Fréttablaðið - 05.03.2019, Blaðsíða 4
Fáðu blað dagsins í tölvupósti
kl. 5.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista Frétta-
blaðsins á www.frettabladid.is/
nyskraning. Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
HEILBRIGÐISMÁL Valtýr Stefánsson
Thors, sérfræðingur í barnalækn
ingum, segir að foreldrar 11 mánaða
barns sem greindist með mislinga
smit um helgina eigi mikið hrós
skilið fyrir hvernig þau brugðust við.
Talið er að smit barnsins megi
rekja til smitbera sem kom til
landsins frá Filippseyjum þann
14. febrúar síðastliðinn. „Foreldrar
barnsins eiga mikið hrós skilið.
Þau höfðu haft barnið heima allan
þennan tíma, ekki farið með það í
daggæslu áður en það verður lasið.
Mjög sterkur leikur hjá þeim. Svo
þegar það kemur á Barnaspítalann
á laugardaginn þá er enginn í snert
ingu við barnið eða nánu samneyti.
Enginn á biðstofunni og enginn
í sama herbergi, þannig að smit
hættan var mjög lítil,“ segir Valtýr.
Mislingar eru veiru sjúk dómur
sem er afar smitandi eftir að ein
kenni koma fram. Sjúk dómurinn
getur verið hættu legur og valdið
dauða, en er mildur í f lestum til
fellum. Í kringum 10 prósent barna
sem smitast geta fengið al var lega
fylgi kvilla. Erfitt er að bera kennsl
á mislinga fyrr en það birtast ein
kennandi útbrot.
„Manni bregður í brún en á sama
tíma er maður búinn að vera að bíða
eftir þessu. Það eru mislingafaraldr
ar úti í Evrópu og víðar, það var bara
tímaspursmál hvenær þetta myndi
gerast,“ segir Valtýr. Hann segir
Barnaspítalann nokkuð vel undir
búinn fyrir utan að það vantar betri
aðstöðu til að taka á móti sýkingum
sem bera með sér mikla smithættu.
Börn eru bólu sett fyrir mislingum
við 18 mánaða aldur og aftur 12 ára.
Valtýr telur ekki ástæðu til að endur
skoða það fyrirkomulag enn sem
komið er, mikilvægt sé þó að bólu
setja börn undir 18 mánaða áður en
þau ferðast til staða þar sem faraldur
er í gangi. Miðað við stöðuna í dag sé
það nánast hvar sem er utan land
steinanna.
Metfjöldi mislingatilfella greindist
í Evrópu í fyrra. Í ágúst höfðu 41 þús
und smitast samanborið við 24 þús
und allt árið þar á undan. Aðspurður
hvort það vaxandi fyrir bæri meðal
foreldra í Bandaríkjunum og Evr
ópu að láta ekki bólusetja börnin sín
stefni íslenskum börnum í lífshættu
segir Valtýr svo vera. „Já. Það er ein
faldlega þannig.“ arib@frettabladid.is
Segir foreldrana eiga mikið
hrós skilið fyrir viðbrögðin
Bólusett er fyrir mislingum við 18 mánaða aldur. Valtýr hvetur foreldra til að fresta því ekki. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Fimm mislingasmit á þremur árum
Síðastliðin þrjú ár hafa mislinga-
smit ítrekað komið upp um borð
í flugvélum sem haft hafa við-
komu hér á landi, smit á árunum
2016 til 2019 eru orðin fleiri en á
árunum 1996 til 2016.
l Ágúst 2016. Mislingar greindust
í barni sem millilenti hér á landi
á leið frá Kanada til Englands.
Einn óbólusettur Íslendingur
veiktist sem var í sömu vél.
l Mars 2017. Níu mánaða gamalt
barn veiktist við heimkomu
frá Taílandi. Tvíburabróðir
barnsins veiktist svo hálfum
mánuði síðar hér á landi. Bræð-
urnir voru óbólusettir vegna
ungs aldurs.
l Október 2017. Íslendingur sem
dvaldist í Bangladess veiktist
eftir heimkomu. Hann var
bólusettur gegn mislingum
sem gerði það að verkum að
hann fékk aðeins væg einkenni.
l Sumarið 2018. Tvö mislinga-
smit voru staðfest um borð
í vélum sem millilentu hér á
landi á leið yfir Atlantshafið.
Engir Íslendingar smituðust.
l 14. febrúar 2019. Smitberi
kemur til Íslands frá Filipps-
eyjum.
l 2. mars 2019. Ellefu mánaða
barn greint með mislinga á
Barnaspítala Hringsins.
Ellefu mánaða barn
greindist með mislinga
um helgina. Barnalæknir
segir foreldrana eiga hrós
skilið fyrir viðbrögðin.
Barninu var haldið
heima og önnur börn
voru ekki í smithættu.
SPRENGIDAGUR
KJARAMÁL Bifreiðahlunnindi for
stjóra Landsvirkjunar, Harðar
Arnarsonar, hækkuðu úr 87 þúsund
krónum í tæpar 220 þúsund krónur
á mánuði í fyrra og heildarlauna
kostnaður hans fer því úr rúmum
3,2 milljónum í tæpar 3,5 milljónir.
Landsvirkjun útvegar forstjóran
um bifreið samkvæmt starfskjörum
hans og eru hlunnindin metin sam
kvæmt reglum Ríkisskattstjóra.
Í fyrra var ákveðið að skipta út
13 ára gömlum Land Cruiser 100
sem forstjórinn hafði til afnota og
fékk Hörður í staðinn nýjan Audi
Q7 etron dísil/rafmagnstvinn
lúxusjeppa. Kaupverð hans var 10,6
milljónir í desember 2017 og gamli
jeppinn seldur á rúmar fjórar millj
ónir á móti. Kostnaður Landsvirkj
unar við skiptin nam því tæpum
6,6 milljónum samkvæmt upplýs
ingum frá fyrirtækinu.
