Hlynur - 15.05.1970, Blaðsíða 16
Skólaslit
Samvinnu-
skólans
Samvinnuskólanum að Bifröst var
slitið hinn 3. maí s.l. f skólaslita-
ræðu Guðmundar Sveinssonar
skólastjóra kom m.a. fram, að nem-
endur hefðu lengst af í vetur ver-
ið 78, þar af 40 í 1. bekk og 38 í 2.
bekk. Einnig gat hann þess, að
gengið hefði verið frá inntöku
nemenda í skólann fyrir skólaárið
1970—71 þegar í októbermánuði s.l.,
svo að skólinn væri þegar fullskip-
aður næsta vetur, bæði 1. og 2.
bekkur. Síðan sagði skólastjóri:
„Hefur þetta aldrei áður gerzt í
sögu skólans, enda ljóst, að þörf
er að veita miklu fleiri ungmenn-
um aðstöðu til framhaldsmenntun-
ar í skólum viðskiptalífsins en hægt
er að veita við núverandi aðstæður
í hinum tveim menntastofnunum,
Verzlunarskóla íslands og Sam-
vinnuskólanum Bifröst. Virðist aug-
ljóst, að skólarnir þurfi að vera
fleiri cg staðsettir víðar á landinu.
Pram'haldsdeildir gagnfræðaskól-
anna leysa ekki þennan vanda. Þær
eru ekki hugsaðar né starfræktar
sem sérskólar, heldur undirbún-
ingsskólar, er veita almenna mennt-
un, að vísu með það fyrir augum
að beina athygli og áhuga nem-
enda að ákveðnum sérnámsbraut-
um og búa þá þann veg undir sér-
skólanám." Þá gat skólastjóri einn-
ig um ýmsar nýjungar í námsefni,
m.a. námskeið í búðastörfum og för
nemenda til Reykjavíkur, þar sem
Útskrifaðir nemendur Sam
þeir störfuðu um tíma í ýmsum
kjörbúðum, og einnig fræðslu í
stjórnun og sölufræöi.
Þá lýsti skólastjóri úrslitum
prcfa. Hæst í 1. bekk urðu Kristín
Eygló Einarsdóttir með 8,89 og
Þórður Hilmarsson með 8,74. f 2.
bekk hlutu 5 nemendur ágætis-
einkunn, eða þeir Jón Þór Hallsson,
Akranesi 9,26, Kristinn Snævar
Jónsson, Blönduósi 9,18, Þorbjörg
Svanbergsd., Borgarnesi 9,17, Rann-
veig Guðmundsdóttir, Rvík 9,08 og
Guðmundur Pétursson, Reykjavík
9,00. Bókfærslubikarinn hlaut Guð-
mundur Pétursson, Reykjavík, verð-
launVerzlunarmannafélags Reykja-
víkur fyrir beztan árangur í vélrit-
un fékk Sigurður E. Einarsson,
Reykjavík, og viðurkenningu frá
þýzka sendiráðinu fyrir hæfni í
þýzku hlutu þau Þorbjörg Svan-
bergsdóttir, Borgarnesi, Guðmund-
ur Pétursson, Reykjavík, Þórdís
Jóna Kristjánsdóttir, Keflavík og
Kristinn Snævar Jónsson, Blöndu-
ósi. Samvinnustyttuna fyrir kunn-
áttu í samvinnusögu fékk Jón Þór
Hallsson Akranesi, cg Félagsstytt-
una, fyrir frábær störf að félags-
málum, hlaut Jakob Björnsson, for-
maður skólafélagsins veturinn 1969
— 70. Skóladúxinn, Jón Þór Halls-
son, fékk einnig sérstök verðlaun
frá skólanum fyrir framúrskarandi
námsárangur, jafnframt verðlaun-
um frá íslenzkukennara skólans,
vinnusltólans vorifí 1970
Sncrra Þorsteinssyni, fyrir þann
sérstæða árangur að hljóta eink-
unnina 10 bæði í árs- og prófeink-
unn. Þá tilkynnti skólastjóri einnig,
að tveimur efstu nemendum á burt-
fararprófi að þessu sinni hefði þeg-
ar verið tryggður aðgangur að fram-
haldsnámi við Verzlunarháskólann
í Kaupmannahöfn, cg hefðu for-
ráðamenn samvinnusamtakanna
þegar veitt þeim hvorum um sig
nokkurn fjárhagsstyrk til námsfar-
arinnar.
Við skólaslitin mættu að venju
allmargir fulltrúar eldri nemenda,
eg auk þess var viðstaddur sr.
Sveinn Víkingur, en hann var
skólastjóri í Bifröst, er þeir nem-
endur, sem nú minntust 10 ára
brautskráningar sinnar, luku prófi.
Af hálfu 10 ára nemenda talaði Geir
Geirsson endurskoðandi, og færðu
þeir skólanum að gjöf málverk af
sr. Sveini Víkingi, málað af Hall-
dóri Péturssyni. Af hálfu 25 ára
nemenda talaði Birgir Þórhallsson
frkvstj., og færðu þeir skólanum
mikla peningagjöf, er renna skal í
Minningarsjóð Jónasar Jónssonar
fyrrum skólastjóra og konu hans.
Við skólaslitin lék Rögnvaldur
Sigurjónsson einnig einleik á slag-
hörpu, og fjölmennur kór nemenda
scng undir stjórn Guðjóns Pálsson-
ar söngstjóra frá Borgarnesi.
H L Y N U R
Blað um samvinnumál
5. tbl. 18. árg.
maí 1970
Hlynur er gefinn út af Sambar.di íslenzkra samvinnufélaga, Starfsmannafélagi SÍS og Félagi
kaupfélagsstjóra. Ritstjórar eru Sigurður A. Magnússon (ábm.) og Eysteinn Sigurðsson. Auk
þeirra eru í ritnefnd Ragnar Jóhannesson og Gunnar Sveinsson. Ritstjórn og afgreiðsla eru
hjá Fræðsludeild SÍS, Sambandshúsinu, Reykjavík. Verð kr. 125.00 árgangurinn, kr. 15.00 heftið.
Kemur út mánaðarlega. — Prentun: Prentsmiðjan Edda hf.
16 HLYNUR