
Hann stundaði nám í héraðsskól-
anum að Reykholti og síðar í Sam-
vinnuskólanum, en þaðan útskrifaðist
hann vorið 1951. Dvaldi síðan um eins
vetrar skeið i Svíþjóð og sótti þá
meðal annars námskeið á Vár Gárd,
Matthías Einar
sænska samvinnuskólanum. Á miðju
ári 1952 gerðist hann kaupfélagsstjóri
hjá Kaupfélagi Hellissands og gegndi
Því starfi unz hann réðist til Kaup-
félags Rangæinga.
Kona Matthíasar er Kristín Þórar-
insdóttir frá Vík í Hegranesi, og eiga
Þau þrjú börn.
Við kaupfélagsstjórn á Hellissandi
hefur tekið Einar Guðbjartsson. Hann
er fæddur 11. júlí 1911 að Kollsvík
í Rauðasandshreppi. Stundaði nám
við héraðsskólann að Núpi 1929—30.
Vann ýmis störf til lands og sjávar
framan af ævi, en árið 1944 gerðist
hann kaupfélagsstjóri hjá Sláturfé-
laginu Örlygi, Gjögrum. Árið 1950
réðist hann til Kaupfélags ísfirðinga
sem útibússtjóri í Súðavík. Síðan
var hann um f jögurra ára skeið kaup-
félagsstjóri hjá Kaupfélagi Saurbæ-
inga og síðar útibússtjóri hjá Kaup-
félagi Stykkishólms að Vegamótum,
og þar var hann unz hann réðist tii
Hellissands.
Kona Einars er Guðrún Grímsdótt-
ir.
Árshátíðin . .
Framhald af bls. 20.
hannesson. Fjarstaddir voru tveir
handhafar silfurmerkja, þeir Harry
Frederiksen og Leifur Þórhallsson,
og veitti Jón Arnþórsson, fulltrúi
forstjóra, merkjunum viðtöku fyrir
þeirra hönd. Auk þeirra vantar á
myndina Skúla Ólafsson.
Efst á 21. síðu sést Erlendur Einars-
son, forstjóri SÍS, afhenda elzta
starfsmanni fyrirtækisins, Hallgrími
Sigtryggssyni, starfsaldursmerki
SIS úr gulli ásamt heiðurslaunum.
Neðar á þeirri síðu er mynd af tit-
ilsíðu gullbókarinnar, en í hana munu
skráð verða nöfn og æviágrip allra
þeirra, er gullmerki hljóta. Hliðstæð
titilsíða prýðir Silfurbók SÍS, sem
ætluð er 25 ára starfsmönnum.
HLYNUR 23