Hlynur - 15.05.1970, Blaðsíða 13
sem hefðu orðið á fasteignareikn-
ingi. Þá ræddi hann starfsemi fé-
laganna á sviði almannatengsla og
sömuleiðis um endurtryggingar,
sem sýnt hefðu tap undanfarin ár.
Taldi hann nauðsynlegt fyrir
tryggingafélögin að eiga þess kost
að ávaxta sjóði sína að hluta í er-
lendri mynt, ef þau ættu að geta
haldið áfram að taka að sér endur-
tryggingar erlendis frá, vegna hins
óstöðuga efnahagskerfis þjóðarinn-
ar, og greindi hann svo frá, að
stjórn félaganna hefði þessi mál
nú til athugunar.
Þá flutti framkvæmdastjóri Sam-
vinnutrygginga og Andvöku, Ás-
geir Magnússon, skýrslu sína.
Ræddi hann rekstur félaganna og
las og skýrði reikninga þeirra. Gat
hann þess, að lögð hefði verið á-
herzla, á öflun nýtrygginga og á
það að veita tryggingatökum sem
bezta þjónustu og öryggi. Einkum
hefði verið lagt á það kapp að fá
tryggingatakana til að hækka
tryggingar sínar til samræmis við
hækkandi verðlag, en iðgjalda-
taxtar hefðu verið óbreyttir, nema
í heimilis- og ökutækjatryggingum.
Þá ræddi hann einstaka trygginga-
flokka, og um ökutækjatryggingar
gat hann þess sérstaklega, að ekki
yrði hjá því komizt að hækka enn
iðgjöldin í þeim tryggingum.
Taldi hann, að varðandi þann
tryggingaflokk væri um að ræða
mjög óheillavænlega þróun, sem
allir, jafnt umferðaryfirvöld sem
ökumenn, yrðu að sameinast um
að vinna á móti, og yrði það bezt
gert með sameiginlegu átaki allra
hlutaðeigandi um að bæta um-
ferðarmenninguna. Þá gat hann
þess, að nýr eignaliður, Áhættufé
vegna ökutækjatrygginga, væri nú
í fyrsta skipti á reikningum félags-
ins, og væri um að ræða 2 milj. kr.
áhættufé, sem tryggingafélög þau
sem hefðu með höndum trygging-
ar ökutækja væru samkvæmt nýrri
reglugerð skyldug til að afhenda
dómsmálaráðuneytinu til geymslu,
og 192 þús. kr. áhættufé í vörzlu
Sambands ísl. tryggingafélaga sam-
kvæmt samkomulagi milli bifreiða-
tryggingafélaganna um greiðslur
slysabóta vegna slysa á fólki af
völdum óþekktra ökutækja. Taldi
hann bæði þessi atriði vera hin
merkustu nýmæli. Þá ræddi hann
um starfsemi Andvöku á árinu og
gat þess m. a., að miðað við ið-
gjöld væri Andvaka nú stærsta líf-
tryggingafélagið á landiau. Sala
verðtryggðu líftrygginganna hefði
gengið allvel á árinu og betur en
1968, og á árinu hefði einnig verið
hafinn undirbúningur að sölu hóp-
líftrygginga, en sú tegund líftrygg-
inga hefði á undanförnum árum
rutt sér mjög til rúms erlendis,
einkum á Norðurlöndum, og tals-
verður áhugi virtist nú vera fyrir
slíkum tryggingum hér á landi.
Á fundinum voru gerðar nokkr-
ar breytingar á samþykktum Sam-
vinnutrygginga, og í stjórn félag-
anna voru endurkosnir þeir Ing-
ólfur Ólafsson kfstj. Reykjavík og
Ragnar Guðleifsson kennari Kefla-
vík. Fyrir voru í stjórninni þeir
Erlendur Einarsson forstjóri, for-
maður, Jakob Frímannsson kfstj.
og Karvel Ögmundsson frkvstj.
Á fundinum voru ennfremur
gerðar ýmsar samþykktir, m. a. um
skattamál tryggingafélaga, og um
umferðarmál, þar sem m. a. var
bent á nauðsyn þess að halda uppi
öflugum áróðri og fræðslu um um-
ferðaröryggismál og einnig lýst
áhyggjum vegna hækkandi verð-
lags á viðgerðum og varahlutum í
bifreiðar og stjórn félaganna falið
að vinna að úrbótum á því sviði.
Loks gerði fundurinn ályktun, þar
sem lýst var ánægju með starf-
semi klúbbanna Öruggur akstur,
og félagsmálafulltrúa Samvinnu-
trygginga, Baldvin Þ. Kristjáns-
syni, var þakkað sérstaklega fyrir
mikið og óeigingjarnt starf í þeirra
þágu.
Að kvöldi fundardagsins héldu
Samvinnutryggingar hóf í sam-
komuhúsinu Hvoli, þangað sem
boðið var allmörgum gestum úr
Árness-, Rangárvalla- og Vestur-
Skaftafellssýslum. Þar var verð-
launagripurinn Silfurbíll Sam-
vinnutrygginga afhentur í annað
skipti, e:i hann er veittur fyrir
mikil og góð störf að umferðarör-
yggismálum. Hlaut hann að þessu
sinni Lýður Jónsson fyrrverandi
yfirvegavinnuverkstjóri á Vest-
fjörðum, en hann tók fyrstur
manna upp þann sið að skipta veg-
um í tvennt á blindhæðum og í
blindbeygjum. í hófinu minntist
Erlendur Einarsson og sérstaklega
nýlega afstaðins hálfrar aldar af-
mælis Kf. Rangæinga á Hvolsvelli,
en þar voru mættir sem sérstakir
heiðursgestir fimm fyrrverandi
kaupfélagsstjórar félagsins, og
hylltu samkomugestir þá sérstak-
lega. - e.
HLYNU.l 13