Hlynur - 15.09.1965, Síða 15
stað(. Umskipti frá 20 sterlings-
punda umræðu (fimm stundarfjórð-
ungar) og til 10.000.000 sterlings-
punda umræðu (hálf þriðja mínúta)
eru vissulega höttótt. Skemmtilegra
væri að geta ákvarðað nákvæmlega
þau mörk, þegar umskipti gerast.
Meira en það, því að það mundi
hafa hagnýtt gildi. Gerum til dæm-
is ráð fyrri því, að mörk dvínandi
áhuga reyndust samsvara 15 sterl-
ingspunda fjárhæð, þá mundi gjald-
kera, sem vanhagaði um samþykkt
fyrir 25 sterlingspunda fjárveitingu,
vera innan handar að setja hana á
dagskrá sem tvær fjárveitingar —
aðra 14 sterlingspunda, hina 12 sterl-
ingspunda — og með því fengi hann
sparað mikinn tíma og ærna fyrir-
höfn.
Eins og málum er komið, getur
aðeins orðið um að ræða bráða-
birgðaniðurstöðu, en nokkur ástæða
er til að ætla, að mörk dvínandi
áhuga svari til fjárhæðar, sem ráðs-
menn eru viðbúnir að tapa í veðmáli
eða mundu skrifa sig fyrir á sam-
skotalista í guðsþakkaskyni. Frekari
rannsóknir, er færu fram á veðreiða-
mótum eða í meþódistakirkjum,
kynnu að endast langt til lausnar
þessu viðfangsefni. Miklu meiri erf-
— Hefurðu séð hundinn, sem ná-
grannarnir voru að fá sér?
iðleikum yrði bundið að ákvarða hin
efri mörk, þegar fjárhæð verður of
há til þess að þykja umræðuverð.
Eitt er augljóst, að umræðutíma-
lengd samsvarandi 10 sterlingspunda
og 10.000.000 sterlingspunda fjárhæð
gæti hæglega orðið hin sama. Hálfr-
ar þriðju mínútu tímalengd, sem
hér hefur verið numið staðar við, er
engan veginn nákvæm, en bersýnilega
er sérstök tímalengd — einhvers
staðar á milli tveggja mínútna og
hálfrar fimmtu mínútu — sem næg-
ir jafnt hinum allra stærstu sem
hinum allra smæstu fjárhæðum.
Margt er hér órannsakað, en ekki
fer hjá því, að lokaniðurstaða, þeg-
ar birt verður, mun reynast stór-
merk og eiga fyrir sér að farsælast
öllu mannkyni til beinna nytja.
Axel
Framh. af bls. 2.
SÍS, Hvassafell og var á því í 8 ár.
Þá var hann einn af fyrstu starfs-
mönnum Mjólkursamlags KEA og
vann þar í allmörg ár. Lögregluþjónn
á Akureyri var hann í 3 ár og af-
greiðslumaður á Bifreiðastöð Oddeyr-
ar á Akureyri í 7 ár. Til Iðunnar
réðst Axel árið 1963 og hefir starf-
að þar síðan.
Kvæntur var Axel Jakobínu Jósefs-
dóttur, sem látin er fyrir allmörg-
um árum, og eignuðust þau 2 börn.
Johan
Framh. af bls. 3.
smiðjunni í Krossanesi en réðst til
Gefjunar árið 1930 og hefir starfað
þar síðan, óslitið, og mun því vera
einn af elztu starfsmönnum þar.
Kvæntur var Johan Kristjönu Guð-
mundsdóttur, sem látin er fyrir all-
mörgum árum. Eignuðust þau 5 börn
og eru 4 þeirra á lífi, öll uppkomin.
HLYNOR 15