Fréttablaðið - 05.03.2019, Side 18

Fréttablaðið - 05.03.2019, Side 18
Subaru Out- back er einn af vinsælum bílum Subaru í Kanada. Að mati bandaríska greining-ar- og ráðgjafarfyrirtækisins ALG er Subaru sá bílafram- leiðandi á kanadíska markaðnum sem höfðar mest til almennings þar í landi og er merkið nú hand- hafi verðlaunanna „Best Main- stream Brand in 2019“ fimmta árið í röð. Enginn bílaframleiðandi hefur hlotið þennan titil jafn oft í Kanada og Subaru. Fjórar gerðir Subaru eftir- sóttastar í sínum flokki Samkvæmt nýjustu könnun ALG er það jafnframt niðurstaða hennar að fjórar bílgerðir Subaru haldi best virði sínu hver í sínum Subaru höfðar mest til Kanadamanna 5. árið í röð Mikill fjöldi tryggra aðdá- enda Subaru í Kanada hefur breytt merkinu frá valkosti í það að vera það sem flestir leita að. f lokki. Það eru Impreza í f lokki minni bíla (Best compact), Out- back í f lokki meðalstórra fimm manna bíla (Best 2-Row Midsize Utility), WRX/WRX STI í f lokki sportbíla (Best Sports Car) og Crosstrek í f lokki sportjeppa (Best Subcompact Utility). Snjöll hugmyndafræði Eric Lyman, varaformaður ALG, segir mikinn fjölda tryggra aðdáenda Subaru í Kanada hafa breytt merkinu frá því að vera eitt af mörgum merkjum sem komi til greina við næstu bílakaup yfir í það að vera það sem flestir leiti að og um leið það öfundsverðasta frá sjónarhóli annarra framleiðenda. „Það sést á sölutölunum sem farið hafa stighækkandi ár frá ári þótt salan takmarkist enn við takmark- aða framboðsgetu frekar en önnun eftirspurnar. Það leiðir m.a. til hás endursöluverðs, takmarkaðrar þarfar til að auka framleiðslu- getuna og mikillar eftirspurnar markaðarins eftir notuðum Subaru-bílum,“ segir Lyman. Subaru handhafi Verðmæta- verðlauna ALG 2019 ALG veitir einnig árlega svokölluð Verðmætaverðlaun þar sem margir mismunandi þættir notaðra bíla eru skoðaðir. Þar á meðal er litið til sögulegs áreiðanleika bíla, þróun í leitni markaðarins eftir ákveðnum merkjum, hönnunar og gæða ásamt samkeppnishæfni og markaðsfærslu framleiðandans. Í janúar veitti ALG Subaru verð- mætaverðlaun sín fyrir 2019 á sviði almennrar fólksbílafram- leiðslu þar sem ALG metur Subaru besta almenna fólksbílafram- leiðandann á árinu á mörkuðum Norður-Ameríku. Þetta er sjöunda árið í röð sem Subaru er í 1. sæti í þeim flokki hjá ALG enda eru áreiðanleiki og öryggi helstu aðalsmerki Subaru og ástæða þess mikla dálætis sem Bandaríkja- og Kanadamenn hafa á Subaru. Honda hefur ekki gert sig mjög gildandi sem rafmagnsbíla-framleiðandi hingað til en ætlar að sýna þennan smávaxna Honda E Prototype á bílasýning- unni í Genf í mars. Hann er með hóflegt drægi af nútíma rafmagns- bílum að vera, eða 200 km. Honda ætlar héðan í frá að einbeita sér að framleiðslu rafmagnsbíla og áætlar að tveir þriðju af sölu Honda-bíla í Evrópu verði tengiltvinnbílar, raf- magnsbílar, vetnisbílar eða hybrid- bílar árið 2025. Þessi bíll sem Honda ætlar að sýna í Sviss virðist langt kominn í þróun því hann mun fara í framleiðslu á árinu. Honda kynnti árið 2017 Urban EV Concept til- raunabíl og er þessi E Prototype bíll framhald af honum. Hurðirnar opnast „öfugt“ Bíllinn er með hurðir sem opnast í öfuga átt miðað við flesta bíla, eða „suicide“-hurðir og hann er aftur- hjóladrifinn svo hann ætti að vera sportlegur í akstri. Bíllinn er svo smár að hann er 10 cm styttri en Honda Jazz bíllinn sem er einkar smár líka. Honda E Prototype í Genf Laglegur rafmagnsbíll Honda. Fortjald Sturta Gashella Fellanlegt borð Grind og hlíf Barnakoja SPORTÍS MÖRKIN 6 - 108 RVK - S: 520-1000 - SPORTIS. IS TILBOÐSVERÐ Á FYRSTU SENDINGU - VÆNTANLEG Í APRÍL Fullt verð kr. 2.816.560.- Forpöntunarverð kr. 2.485.000.- (Innifalið: Fortjald - Webasto hitari - fellanlegt borð - þakgrind) - Síðasti forpöntunardagur: 15. mars. CARETTA OFF ROAD*FYRIR ÚTIVISTINA! Notalegt svefnpláss fyrir tvo, gott geymslurými og eldunaraðstaða. Léttur vagn sem kemst alla slóða. *ATH! Utanvegaakstur er ólöglegur samkvæmt lögum. 5 . M A R S 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R4 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð BÍLAR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.