Hlynur - 15.01.1966, Qupperneq 15
Kaupfélagsstj.fundur
Framh. af bls. 11.
un og þjálfun þeirra, sem síðar yrðu
falin trúnaðarstörf á vegum kaup-
félaga og annarrar samvinnustarf-
semi.
I þessu sambandi er rétt að geta
þess, að á þessu ári er von á að
hingað til lands komi 1 heimsókn
Axel Schou, starfsmaður hjá danska
samvinnusambandinu, sem sérstak-
lega vinnur að því að koma á starfs-
mannaskiptum á milli kaupfélaganna
á Norðurlöndum. Mun hann dveij-
ast hér á landi um hálfs mánaðar
skeið og ræða þessi mál á fundum
hjá starfsmannafélögum samvinnu-
hreyfingarinnar.
Auk þeirra mála, sem hér hefur
verið minnzt á, var á fundinum rætt
um möguleika á því að auka þátt-
töku unga fólksins í samvinnufélög-
unum. Höfðu framsögu um það mál
þrír kaupfélagsstjórar, Björn Stef-
ánsson á Egilsstöðum, Ólafur Sverr-
isson, Blönduósi og Gunnar Sveins-
son, Keflavík. Bar margt á góma í
þessu sambandi, m. a. að rétt væri
að auka hlutdeild ungs fólks í stjórn
félaganna og efna til fræðslu- og
skemmtifunda við hæfi ungmenna.
Margt fleira kom til orða á fund-
inum, þótt hér sé ekki rúm að rekja
það.
Að fundi loknum sátu fundarmenn
kvöldverðarboð hjá Sambandinu í
Sambandshúsinu við Sölvhólsgötu. Á
sama tíma bauð Margrét Helgadóttir,
forstjórafrú, þeim kaupfélagsstjóra-
frúm, sem komið höfðu til borgar-
innar með mönnum sínum, til kvöld-
verðar á heimili sínu. A-ð kvöldverði
loknum hittust allir gestirnir í Sam-
bandshúsinu og skemmtu sér við
söng og dans fram yfir miðnætti.
Samvinnuskólinn . . .
Framh. af bls. 6.
listamanninn og verk hans skoðuð.
Um kvöldið var farið í Þjóðleikhús-
ið og horft á Járnhausinn, eftir þá
Jónas og Jón Múla Árnasyni. Heim
var haldið um hádegi 4. nóv.
Myndirnar á 6. síðu eru frá heim-
sókn skólans til Ásmundar. Á ann-
arri þeirra getur að líta listamann-
inn sjálfan ásamt Herði Haraldssyni,
kennara, en á hinni er hópur nem-
enda samankominn í skjóli við „Hall-
gerði í Bláfelli." Hinar tvaer mynd-
irnar eru frá heimsókninni í Ármúla.
— Höfundur myndanna er Kári Jón-
asson.
gluggum eru engar venjulegar út-
stillingar, heldur eru vörurnar settar
á sérstaka vagna og stillt upp innan
gluggans.
í búðinni vinna fjórar stúlkur, og
deildarstjóri þar er Erla Jónsdóttir,
sem starfað hefur hjá kaupfélaginu
nær óslitið síðastliðin fimmtán ár,
þar af sem deildarstjóri í sjö ár.
Auk hinnar nýju búðar rekur fé-
lagið nú fjórar matvöruverzlanir,
sem allar eru kjörbúðir, veiðarfæra-
og byggingarvöruverzlun, vefnaðar-
vöruverzlun og raftækja- og leik-
fangaverzlun, auk þriggja kjörbúða-
bíla, sem annast þjónustuna við þau
hverfi, þar sem engar búðir eru. Eru
allar helztu matvörur seldar í bíl-
unum, en félagið varð fyrst allra
fyrirtækja til að innleiða notkun
þeirra hér á landi.
Á afmælisdaginn var opnaður á
vegum kaupfélagsins nýr fundarsal-
ur á efstu hæðinni í húsi félagsins
að Strandgötu 28, þar sem skrifstof-
ur þess eru. Salurinn verður notað-
ur til ýmiss konar félagsstarfa, m.
a. fær hið nýstofnaða starfsmanna-
félag kaupfélagsins þar húsnæði fyr-
ir fundi og samkomur.
HLYNUR 15