Hlynur - 15.05.1970, Page 3
FORSÍÐAN: Frií Reycfarjirtfi.
minnsta húsið, þar sem slátrað er
á sjötta þúsund fjár.
Ef við höldum svo áfram með
landbúnaðarafurðirnar, þá rekur
félagið mjólkursamlag, sem er stað-
sett á Egilsstöðum. Þar eru nú 147
innleggjendur, og móttekið magn
s.l. ár var 1.900 þús. lítrar, sem
kemur af Héraði og sunnan af Fá-
skrúðsfirði og Eskifirði. Þessi
mjólk er seld í nærliggjandi þorp,
þ. e. Seyðisfjörð, Reyðarfjörð,
Eskifjörð, Fáskrúðsfjörð og allt
suður á Stöðvarfjörð, og einnig til
Norðfjarðar, þegar þar vantar
mjólk. Líka hefur félagið rekið
brauðgerð á Egilsstöðum s.l. eitt
og hálft ár, og virðist hún vel stað-
sett hér í sambandi við sendingar
á brauðum með mjólkurbílunum
út um sveitirnar og í þorpin. Auk
mjólkursölunnar annast mjólkur-
samlagið framleiðslu á skyri og
smjöri, og úr undanrennunni er
framleitt kasein. Af mjólkinni hef-
ur ekkert verið sent í aðra lands-
hluta, en.da hefur hún ekki gert
mikið meir en að duga til að anna
eftirspurninni, og aðeins hefur bor-
ið á því, að mjólk vantaði á haust-
in. Mjólkin er hér seld í eins lítra
plastpokum og í tíu lítra pappa-
kössum, en þeir eru sérstaklega
þægilegir í sambandi við flutning-
ana niður á firðina og eins fyrir
bátana.
Þá má nefna það, að félagið rek-
ur trésmíðaverkstæði á Egilsstöð-
um, þar sem unnin er öll algeng
vinna í sambandi við húsabygging-
ar, svo sem gluggar, hurðir, inn-
réttingar o. s. frv., auk þess sem
það sér líka um viðhald húsa KHB,
breytingar á búðum þess og annað
þess háttar. Sömuleiðis er að nefna
bílaverkstæði félagsins á Reyðar-
firði, en KHB rekur 20 bíla, sem
staðsettir eru á Reyðarfirði, og er
verkstæðið fyrir þá fyrst og
fremst. Þessir bílar flytja m. a.
áburð, fóðurvörur og aðrar þunga-
vörur þaðan og upp á Hérað, auk
þess sem þeir eru í uppskipunum
og öðru sem þörf krefur. Af þess-
Nokkrar byggingar KHB á Egilsstöðum. Efst er mjólkursamlagið, þá slátur- og
jrystihúsið, síðan verzlunar- og skrifstofuhús félagsins og neðst er kjörbúðin.
HLYNUR 3