Fréttablaðið - 05.03.2019, Síða 2
Hæg N eða breytileg átt og bjart
með köflum, en él á stöku stað.
Hiti um eða yfir frostmarki
sunnan heiða en 0 til 7 stiga frost
annars staðar. SJÁ SÍÐU 14
Komu dauðvona álft til bjargar
VIÐSKIPTI Verslanir sem selja bún-
inga fyrir öskudaginn hafa fengið
fyrirspurnir um búninga í ætt við
þá sem hljómsveitin Hatari klæð-
ist. Hljómsveitin, sem keppir fyrir
Íslands hönd í Eurovision í maí
næstkomandi, hefur vakið mikla
athygli fyrir óhefðbundinn klæðnað
sem einkennist af ólum, latexi og
göddum.
„Við höfum alveg fengið fyrir-
spurnir,“ segir Einar Arnarson í
Hókus Pókus á Laugaveginum. „Við
erum alveg að selja út af þessu. Augn-
linsur, gadda og dótarí. Það er alveg
verið að spyrja.“
Valgerður María Gunnarsdóttir í
Partýbúðinni í Faxafeni segir óskap-
lega lítið um Hatara-tengdar fyrir-
spurnir í aðdraganda öskudagsins.
„En við erum alveg undir það búin.
Við eigum alltaf eitthvað. Svartar og
hvítar linsur, gaddaólar og svartar
gasgrímur. Ég á líka ljóshærðar sítt-
að-aftan hárkollur. Það er alltaf hægt
að bjarga sér.“
Verslunin Adam og Eva, sem hefur
líkast til hvað mesta reynslu í sölu á
búningum í ætt við Hatara, kannast
ekki við neina aukningu á fyrir-
spurnum á slíkum búningum. Þar á
bæ er ekki gert ráð fyrir aukningu á
búningasölu fyrir öskudaginn.
„Mér finnst það nú ólíklegt, þetta
er svona fullorðinsbúð, við seljum
ekki föt á börn þannig að við erum
ekki mikið að höfða til þeirra,“ segir
Eva í Adam og Evu.
„Það er þó gaman að sjá fjöl-
breytni í búningum og ef sala-
okkar eykst í kjölfarið þá fögnum
við því.“ – ab
Margir forvitnir
um Hatara-leður
5-4
°C 1-2°C
20
°C
1-2
°C
0-1
°C
4BORGARADAGUR
HEILBRIGÐISMÁL Fjöldi bænda
leggst gegn því að heimild dýra-
lækna til reksturs lyfjasölu verði
felld úr lögum. Frestur til að gera
athugasemdir í samráðsgátt við
fyrirhugaðar breytingar á lyfja-
lögum rann út í gær.
Meðal þess sem frumvarpsdrög-
in fela í sér er að verðlagning dýra-
lyfja og lyfjasölurekstursheimild
dýralækna verði felld brott.
Telja bændur að með þessari
breytingu muni verð á dýralyfjum
hækka og bændur hugsa sig tvisvar
um hvaða dýralæknir verði fyrir
valinu þegar meðhöndla þarf sjúkt
dýr í skyndi.
Einnig muni breytingin fela í sér
að lengri tíma tekur að fá nauð-
synleg lyf þar sem apótek séu oft
í talsverðri fjarlægð frá heimilum
bænda. Biðlað er til stjórnvalda
að endurskoða fyrirhugaða breyt-
ingu til að tryggja dýravelferð í
landinu. – jóe
Bændur ósáttir
við ný lyfjalög
HÖRGÁRSVEIT Mikil uppbygging
mun eiga sér stað í Hörgársveit í
Eyjafirði á næstu árum en gert er
ráð fyrir að fjórfalda íbúatölu þétt-
býlisins í bæjarfélaginu. Sveitar-
félagið nýtur góðs af nálægð við
Akureyri og hefur stækkað mikið
á síðustu árum.
Snorri Finnlaugsson, sveitar-
stjóri Hörgársveitar, segir mikinn
hug í sveitarfélaginu til að stækka
og með því efla þjónustu við íbúa á
svæðinu. „Þetta eru um 100 íbúðir
sem við ætlum að byggja. Þá áætl-
um við að það muni fjölga um 300
til 400 í sveitarfélaginu á næstu
árum,“ segir Snorri. „Íbúarnir eru
um 600 í dag og því erum við að
horfa til þess að íbúar verði í lok
þessarar uppbyggingar svona rétt
um 1.000, eitthvað rétt tæplega.
Hörgársveit varð til við sam-
einingu Hörgárbyggðar og Arnar-
neshrepps árið 2010. Áður höfðu
Sk r iðu h reppu r, Glæ sibæja r-
hreppur og Öxnadalshreppur
sameinast í Hörgárbyggð í upp-
hafi aldarinnar. Þéttbýli hefur á
síðustu árum verið að myndast
norðan Akureyrar, í landi Hörgár-
sveitar, og búa nú um 100 manns í
þéttbýlinu sem kennt hefur verið
við Lónsbakka.
Nú stendur einmitt til að stækka
það töluvert. „Með þessari aukn-
ingu erum við því að fjórfalda
þéttbýliskjarnann okkar. Það
verða nokkur viðbrigði þegar þétt-
býlið okkar fer úr 100 manns og
upp í 400 á tiltölulega fáum árum,“
segir Snorri.
Sveitarfélögin í Eyjafirði hafa
á síðustu árum aukið með sér
samstarf um ýmsa þætti. Snorri
segir það mikilvægt að samskipti
sveitarfélaganna séu góð en segist
ekki hafa skoðun á því hvort þurfi
að sameina sveitarfélögin.
Sveitarfélagið hefur ætíð verið
þannig saman sett að langstærstur
hluti íbúa hefur búið á lögbýlum
í sveitarfélaginu en nú gæti það
farið að breytast. „Með þessum
breytingum gæti þetta jafnast eitt-
hvað. Nú erum við hins vegar að
skoða að stækka við leikskólann
á næstu árum því líklegt þykir
að börnum muni fjölga á næstu
árum,“ bætir Snorri við.
sveinn@frettabladid.is
Mikil uppbygging í
Hörgársveit fyrirhuguð
Þéttbýlið við Lónsbakka gæti stækkað gríðarlega á næstu árum. Íbúafjöldi í
Hörgársveit, sem nú er tæplega 600, gæti hækkað í tæplega eitt þúsund á tiltölu-
lega fáum árum. Gert er ráð fyrir að 100 íbúðir verðir byggðar á næstu árum.
Frá fyrstu skóflustungunni. Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri ásamt
sveitarstjórnarfulltrúum í Hörgársveit. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRGÁRSVEIT
Öskudagsbúningurinn í ár?
Með þessari aukn-
ingu erum við því
að fjórfalda þéttbýliskjarn-
ann okkar. Það verða
nokkur viðbrigði.
Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri
Sérfræðingar Náttúrufræðistofnunar losuðu áldós úr goggi álftar í gær eftir að ábending barst frá Lindu Hrönn Eggertsdóttur, íbúa í Urriðaholti.
„Hún var búin að vera með þessa áldós pikkfasta í allavega viku ef ekki meira,“ segir Linda Hrönn í samtali við Fréttablaðið. Álftin var við dauðans
dyr þegar liðsmenn Náttúrufræðistofnunar komu á staðinn en er nú í góðum höndum í Húsdýragarðinum og braggast vel. FRÉTTABLAÐIÐ/LINDA
5 . M A R S 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð