Hlynur - 15.12.1961, Síða 24
Óskar
Óskars drápa
syndara
Óskar Jónsson frá Vík, núverandi
fræðslufulltrúi Kaupfélags Árnes-
inga, er enn lítt þrotinn að kröftum,
þótt hniginn sé að aldri, hafandi nú
tvo um sextugt. Nýlega tók hann
sér fyrir hendur að læra sund og
stóðst þá þraut með prýði. Er hann
synti prófsprettinn, söfnuðust að
margir vinir og kunningjar og fögn-
uðu kappanum ákaflega, er hann
kom úr kafinu. Einn þeirra orti meira
að segja drápu í tilefni atburðarins
og flutti Óskari. Fer hún hér á eftir:
Nú skal hylla
hai knáan
laugar að loknu sundi.
Gekk glaður að námi,
naut aðstoðar
Harðar höfuðbjarta.
Bauðst þér fyrr
brattur hamar
þegar varst ungur að árum.
Lítt mun aldur
lamað hafa
lund og krafta karls.
Eftir ársdvöl
okkar meðal
ertu kynntur vel.
Heldur nú dag
hátíðiegan
hiidar gengur til.
Gekk til laugar
fastur í fasi
lagðir á langa braut.
Holskefiur risu,
horfðu sveinar
hugstola, er kappinn flaut.
Blésu stormar
úr báðum nösum,
brim um herðar svall.
Taugar spennast,
titrar loftsalur,
títt hann sundtök þreytir.
Biðu sveinar
með bleytu í munni,
skyldi seggur sigra?
Sundtök kná,
án sinadráttar,
fleyttu hal úr hafi.
Sjá hann kom
og sigur hafði,
íslands sanni sonur.
Læri aðrir
til leiks að ganga
líkt, svo vaxi við.
Að unnum sigri
upp skal horfa,
allra er marki að ná.
Óskar úr Vík
þig allir hyllum
árla, á nýjum degi.
Aguila.
24 hlynur