Hlynur - 15.09.1965, Side 5

Hlynur - 15.09.1965, Side 5
SILFURMERKI Árni Hermann Bogi Eins og fram kemur í frásögn af árshátíð Starfs- mannafélags SÍS á Akureyri, voru þar þrem starfs- mönnum í verksmiðjum SÍS á Akureyri afhent silf- urmerki sambandsins fyrir 25 ára starf í þjónustu þess. Þessir menn voru: Árni Indriðason, hjá Ullar- verksmiðjunni Gefjun, Hermann Vilhjálmsson, hjá sútunardeild Iðunnar og Bogi Pétursson hjá skó- gerðardeild Iðunnar. ÁRN! INDRIÐASON er fæddur að Birningsstöðum í Ljósavatnsskarði þann 2. október 1918, sonur hjónanna Indriða Þor- steinssonar og Steinunnar Sigurðardóttur, er síðar bjuggu lengi að Skógum í Fnjóskadal. Árni ólst upp hjá foreldrum sínum og vann að búi þeirra unz hann fluttist til Akureyrar árið 1938. Hann hóf störf hjá sútunardeild Iðunnar um haustið 1938 og starfaði þar nær óslitið til ársins 1948 að hann hóf störf hjá Ullarverksmiðjunni Gefjun, en þar hefir hann starfað síðan. Aðalstarf Árna hefir allan tím- ann verið akstur bifreiða. Kvæntur er Árni Fanneyju Svanbergsdóttur frá Akureyri. HERMANN VILHJÁLMSSON er fæddur að Hólsgerði í Ljósavatnshreppi 8. júní 1910 og voru foreldrar hans hjónin Vilhjálmur Friðlaugsson og Lísibet Indriðadóttir, er síðar bjuggu að Torfunesi í Köldukinn. Hermann ólst upp með foreldrum sínum, stundaði nám í Héraðsskólanum að Laugavatni og síðar í Bændaskólanum að Hvanneyri og lauk þaðan prófi árið 1935. Til Iðunnar réðst Hermann árið 1939 og hefir starfað þar óslitið síð- an. Verkstjóri í frágangsdeild hefir hann verið frá því 1946. Kona Hermanns er Aðalbjörg Sigurðardóttir frá Hróarsstöðum í Fnjóskadal. BOGI PÉTURSSON er fæddur á Eskifirði þann 3. febrúar 1925 sonur hjónanna Péturs B. Jónssonar og Sigurbjargar Pét- ursdóttur, síðar á Akureyri. Bogi fluttist til Akur- eyrar árið 1939 og hóf störf hjá Iðunni 18. ágúst það ár og hefir starfað þar óslitið síðan. Bogi hefir unnið öll algeng störf í verksmiðjunni en er nú verk- stjóri í strengingardeild. Kona Boga er Margrét Magnúsdóttir frá Akureyri. HLYNUR 5

x

Hlynur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.