Hlynur - 15.09.1965, Síða 6

Hlynur - 15.09.1965, Síða 6
UR LOGMALI PARKINSONS Úr kaflanum: Æðri fjdrmál eða mörk dvínandi áhuga Fólk, sem ber skyn á æðri fjár- mál er tvenns konar: Þeir sem eiga ógrynni auðs, og þeir, sem eiga bókstaflega ekki neitt. Raunverulegum milljóna- mæringi er milljón sterlingspunda skiljanlegur veruleiki. Stærðfræð- ingi, sem fæst við hagnýt efni, og prófessor í þjóðmegunarfræði (ef gert er ráð fyrir, að báðir svelti) er milljón sterlingspunda að minnsta kosti jafnmikill veruleiki og þúsund, því að hvoruga fjárhæðina hafa þeir nokkru sinni eignazt. Aftur er ver- öldin krök af fólki, sem er á milli þessara endimarka, ber ekkert skyn á milljónir, en er alvant því að hugsa í þúsundum, og það er þetta fólk, sem skipar flest fjármálaráð. Það leiðir aftur til þess fyrirbrigðis, sem þráfaldlega hefur verið veitt at- hygli, en til þessa ekki verið tekið til rannsóknar. Fyrirbrigði þetta mætti heita skitiríislögmál. í stuttu máli er það fólgið í því, að umræð- ur um hvert mál dagskrár taka tíma í öfugu hlutfalli við þá fjárhæð, sem málið varðar. Ef oss á að takast að komast eitt- hvað áleiðis með þessar rannsóknir, hljótum vér að virða að vettugi allt sem til þessa hefur verið lagt tii þeirra mála. Vér verðum að byrja frá grunni og gera oss fyrst af öllu ljóst, hvernig fjármálaráð starfar í raun og veru. Vegna almenns les- anda verður þeim vinnubrögðum lýst í leikritsformi þannig: Forseti: Við komum nú að níunda máli á dagskrá. Gjaldkeri fjármála- ráðs, herra McPhail, flytur skýrslu sína. Herra McPhail: Ráðsmenn hafa hér fyrir sér, herra forseti, lýsingu á fyrirhuguðum atómhlaða ásamt kostnaðaráætlun á fylgiskjali H með skýrslu undirnefndar. Eins og ráðs- menn sjá, hefur prófessor McFission staðfest uppdrátt og tilheyrandi greinargerð. Áætlaður heildarkostn- aður nemur 10.000.000 sterlingspund- um. Verktakar, þeir McNab & Mc- Hash, telja, að verki eigi að verða lokið í apríl 1963. Herra McFee, verkfræðilegur ráðunautur fjármála- ráðs, varar við að treysta því, að verki verði lokið fyrr en í október í fyrsta lagi. Þetta álit hans er stutt af dr. McHeap, hinum kunna jarð- eðlisfræðingi, sem bendir á að senni- lega sé nauðsynlegt að kanna nánara lægra enda lóðarinnar. Áætlun um aðalstöðvarhús hafa ráðsmenn sömu- leiðis fyrir sér á fylgiskjali IX. — og ljósritaður uppdráttur liggur á borðinu. Mér er ljúft og skylt að láta í té frekari fræðslu, ef ráðs- menn æskja þess. Forseti: Þakka yður, herra Mc- Phail, fyrir greinargóða lýsingu á gerðum áætlunum. Ég geri nú ráðs- mönnum kost á að láta í ljós skoð- anir sínar. Hér er nauðsynlegt að nema stað- ar og íhuga, hverjar séu líklegar skoðanir ráðsmanna. Gerum ráð fyr- ir, að þeir séu ellefu talsins, að for- seta meðtöldum, en framkvæmda- stjóra undanskildum. Af þessum ell- efu eru fjórir — að forseta með- töldum — sem órar ekki fyrir, hvað atómhlaði er. Af hinum vita þrír ekki, til hvers hann hentar. Af þeim, sem bera skyn á, til hvers hann er ætlaður, hafa einungis tveir hug- mynd um, hvað hann ætti að kosta. Annar þeirra er herra Isaacson, hinn er herra Brickworth. Báðir eru þess 6 HLYNUR

x

Hlynur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.