Hlynur - 15.05.1970, Qupperneq 6

Hlynur - 15.05.1970, Qupperneq 6
úr verður örugglega mjög mikil hagræðing. Þetta sparar líka mjög mikið að því er áhrærir fjárfest- ingar í vörubirgðum, en byggðar- lagið í Borgarfirði er lítið, telur aðeins um 300 manns, og nú fær það afgreitt eftir hendinni af birgðum KHB á Egilsstöðum, þann- ig að þetta fyrirkomulag felur í sér mikinn sparnað að því er snert- ir þörfina á að liggja með vörur. Að því er viðvíkur verzluninni á Seyðisfirði, þá höfum við farið nokkuð út í þetta sama, einkum varðandi ýmsar smávörur, og hef- ur það reynzt bæði spara peninga og létta á birgðahaldi. Reynslan þar er þannig svipuð og varðandi Borgarfjörð, en hins vegar hefur árangurinn þar ekki orðið eins góður, og stafar það af því, að í verzlun KHB á Seyðisfirði eru svo til eingöngu seldar matvörur, al- gengustu búsáhöld og þess háttar vörur, sem seldar eru með lágri álagningu, en eru aftur ýmsar dýr- ar í sölu, svo sem kjötvörur. Þess vegna eru brúttó tekjurnar ekki nógu miklar, og á síðasta ári sýndi þessi verzlun dálítinn halla. Þó tel ég engan vafa á, að þetta fyrir- komulag sé hagkvæmt frá við- skiptalegu sjónarmiði, en hins veg- ar geta átthagasjónarmið verið önnur, enda er auðvelt að setja sig í spor félagsmanna, sem hafa skipt við félag sitt í tugi ára og þurfa svo að horfa upp á, að nafn annars félags sé komið á verzlunina. — Hefur komið til álita, að önnur nærliggjandi kaupfélög sam- einuðust KHB með einhverjum hætti? — Nei, það hefur ekki verið rætt um frekari beina sameiningu félaganna hér á Austfjörðum, enda óvíst, hvort það mál er tímabært að sinni, en hins vegar má benda á annað í því sambandi, en það er, að nýtilkomnar nýjungar í bók- haldi hafa að ýmsu leyti breytt við- horfunum hvað þetta snertir. KHB tók upp nýtt bókhaldskerfi á árinu 1988, þ. e. fór með bókhald sitt inn í skýrsluvélar SÍS, og er því hagað þannig, að við höfum gatara hér á Egilsstöðum, og er efni fylgiskjal- anna fært hér inn á gataspjöld, sem síðan eru send til Reykjavík- ur til færslu, og voru þær færslur s.l. ár alls um 70 þúsund. Áður en þetta kom til sögunnar var upp- gjörið ekki búið hjá okkur fyrr en í endaðan maí, en núna mátti sjá heildarútkomuna í endaðan febrú- ar, svo að þetta skapar mikið hag- ræði. Hjá kaupfélögunum er það frumskilyrði, að bókhaldið sé fært sem mest jafnóðum, og hér hefur þetta auðveldað okkur mikið í sambandi við yfirtöku og rekstur verzlananna í Borgarfirði og Seyð- isfirði, en þó er líklega mesta bylt- ingin með tilkomu þessa fyrir- komulags í sambandi við útreikn- inga á sláturafurðum og vaxtaút- reikninga. í stuttu máli má segja, að þetta sé ómetanlegt að því er það varðar að hafa yfirsýn yfir rekstur fyrirtækisins. — Hvað er um rekstursafkomu KHB að segja? — Við erum réttu megin við strikið í heildarútkomunni, því að árið 1969 sýndi nokkurn tekjuaf- gang, sem ekki hefur verið s.l. tvö ár. Það má taka fram, að þetta stafar ekki af hækkaðri álagningu, heldur fyrst og fremst af fjórum meginatriðum: í fyrsta lagi tókst okkur að minnka rýrnun, sem var orðin of mikil. í öðru lagi hafði félagið söluaukningu um 27 milj. kr. á árinu án hækkunar á launa- kostnaði. í þriðja lagi sýna þjón- ustufyrirtæki fálagsins betri af- komu og skila meiri tekjum en áður. í fjórða lagi er svo það, sem á verulegan þátt í útkomunni, en það er, að við fengum allveruleg- an afslátt af viðskiptum frá SÍS og fyrirtækjum þess, sem munar fé- lagið verulegu. — Og hverjar telur þú framtíð- arhorfur smásöluverzlunarinnar? — Ég er ekki of bjartsýnn á framtíðina, því að ég tel, að við fáum of lítið fyrir okkar vinnu við að veita þessa þjónustu og að það þurfi því að rýmka um verðlags- ákvæðin. Líka er ég uggandi vegna söluskattshækkunarinnar, en við verðum oft að lána vörur það lengi, að greiðslan er ekki komin, þegar félagið þarf að greiða sölu- skattinn, þannig að þá erum við raunverulega að borga ríkissjóði peninga, sem við erum ekki búnir að fá greidda. Það er m. a. af þess- ari ástæðu, sem söluskatturinn kemur langsamlega harðast niður á kaupfélögunum, vegna reiknings- viðskiptanna, þegar þau þurfa að lána bændunum vörur fram til þess tíma, þegar afurðir þeirra koma inn til greiðslu. — Og að lokum Þorsteinn, ef við víkjum lítillega að málefnum Egilsstaðakauptúns, hver eru helztu framtíðarverkefnin að því er það snertir? — íbúar Egilsstaðakauptúns eru nú rétt rúmlega 700, og þeir byggja afkomu sína að langmestu leyti á ýmis konar þjónustustörf- um. Það hefur verið rætt um það Framhald á bls. 15. Kjörbíll KIIB d Egilsstöðum. 6 HLYNUR

x

Hlynur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.