Hlynur - 15.09.1965, Qupperneq 12
Afbrigðilegar útstillingar borga sig
Útstillingar eru tvímælalaust eitt mesta vandamál, sem verzl-
unarmenn eiga við að stríða, hérlendis sem og erlendis. Eftir-
farandi grein birtist nýlega í Counterpunch um þetta efni:
Segja má, að allt, sem við notum
í daglegu Iífi okkar, sé að meira
eða minna leyti háð síbreytilegum
kröfum tízkunnar. Verzlunarhættir,
skipulagning verzlana, innpökkun o.
s. frv. eru sannarlega ekki undan-
þegin þessari rás breytileikans, enda
ekki nema gott eitt um það að segja.
Því að breyting hefur góð áhrif á
verzlunina, hún kemur í veg fyrir
tilbreytingarleysi; tilbreytingarleysi
drepur áhuga, og áhugalaust fólk
nemur ekki einu sinni staðar til að
skoða, hvað þá að verzla.
Ahuga manna á vörunni er hægur
vandi að auka með útstillingum, ef
þær eru hentugar. Útstillingar er
mjög þægilegt að laga að byljum
breytinganna, því að þær eru sveigj-
anlegar og tímabundnar. Þessi að-
lögunarhæfileiki er einmitt einn
meginkostur útstillinga.
Við skulum til dæmis líta á, hversu
útstillingar hafa breytzt með smá-
söluverzluninni. Hér áður fyrri, þeg-
ar kjörbúðir voru tiltölulega fátið-
ar, þótti ganga guðlasti næst að
láta sér detta í hug að nota glugga
þeirra til útstillinga. Lægi gang-
stígur framhjá stórum glugga, þar
sem vel sæist inní hreina og þrifa-
lega verzlun, var það talið nægja.
Var þá hugmyndin, að verzlunin
sjálf væri ein allsherjar útstilling.
Hér að neðan sjáum við höfuðdrætti útstillingar í enskri búð. Það,
sem aðallega gefur þessari auqlýsingu gildi, er að hún er „sláandi" og
frábrugðin öðrum. Ef til vill má segja, að hún geri mikiar kröfur til
auglýsandans, en takist henni að draga athygli vegfarenda að verzl-
uninni, hefur hún náð tilgangi sínum og er sannarlega erfiðisins virði.
Sérstaklega athyglisvert er, að verðmiðunum er komið fyrir á áberandi
stöðum, án þess þeir skemmi „útsýni".
12 HLYNUR