Fréttablaðið - 05.03.2019, Qupperneq 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —5 4 . T Ö L U B L A Ð 1 9 . Á R G A N G U R Þ R I Ð J U D A G U R 5 . M A R S 2 0 1 9
Létt fargjöld og Klassísk
fargjöld innanlands.
Bókanlegt: 6. og 7. mars
Ferðatímabil: 1. maí til 30. sept.
Notaðu kóðann: SUMAR19
NEY TE NDUR Meir ihluti lands-
manna er andvígur því að slakað
verði á reglum um innf lutning á
ferskum matvælum samkvæmt
könnun sem Zenter rannsókn-
ir vann fyrir Fréttablaðið. Flestir
sem svöruðu sögðust mjög andvígir
slíkri tilslökun eða 34,4 prósent en
frekar andvígir eru 14,8. Alls segj-
ast því 52 prósent andvíg tilslökun
slíkra reglna en rúm 32 prósent
ýmist mjög eða frekar fylgjandi
henni.
„Ef þessi andstaða byggir á því
að fólk kjósi frekar íslenskt kjöt en
innf lutt þá deili ég þeim skilningi
og skil mætavel þá afstöðu. En ef
hún byggir hins vegar á spurning-
um um matvælaöryggi og vernd
búfjárstofna þá tel ég að það þurfi
að koma betur á framfæri niður-
stöðum sérfræðinga um þau atriði,“
segir Kristján Þór Júlíusson, sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra.
Könnunin var send á könnunar-
hóp Zenter rannsókna, 18 ára
og eldri um land allt, dagana
28. febrúar og 1. mars. Úrtakið var
3.100 manns og svarendur voru
1.441 eða 46 prósent. Svörin voru
vigtuð eftir aldri, kyni og búsetu.
Samkvæmt niðurstöðum hennar
er andstaðan mun meiri á lands-
Fleiri á móti
innflutningi á
fersku kjöti
Rúm 52 prósent eru andvíg tilslökun á reglum um inn-
flutning á ferskum matvælum samkvæmt nýrri könn-
un. Ráðherra skilur að fólk kjósi íslenskt kjöt en koma
þurfi niðurstöðum sérfræðinga betur á framfæri.
byggðinni en á suðvesturhorni
landsins og andstaða kvenna er
meiri en andstaða karla. Stuðn-
ingur við innf lutning eykst með
menntunarstigi fólks og auknum
tekjum. Stuðningur við tilslökun
reglna er mestur meðal þeirra sem
styðja Viðreisn en minnstur meðal
Framsóknarmanna.
Þeir sem Fréttablaðið ræddi við,
segja rangar upplýsingar og jafn-
vel hræðsluáróður hafa stjórnað
umræðunni um innf lutning á mat-
vælum og niðurstöðurnar endur-
spegli þá umræðu. – aá / sjá síðu 6
Pétur Alan Guðmundsson, kaupmaður í Melabúðinni, heldur hér á fati hlöðnu saltkjöti. Í dag er sprengidagurinn
en þá þykir við hæfi að belgja sig út af söltuðu lambakjöti og súpu úr hálf baunum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
n Hlynntur 32,1
n Hvorki né 15,6
n Andvígur 52,2
✿ Afstaða til innflutnings
VIÐSKIPTI Vegna bágrar lausafjár-
stöðu hefur WOW air neyðst til að
slá á frest mótframlagsgreiðslum
í lífeyris- og séreignarsparnað
síðustu þrjá mánuði. Í svari Svan-
hvítar Friðriksdóttur, upplýs-
ingafulltrúa fyrirtækis-
ins, v ið f y r irspur n
Fréttablaðsins segir
að gengið verði frá
greiðslum í þess-
um mánuði.
„ W O W a i r
he f u r ve r ið í
góðum samskipt-
um við lífeyris-
og séreignarsjóði.
Gengið verður frá
greiðslum í þessum
m á nu ð i . St a r f s f ól k
hefur verið upplýst um stöðuna,“
segir í svari Svanhvítar. Þar er
enn fremur tekið fram að aðeins
sé um tafir að ræða hvað varðar
mótframlag vinnuveitanda. Ekki
hafi orðið tafir á greiðslu
hvað hlut starfsmanna
varðar.
Um er að ræða
greiðslur vegna
nóve m b e r o g
desember síðasta
árs auk janúar
þessa árs en þær
eru allar komnar
fram yf ir ein-
daga. Gjalddagi
vegna greiðslna
febrúar er ekki runn-
inn upp. – jóe / sjá síðu 4
WOW frestar mótframlagi