Hlynur - 15.09.1965, Síða 14

Hlynur - 15.09.1965, Síða 14
Lögmál Parkinsons Framh. af bls. 7. og slétta úr samanvöfðum uppdrátt- um, hafa umræður um níunda dag- skrárlið tekið nákvæmlega hálfa þriðju mínútu. Fundi miðar greitt áfram. Sumir ráðsmanna eru ekki alls kostar ánægðir með sjálfa sig gagnvart níunda liðnum. Með sjálfum sér efast þeir um, að þeir hafi að fullu gætt skyldu sinnar. En það er orðið of seint að fátast meira í þessu hlaðamáli. Nú er þeim í mun að láta sjá, áður en fundi lýkur, að þeir séu með lífsmarki og fyigist með því, sem fram fer. Forseti: Tíunda mál á dagskrá: Hjólhestaskýli fyrir starfsfólk á skrifstofu. Kostnaðaráætlun hefur verið fengin frá Bodger & Wood- worm, sem takast á hendur að reisa skýlið fyrir 350 sterlingspund. Upp- dráttur og sundurliðuð áætlun ligg- ur frammi, herrar mínir. Herra Snakkur: Herra forseti. Þessi kostnaður er vissulega óhóf- legur. Ég tek eftir því, að þakið á að vera úr alúmíni. Mundi ekki asbest vera ódýrara? Herra Pjakkur: Ég er samþykkur herra Snakk varðandi kostnaðinn. En þakið ætti að mínu viti að vera úr galvaníseruðu járni. Ég er helzt á því, að skýlinu mætti koma upp fyrir 300 sterlingspund eða jafnvel enn minna. Herra Frakkur: Ég mundi vilja taka dýpra í árinni, herra forseti! Ég held, að segja megi, að of mik- ið sé látið eftir skrifstofufólki. Það, sem bagar, er sú staðreynd, að með dekri verður það aldrei gert ánægt. Næst heimtar það bíiskúra. Herra Pjakkur: Nei, ég get ekki stutt herra Frakk í þessu tilfelli. Ég tel, að þörf sé á skýlinu. En það er varðandi efni og kostnað . . . Umræður eru liðlega hafnar. Fjár- hæð, er nemur 350 sterlingspundum, er á skilningssviði allra. Allir geta séð fyrir sér hjólhestaskýli. Umræð- um er þess vegna haldið áfram í fjörutíu mínútur með það fyrir aug- um, að hugsanlegt sé að lækka kostnað um 50 sterlingspund. Ráðs- menn sitja loks hnakkakerrtir og finna til þess, að þeir hafi afrekað nokkuð. Forseti: Ellefti dagskrárliður: Hressing veitt á fundum Sameinaðr- ar velferðarnefndar, 35 skildingar á mánuði. Herra Snakkur: Hvaða hressing er fyrirhuguð við þessi tækifæri? Forseti: Kaffi, skilst mér. Herra Pjakkur: Og þetta nemur árlegum útgjöldum — látum sjá — 21 sterlingspundi. Forseti: Rétt. Herra Frakkur: Já, herra forseti, satt að segja efast ég um, að þessi útgjöld séu réttlætanleg. Hversu iengi standa þessir fundir. Nú hefjast jafnvel enn hvassari umræður. Hugsa má sér ráðsmenn, sem kunna ekki að greina á milli asbests og galvaníseraðs járns, en allir kannast við kaffi — hvað það er, hvemig á að laga það, hvar á að kaupa það — og hvort yfirleitt á að kaupa það. Umræður um þenn- an dagskrárlið taka fundarmenn fimm stundarfjórðunga, og orða- skiptum lýkur með því, að málið er tekið af dagskrá og lagt fyrir framkvæmdastjóra að afla frekari gagna fyrir næsta fund. Á þessu stigi máls væri ástæða til að inna eftir því, hvort enn minni fjárhæð — 10 sterlingspund eða 5 sterlingspund — mundi taka fjár- málaráð hlutfallslega lengri tíma. Það er tilgátuályktun vor, að til séu mörk, þar sem endaskipti verða á tilhneigingu ráðsmanna, þeir álykti, að fjárhæðin skipti þá ekki lengur máli. Rannsókn á eftir að leiða í ljós, hvenær þau endaskipti eiga sér 14 HLYNUR

x

Hlynur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.