Nýrri og dýrari bíll þýðir að
kostnaður vegna bifreiðahlunn
inda hans hækkaði sömuleiðis.
Fréttablaðið óskaði eftir sundur
liðun á greiðslum til forstjórans en
í nýbirtum ársreikningi félagsins
er tekið sérstaklega fram að grunn
laun Harðar hafi ekki hækkað síðan
hann fékk umdeilda 58 prósenta
launahækkun á einu bretti 1. júlí
2017. Hins vegar má sjá í ársreikn
ingnum að samtala launa og hlunn
inda hækkaði milli ára. Þau svör
fengust hjá Landsvirkjun að þessa
hækkun milli ára mætti rekja til
hærri bifreiðahlunninda forstjór
ans vegna nýja bílsins og einhvers
gengismunar, en Landsvirkjun gerir
upp í dollurum.
Grunnlaun forstjóra Lands
virkjunar eru því eftir sem áður
3.207.294 krónur frá því í júlí 2017
þegar stjórnin taldi sig þurfa að
efna ráðningarsamning Harðar og
hækka launin. – smj
Nýr lúxusjeppi hækkaði hlunnindi
Kjör forstjóra Landsvirkjunar komust
í hámæli á síðasta ári vegna ríflegrar
launahækkunar sem hann hafði
hlotið árið áður. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Audi Q7 e-tron dísil/rafmagns-
tvinnbíll er glæsilegur jeppi.
KJARAMÁL Málflutningur fór fram
í gær máli Samtaka atvinnulífsins
(SA) gegn Eflingu stéttarfélagi fyrir
Félagsdómi. SA höfðuðu mál gegn
Eflingu vegna fyrirhugaðs verkfalls
hreingerningafólks næstkomandi
föstudag. Samkvæmt upplýsingum
frá Halldóri Benjamín Þorbergs
syni, framkvæmdastjóra SA, er
niðurstaða dómsins væntanleg á
miðvikudaginn.
Bæði er þess krafist í kröfum SA
að verkfallið verði dæmt ólögmætt
og að Efling verði dæmd til að greiða
sekt í ríkissjóð.
Spurður hvort hann hafi tilfinn
ingu fyrir niðurstöðu dómsins segir
Halldór í samtali við Fréttablaðið að
samtökin myndu aldrei fara þessa
leið ef þau væru ekki viss í sínu máli.
Í gær hófust atkvæðagreiðslur hjá
Eflingu um frekari verkfallsaðgerðir
hjá bæði starfsfólki hótela og hóp
bifreiða, þar með talið vagnstjóra
Strætó. Atkvæðagreiðslunni lýkur
næsta laugardag. Aðeins þeir sem
verkföllin taka til hafa atkvæðis
rétt. – la
Niðurstöðu að
vænta á morgun
Halldór Benjamín Þorbergsson,
framkvæmdastjóri SA.
VIÐSKIPTI Vegna bágrar lausafjár
stöðu hefur WOW air neyðst til að
slá á frest mótframlagsgreiðslum
í lífeyris og séreignarsparnað
síðustu þrjá mánuði. Í svari frá
Svanhvíti Friðriksdóttur, upplýs
ingafulltrúa fyrirtækisins, segir að
gengið verði frá greiðslum í þessum
mánuði.
„WOW air hefur verið í góðum
samskiptum við lífeyris og séreign
arsjóði. Gengið verður frá greiðslum
í þessum mánuði. Starfsfólk hefur
verið upplýst um stöðuna,“ segir í
svari Svanhvítar. Þar er enn fremur
tekið fram að aðeins sé um tafir
að ræða hvað varðar mótframlag
vinnuveitanda. Ekki hafi orðið tafir
á greiðslu hvað hlut starfsmanna
varðar.
Um er að ræða greiðslur vegna
nóvember og desember síðasta árs
auk janúar þessa árs en þær eru allar
komnar fram yfir eindaga. Gjald
dagi vegna greiðslna febrúar er ekki
runninn upp. Ábyrgðarsjóður launa
ábyrgist ekki greiðslur vegna mót
framlags atvinnurekanda.
Staða WOW air hefur verið slæm
undanfarið og fyrir áramót greip
fyrirtækið til þess ráðs að segja
upp um 350 starfsmönnum í hag
ræðingarskyni. Um skeið leit út
fyrir að Icelandair myndi eignast
félagið en undanfarið hafa staðið
yfir samningaviðræður milli eig
enda þess og Indigo Partners um
kaup síðarnefnda aðilans á f lug
félaginu. Áætlað var að þeim myndi
ljúka í lok síðasta mánaðar en þann
28. febrúar barst tilkynning um
að sá frestur yrði framlengdur
til 29. mars. Þá skuldar WOW air
ISAVIA einnig háar fjárhæðir vegna
ýmissa gjalda. Í nýlegu svari sam
gönguráðherra við fyrirspurn segir
að viðskiptakröfur að fjárhæð 1,7
milljarðar króna hafi verið komnar
fram yfir gjalddaga árið 2017. Tölur
fyrir 2018 liggja ekki fyrir. Ekki
hefur verið gert opinbert hve stór
hluti þeirra krafna er til kominn
vegna WOW air. – jóe
WOW ekki greitt mótframlagsgreiðslur síðustu þriggja mánaða
Um er að ræða greiðslur
vegna nóvember og desem
ber síðasta árs auk janúar
þessa árs.
5 . M A R S 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð