Hlynur - 15.09.1965, Qupperneq 4

Hlynur - 15.09.1965, Qupperneq 4
DÁNARFREGN Þann 7. marz s.l. andaðist á FjórS- ungssjúkrahúsinu á Akureyri Einar C. Jónsson, starfsmaður í Sútunar- deild Iðunnar á Akureyri. Einar var fæddur að Grundar- koti í Skagafirði þann 13. okt. 1911 og voru foreldrar hans hjónin Jón Sigurðsson og Oddný Hjartardóttir, er þar bjuggu þá. Hann ólst upp með foreldrum sínum í Skagafirði fram yfir tvítugsaldur, en fluttist þá með móður sinni og systrum til Akureyrar árið 1932. Hann vann fyrst allmörg ár að landbúnaðar- störfum í nágrenni bæjarins en réðst til Iðunnar árið 1941 og starf- aði þar næstum óslitið til dauða- dags. Einar var afkastamikill og laginn við öll störf, glaðsinna og prúður og ávann sér vináttu samstarfsmanna sinna og annarra er af honum höfðu kynni. Hann kvæntist ekki, en eignaðist eina dóttur, sem nú er gift kona á Akureyri. Árshátíð S/f SÍS Akureyri Árshátíð Starfsmannafélags SÍS á Akureyri var haldin í samkomusal félagsins 6. marz s.l. Hófst hún með borðhaldi, þar sem á borðum var framreiddur þorramatur eins og hann beztur getur verið. Formaður félagsins, Magnús J. Kristinsson, rafvirkjameistari, setti hátíðina með skörulegu ávarpi. Hvatti hann samkomugesti til að skemmta sér og öðrum og til prúð- mannlegrar framkomu. Hann kynnti og dagskráratriði og stjórnaði sam- komunni. Fyrsta atriði dagskrárinnar var að stjórnarformaður SÍS, Jakob Frí- mannsson, afhenti þrem mönnum silfurmerki SÍS fyrir 25 ára störf í þjónustu þess. Þakkaði hann þeim um leið vel unnin störf og ræddi nokkuð hvert atriði það væri, hverju fyrirtæki, að hafa menn svo lengi í þjónustu sinni og einnig fyrir starfsmennina sjálfa að starfa svo lengi hjá sama aðila. Þá tók til máls Arnþór Þorsteins- son, framkvæmdastjóri Gefjunar. Framh. á bls. 10. 4 hlynur

x

Hlynur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.