Hlynur - 15.09.1965, Side 10

Hlynur - 15.09.1965, Side 10
Jón Kristinn Sigtryggsson Fæddur 11. des. 1916 Dáinn 23. marz 1965 Þann 23. marz s.l lézt á FjórSungs sjúkrahúsinu á Akur eyri Jón Kristinn Sig tryggsson, starfsmað ur hjá Gefjun á Ak ureyri. Hann var fæddur að Halldórs stöðum í Eyjafirði 11 des. 1916 og voru for eldrar hans hjónin Sigtryggur Guðlaugs son og Sigríður Jóns dóttir, er bjuggu um langt skeið að Hall- dórsstöðum. Jón ólst upp hjá foreldrum sínum og vann að búi þeirra fram eftir aldri, en fluttist til Akureyrar og hóf störf hjá Gefjun árið 1943. Jón var hæglátur maður og lítt áberandi í margmenni, en traust- ur og farsæll starfs- maður meðan heilsan entist, en hann hafði átt við heiisubrest að striða um nokkurt skeið. Eins og títt var um sveitadrengi á hans aldri var hann ekki ríkur að fjár- munum, er hann fluttist úr föðurgarði, en með vinnufýsi og sparsemi hafði hann komið sér upp snotru húsi þar sem heimili hans stóð föstum fót- um. Jón var kvæntur Sigrúnu Gunnarsdótt- ur frá Fossvöllum og lifir hún mann sinn ásamt 5 börnum. PH. Ólafur Framh. af bls. 3. og dvaldist þar um eins árs skeið. Eftir heimkomu sína starfaði hann hjá fyrirtækinu Andersen & Lauth í Reykjavík unz hann réðst til Sauma- stofu Gefjunar, árið 1931, en þar hefir hann starfað óslitið síðan. Kvæntur er Ólafur Þóru Jónas- dóttur Franklín frá Akureyri og eiga þau einn son, uppkominn. Árshátíð Framh. af bls. 4. Gat hann þess í upphafi máls síns að þetta væri í fyrsta sinn, sem stjórnarformaður SÍS væri staddur á árshátíð starfsmanna verksmiðja þess og rakti síðan nokkuð störf Jakobs Frímannssonar í þágu sam- vinnuhreyfingarinnar og bað gesti að hylla hann, hvað og gert var á hinn hressilegasta hátt. Þá ræddi hann nokkuð viðhorf þau, er væru framundan í málum iðnaðarins. Að ræðu Arnþórs lokinni hófust atriði af hinu léttara tagi og var þar fyrst gamanþáttur fluttur af frú Kristínu Konráðsdóttur og tveim ungum stúlkum er hún hafði sér til aðstoðar. Fóru þær einnig með nokkrar gamanvísur um hina fyrir- ferðarmestu af starfsmönnum verk- smiðjanna, sem var mjög vel tekið. Þá skemmti Jón Gunnlaugsson úr 10 HLYNUR

x

Hlynur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.