Hlynur - 15.09.1965, Qupperneq 3
SJÖTUGUR
varð nýlega Johan Jacobsen, starfsmaður hjá Gefjun
á Akureyri. Johan er fæddur 23. marz 1895 að Saur-
fjord í Noregi og voru foreldrar hans Jakob Ananias-
son og Johanna Johansdottir. Johan ólst upp hjá foreldrum sínum og
hyrjaði ungur að fást við sjómennsku, að hætti forfeðra sinna og stundaði
hana á ýmsum stöðum í Noregi allt til ársins 1923, að hann hélt til ís-
lands. Starfaði hann þar við síldarbræðsluna í Krossanesi, sem þá var
eign Norðmanna, á sumrum, en dvaldist heima í Noregi á vetrum. Árið
1929 fluttist Johan alkominn til íslands. Starfaði hann fyrsta árið hjá verk-
Framh. á bls. 15.
FIMMTUGUR
varð þann 21. maí s.l. Steingrímur
Sigurðsson, járnsmíðameistari hjá
Ullarverksmiðjunni Gefjun á Akur-
eyri. Steingrímur er fæddur að
Syðri-Vík í Vopnafirði, sonur hjón-
anna Sigurðar Guðjónssonar og
Magneu Sveinsdóttur, er þar bjuggu
þá. Hann ólst upp með móður sinni,
en hún varð ekkja, er hann var enn
á barnsaldri, og fluttist með henni
til Eyjáfjarðar 1920. Steingrímur hóf
nám í ketil- og plötusmíði hjá Stál-
smiðjunni í Reykjavík og lauk því
1937. Til Akureyrar fluttist Stein-
grímur árið 1938 og gerðist þá verk-
stjóri hjá Vélsmiðjunni Odda h.f.,
en stofnaði með fleirum Vélsmiðj-
Framh. á bls. 11.
SEXTUGUR
varð þann 2. apríl s.l. Ólafur Daníelsson klæðskera-
meistari hjá Saumastofu Gefjunar á Akureyri. Ólafur
er fæddur að Hvallátrum við Breiðafjörð, sonur hjón-
anna Daníels Jónssonar og Maríu Guðmundsdóttur, er
þá voru til heimilis að Hvallátrum, en ólst upp hjá
frænda sínum, Ólafi Bergsveinssyni og konu hans að
Hvallátrum. Ungur fór Ólafur á sjóinn og var nokkur
ár á ýmsum skipum hér við land unz hann hóf nám í
klæðskurði hjá Guðmundi Vikar í Reykjavík. Því námi
lauk hann árið 1928 og hélt sama ár til Kaupmannahafnar til frekara náms
Framh. á bls. 11,
hlynur 3