Hlynur - 15.05.1970, Blaðsíða 4

Hlynur - 15.05.1970, Blaðsíða 4
um bílaflota eru 2 snjóbílar og 3 olíubílar, en hitt vörubílar. Annar snjóbíllinn tekur allt að 2]/2 tonn af flutningi og hefur verið í vöru- flutningum á milli Reyðarfjarðar og Egilsstaða og einnig í mjólkur- flutningum yfir til Seyðisfjarðar, þegar venjulegum bílum er ófært á þessum leiðum. Þá er að nefna kjötvinnslu KHB á Reyðarfirði, sem selur í búðir félagsins og auk þess svolítið um nærliggjandi firði. Við kaupum lít- ið að af kjötvörum, nema þá helzt niðursuðu, enda erum við að mestu sjálfum okkur nógir um daglegar kjötvörur, svo sem fars, bjúgu og pylsur, en aftur framleiðum við ekki salöt og þess háttar. Líka er rekið gistihús í elzta húsi kaupfélagsins, sem er á Reyð- arfirði. Það er hreint og hlýtt og verðið hóflegt, svo að þessi þjón- usta hefur líkað vel. Þar eru 30 rúm og matsala, og er þetta eink- um mikilvægt í sambandi við slátr- unina á haustin, en þá getur að- komufólk fengið húsnæði og fæði þar. Á Reyðarfirði rekur félagið einn- ig hraðfrystihús, en þar voru fram- leiddir um 12 þúsund kassar af fiski til útflutnings á s.l. ári. Þetta er heldur nýlegt hús og hefur verið bætt tækjum til að geta unnið á sem fullkomnastan máta. Þar var tekið á móti fyrstu grálúðunni, sem kom á land hér s.l. vor, og var hún unnin þar í samráði við Sjávarafurðadeild SÍS. Síðan kom svo allur grálúðuaflinn s.l. sumar, sem alls nam um 6 þúsund tonnum yfir landið. Við tókum á móti þess- um fyrsta afla af Snæfugli frá Reyðarfirði, en skipstjórinn á hon- um, Bóas Jónsson, hefur sýnt þessu máli mikinn áhuga, og við bindum miklar vonir við það að fá slíkan grálúðuafla aftur í vor og sumar. Það nýjasta í starfsemi KHB á Reyðarfirði er hins vegar fóður- blöndunarstöðin, en á s.l. ári setti félagið þar upp tæki frá Eng- landi, sem mala og blanda korn og fóðurvörur og eru algerlega sjálf- virk, þannig að ekki þarf nauðsyn- lega nema einn starfsmann við stöðina. Við höfum tekið laust korn í 4—5 skipti síðan, en aðstaða er fyrir hendi til að taka þar inn allt að 300 tonn í einu. Stöðin skilar sams konar blöndu og fóðurblönd- unarstöð SÍS í Þorlákshöfn, og er hún seld á sama verði frá okkur og þaðan. — Er Reyðarfjörður þá aðal flutningamiðstöðin fyrir félags- svæðið? — Já, Reyðarfjörður er helzta uppskipunarhöfnin fyrir Hérað, og KHB rekur nokkuð umfangsmikla skipaafgreiðslu þar. í sambandi við tilkomu nýju Heklu og vörugrind- anna, sem SÍS hefur nýlega tekið í notkun, hefur og sýnt sig, að lík- lega aukast vöruflutningar á sjó mikið í framtíðinni á kostnað bíl- flutninga. Þegar hitt strandferða- skipið verður einnig komið í notk- un, tel ég vafalaust, að sjóleiðin verði notuð miklu meir til vöru- flutninga en tíðkazt hefur síðustu árin, enda er hún ódýrari, því að þar getur munað allt að 3 kr. á kílóið. Auk þess er svo hið geysi- mikla hagræði, sem vörugrindurn- ar skapa, því að með því móti snertir mannshöndin ekki á vörun- um allt frá því að þær fara frá vöruafgreiðslu í Reykjavík og þar til þær eru e. t. v. komnar inn í búðina hér á Egilsstöðum. — Nú er mikið rætt um aukna uppbyggingu iðnaðar á Austur- landi og sérstaklega hér á Egils- stöðum. Verður hún e. t. v. eitt af framtíðarverkefnum félagsins? — Já, það gæti vel verið. En við erum ekki þeinir fram- kvæmdaraðilar í núverandi iðnað- aruppbyggingu á Egilsstöðum, þótt við séum henni hins vegar vel- viljaðir. Næst framundan hjá fé- laginu er aftur á móti það stór- verkefni að reisa nýtt sláturhús hér á Egilsstöðum, en það sýnist óhjákvæmilegt, ef framhald á að verða á kjötútflutningi, að sinnt verði óskum og kröfum erlendra kaupenda. í áætlun sláturhúsa- nefndar, sem starfaði á vegum Framleiðsluráðs landbúnaðarins, er eins og kunnugt er gert ráð fyrir uppbyggingu nýrra sláturhúsa um allt land í líkingu við hið nýja sláturhús í Borgarnesi, og þar er áætlað, að slíkt hús verði reist á Egilsstöðum á árunum 1973—74. Það hús yrði væntanlega reist af KHB gegn helmings óafturkræfu framlagi úr ríkissjóði, og er gert ráð fyrir, að það verði reist í sam- ræmi við það sem þessi áætlun gerir ráð fyrir. Aðrar framkvæmd- ir eru ekki fyrirhugaðar í nánustu framtíð á vegum kaupfélagsins, nema hvað að sjálfsögðu verður 4 HLYNUR

x

Hlynur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.