Hlynur - 15.09.1965, Side 16
13. árg. 9. tbl. 1965.
að forsíðumyndin að þessu sinni er af
Asgeiri Sverrissyni. Hann er sonur
hins landskunna bónda, Sverris í
Hvammi. Ásgeir er starfsmaður Sam-
vinnutrygginga, en jafnframt all-
kunnur harmonikuleikari. Hefur hann
veitt forstöðu danshljómsveit hér í
Reykjavík, en eins munu margir minn-
ast hans sem stjórnanda Harmoniku-
þáttar Ríkisútvarpsins d síðastliðnum
vetri.
að sjöunda iðnstefna samvinnufélaganna
var haldin fyrir ekki alllöngu á Akur-
eyri. Iðnstefnunnar er minnst í Sam-
vinnunni, 9.—10. tbl. og verður gerð
grein fyrir henni og birtar myndir í
næsta tölublaði HLYNS.
að í næsta tbl. munum við einnig geta
um ferð kaupfélagsstarfsmanna á vit
frænda okkar og vina Norðmanna og
Dana. Reisa þessi var gerð nú í sum-
ar og tóku þátt í henni 13 starfsmenn
ýmissa kaupfélaga úti á landi, auk
fararstjóra Páls H. Jónssonar.
að Danmörk er 43.000 km2 að stærð,
íbuar tæpar 5 milljónir og félagsmenn
innan danska Samvinnusambandsins
FDB n. 1. 600.000.
að árið 1956 keypti FDB lóð í Hersted-
vester. Glostrup, sem er 310.000 m2 að
stærð og ætluð fyrir framtíðarbygg-
*C7
uita ...
ingar Sambandsins. Búið er að byggja
birgðastöð með tilheyrandi skrifstof-
um og sýningarskálum, sölumiðstöð
fyrir verksmiðjur Sambandsins og
skrifstofubyggingu með fundarsölum
og matsölum, sem til samans eru
65.600 m2.
að Svíþjóð er 445.000 km2 að stærð og
íbúar n. 1. 7,7 milljónir. Árið 1964
voru kaupfélagsmenn í Svíþjóð
1.298.500 og hafði fjölgað frá árinu
áður um 27.000.
að Svíþjóð er 445.000 km2 að stærð og
félög verið sameinuð í eitt með að-
alstöðvar í Málmey.
að Finnland er 377.000 km2 að stærð og
íbúar n.l. 4.7 millj. Kaupfélágsmenn
í Finnlandi eru rúmlega 1 milljón,
sem skiptast á milli tveggja álíka
stórra samvinnusambanda. í öðru eru
einkum bændur og íbúar smærri borga,
í hinu verkamenn og íbúar stærri
borga.
að Noregur er 324.000 km2 og íbúar n.l.
3.8 millj. Flestöll kaupfélög í Noregi
eru í landssambandi, N.K.L. Félags-
menn eru n.l. 330 þúsund
að samvinnublaðið norska, Várt Blad, er
60 ára nú í haust og er gefið út í
233.000 eintökum.
HLYNUR
BLAÐ SAMVINNU-
STARFSMANNA
er gefinn út af Sambandi ísl. samvinnufélaga, Starfsmanna-
félagi SÍS og Félagi kaupfélagsstjóra. Ritstjóri er Páll
H. Jónsson. Auk hans eru í ritnefnd Árni Reynisson
og Gunnar Sveinsson, Keflavík. Ritstjórn og afgreiðsla eru
hjá Fræðsludeild SÍS, Sambandshúsinu, Reykjavík. Verð: 75.00
kr. árgangurinn, 7.60 kr. heftið. Kemur út mánaðarlega.