Hlynur - 15.05.1970, Page 8
Úr SALATBLAÐINU
„Hláturinn lengir lífið“ er gam-
all málsháttur, og meðal frænda
okkar í Noregi virðist á hann trúað
ekki síður en hér. f tímaritinu
Personalbladet, sem er starfs-
mannablað norska samvinnusam-
bandsins NKL, birtist í hverju
hefti ein síða, sem ber yfirskriftina
Salatblaðið. Þar birtist efni í létt-
um dúr, sem sett er upp í formi
starfsmannablaðs í einhverju ótil-
teknu kaupfélagi. Þar eru starfs-
mennirnir með afbrigðum hug-
myndaríkir og uppfinningasamir,
en því miður eru hinar stórkost-
legu hugmyndir þeirra ekki alltaf
jafn árangursríkar í framkvæmd.
Afkastamestu uppfinningamennirn-
ir í hópi þeirra eru Abrahamsen
deildarstjóri og Kristiansen verzl-
unarráðunautur, og stendur raunar
í nokkru stríði á milli þeirra. Við
leyfum okkur að endursegja hér
eina af sögunum um Abrahamsen
og afrek hans, og auk þess látum
við fylgja með nokkrar tillögur,
sem fram hafa komið í blaðinu um
sterkar og sláandi söluaðferðir.
OPNUNARDAGURINN
Opnunardagur nýju verzlunar-
innar varð mjög viðburðaríkur og
stafaði það ekki sízt af því, að
Abrahamsen deildarstjóri var við-
staddur.
Abrahamsen, sem var hrókur alls
fagnaðar í hátíðahöldunum, var
stöðugt að gefa það í skyn, að
hann lumaði á einhverju óvenju-
legu, og þegar nokkuð var liðið á
hátíðina, birtist sendimaður með
dularfullan flatan pakka undir
hendinni. Þá lét Abrahamsen
sprengjuna springa: Hann hafði
fundið upp fyrstu vörugeymsluna,
sem leggja mátti saman, þannig
að ekki færi meira fyrir henni en
venjulegum hveitipoka! „Við vitum
öll, að þörfin fyrir vörugeymslu-
rými er sívaxandi,“ sagði hann, og
hélt svo áfram: „Uppfinning mín,
sem að fullu tekin í sundur gefur
80 fermetra geymslurými, er svo
lítil, þegar hún hefur verið tekin
saman, að hver sem er getur borið
hana undir hendinni."
Eins og gefur að skilja vakti
þetta athygli, svo að fólkið rýmdi
til á gólfinu og sýningin hófst.
Hinn ákafi Abrahamsen útskýrði
kosti uppfinningar sinnar fyrir
áhugasömum áhorfendum. Stjórnin
var sérstaklega áhugasöm, og það
sem einkum vakti athygli, var stál-
fjaðrakerfi, sem tengdi saman veru-
legan fjölda af plötum úr ryðfríu
stáli og myndaði ásamt þeim burð-
arásinn í geymslurýminu. Þetta
fjaðrakerfi starfaði þannig, að væri
ýtt á svo nefnda „lykilplötu,“ þá
lagðist allt saman á 3 sekúndum.
Þannig var hægt að leggja vöru-
geymsluna saman á örskömmum
tíma og gera hana litla og meðfæri-
lega.
En á meðan Abrahamsen var að
sýna áhugasömum stjórnarmeðlim-
um hvernig útlits væri inni í miðri
vörugeymslunni, átti sér hins vegar
stað óhugnanlegt slys. Einn af
gestunum steig í ógáti á lykilplöt-
una. Til allrar hamingju lagðist
geymslurýmið ekki algjörlega sam-
an á stundinni, en aftur á móti
hljóp það í baklás, þegar það var
komið niður í stærðina 2 rúmmetr-
ar. Inni í þessum „kassa“ voru 12
aldraðir stjórnarmenn og einn upp-
finningamaður. Starfsmenn kaup-
félagsins gerðu allt sem í þeirra
valdi stóð til að opna kassann, og
nutu til þess örvæntingarfullrar
munnlegrar aðstoðar frá hinum
innilokaða uppfinningamanni, en
allt án árangurs.
Loksins var ákveðið að fresta
frekari aðgerðum, en áður var
kassinn fluttur upp í kaffistofuna.
Áður en veizlugestirnir héldu heim
var þeim tilkynnt, að af hagkvæmn-
isástæðum hefði verið ákveðið að
taka Abrahamsen inn í stjórnina
fyrst um sinn.
Fátt er svo með öllu illt, að ekki
boði nokkuð gott.
Stjórnin okkar, sem eins og
greint hefur verið frá er lokuð
inni í einni af uppfinningum Abra-
hamsens, hefur haft það hroðalegt.
Fyrir skömmu bárust af því fréttir,
að hún hefði óvænt sett nýtt met
í troðningi. Gamla metið var 18
manns inni í einum Volkswagen,
en sé tekið tillit til þess, að í hon-
um er bæði fram- og aftursæti, þá
dæmist afrek stjórnarinnar meira.
Það eru einnig góðar vonir um,
að hún geti sett nýtt met í lengsta
óslitna stjórnarfundinum í heim-
inum. Það hefur líka komið í ljós,
að stjórnin hefur sjaldan verið
eins samstillt til starfa og einmitt
nú. Svo að notaður sé gamall
brandari, þá er hreint og beint
of þröngt til að hægt sé að skipta
um skoðun.
Núna eru allar tillögur afgreidd-
ar samstundis. Tveir af stjórnar-
mönnunum liggja að vísu klemmd-
ir með andlitið niður, svo að þeir
geta ekki greitt atkvæði, en þeir
s HLYNUR