Fréttablaðið - 05.03.2019, Side 20

Fréttablaðið - 05.03.2019, Side 20
Snemma á þessu ári kynnti Lexus á Íslandi Lexus ES 300h bílinn en hann hefur aldrei áður fengist hérlendis, né heldur í Evrópu allri. Hann hefur nefnilega hingað til eingöngu verið á boð- stólum í Bandaríkjunum, Rúss- landi og í Asíu. Það var sannarlega kominn tími á að kynna þennan fágaða bíl fyrir kaupendum í Evr- ópu í samkeppninni við bíla eins og BMW 5, Audi A6 og Mercedes Benz E-Class sem eru svipaðrar stærðar. Ef til vill má segja að þessi bíll sé djarflegast teiknaður af þeim öllum. Hér er sannarlega kominn bíll fyrir augað, bíll sem stendur sker sig úr fjöldanum og er hugsanlega einn fegursti Lexus sem fá má nú um stundir að mati greinarritara. Eins og með flesta aðra Lexus bíla nú er ES með risastórt grill, en það bara gerir sig svo vel á þessum bíl og framendinn er afar f lottur. Það á þó reyndar við allan bílinn, fagrar línur og samsvörun leika um hann og þar sem hann virkar að auki svo langur verður hann tignarlegur á götu. Mikið hrós til hönnuða Lexus og þeir halda áfram að gera vel inni í bílnum. Þar er glæsileikinn alltumlykjandi og ber að auki mögnuðum hand- verksmönnum Lexus gott vitni. Eins og fyrri daginn virðist allt svo vel smíðað hjá þeim og það sannast yfirleitt í könnunum um áreiðanleika þar sem Lexus trónir svo til alltaf hæst. Þeir bara bila ekki og það færir kaupendum hugarró. Handverksmenn Lexus engum líkir Þegar sest er inn í Lexus ES 300h fer ekkert á milli mála að hér fer lúxusbíll, sætin er frábær og rafstillanleg, en þegar maður fer að fikta í tökkunum þá sést að þau eru ekki einungis hitanleg, heldur kælanleg líka. Það gefur Ljúfur gæðagripur KOSTIR OG GALLAR REYNSLUAKSTUR – LEXUS ES 300H l 2,5 LÍTRA BENSÍNVÉL OG RAFMÓTORAR l 218 HESTÖFL l FJÓRHJÓLADRIF Eyðsla frá: 4,4 l/100 km í bl. akstri Mengun: 103 g/km CO2 Hröðun: 8,9 sek. í 100 km hraða Hámarkshraði: 180 km/klst. Verð frá: 7.910.000 m.kr. Umboð: Lexus í Kauptúni l Útlit l Rými l Smíðagæði l Öryggi l Verð l Hávaði vélar í inngjöf l Ekkert vélaval Reynsluakstur Finnur Thorlacius finnurth@frettabladid.is Fagrar línur einkenna þennan sérdeilis vandaða grip. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Endalaus fágun er það sem kemur upp í hugann í akstri Lexus ES 300h. Þessi bíll hefur ekki áður fengist á Íslandi og er kær viðbót í lúxusbílaflokkinn. Hann er ör ugg asti bíll inn í flokki stærri fólks­ bíla og með 5 stjörnur hjá Euro NCAP. aðeins tóninn. Mælaborðið er líka sérdeilis huggulegt og efnisval og hönnun til fyrirmyndar. Ferlega flottur og stór 12,7 tommu að- gerða skjár er fyrir miðju þess og þar má finna gott leiðsögukerfi, Apple CarPlay, og stjórna raun- verulega flestu í bílnum. Bak við stýrið er svo óhefðbundinn mælir, en ekki hraða- og snúningsmælir, sem segir ökumanni strax að þarna fer hybrid-bíll sem ætlað er að fara sparlega með eldsneytið og það gerir hann sannarlega. Oftast fylgir þessu markmiði lítt skemmtilegur akstursbíll, en það á sko alls ekki við um hann þennan. En nánar að eyðslu bílsins. Hann er með uppgefna 4,4 lítra eyðslu, sem er náttúrulega með ólíkindum fyrir svo stóran lúxusbíl. Greinar- ritari sannfærðist þó um að það væri hægt því í köldum og snævi klæddum reynsluakstrinum reyndist hann oftast með innan við 6 lítra eyðslu við frísklegan akstur. Geri aðrir betur! Uppgefin mengun er svo aðeins 103 g CO2 og það eru góðar fréttir þegar kemur að verði, því fyrir vikið fellur hann í hagstæðan vörugjaldsflokk. Fágun umfram ofurafl Eina aflrásin sem er í boði í Lexus ES 300h samanstendur af 2,5 lítra bensínvél og tveimur rafmótorum sem saman skila 218 hestöflum til framhjólanna. Ekki mikill hestaflafjöldi, en hann er heldur ekki hugsaður sem spyrnukerra heldur bíll sem fer hrikalega vel með ökumann og farþega og skín af fágun og það skært. Bíllinn er þó langt í frá að vera neinn letingi því sprettinn í 100 tekur hann á 8,4 sekúndum. Aldrei finnst reyndar fyrir aflleysi á bílnum, en þeir sem kjósa spyrnukerrur ættu að leita annað. En að akstri Lexus ES300h: Til að vera nú sem beinskeytt- astur í orðum í samburðinum á þessum bíl og keppinautum hans þá er það svo að BMW 5, Audi A6 og Mercerdes Benz E-Class færa meira fjör í aksturinn, en þessi Lexus ES 300h rassskellir þá alla í fágun, lúxus, þægindum í akstri, lágri eyðslu og rekstrarkostnaði, svo ekki sé nú minnst á bilana- tíðni og endursöluverð. Glæný gerð fjöðrunar sem Lexus segir að enginn annar bjóði virkar frá- bærlega og fer, eins og áður segir, hrikalega vel með ökumann. Því er ef til vill ekki endilega hægt að mæla með F-Sport útgáfu ES með stífari fjöðrun og minni fágun. Aksturinn og upplifunin í þessum bíl er eitthvað svo ljúf og mér fannst ég stundum vera „chauffeur“ forsetans, enda ekur hann á Lexus. Eini ókosturinn við akstur bílsins er hávaði frá vélinni þegar henni er gefið vel inn, en það á við fleiri Lexus- og Toyota-bíla. Öruggasti bíllinn í flokki stærri fólksbíla Lex us ES er hlaðinn staðal búnaði. Þar má nefna árekstr ar viðvör unar - búnað, ak reinavara, árekstrar vara, sjálf virk an hraðastilli og um- ferðaskilta grein ingu, enda fékk hann ný lega 5 stjörn ur fyr ir ör yggi hjá Euro NCAP-rann sókn ar fyr ir- tæk inu og var út nefnd ur ör ugg asti bíll inn í flokki stærri fólks bíla og í flokki tvinn- og raf magns bíla. Mikið pláss er bæði í farþega- og far ang urs rýminu en Lex us ES hef ur besta fóta rými bíla í þess um flokki. Lex us ES er fá an leg ur í fjór um út færsl um, Com fort, Ex ecuti ve, F Sport og Lux ury og kost ar frá 7.910.000 kr. sem verður að teljast ágætasta verð fyrir svo tignarlegan bíl. Í Luxury-útfærslu er hann þó kominn upp í 10.060.000 kr. JEPPADEKK Mikið úrval af M/T dekkjum fyrir 16, 17, 18 og 20” felgur Icetrack ehf. Sími 773 4334 · mtdekk@mtdekk.is www.mtdekk.is 5 . M A R S 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R6 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð BÍLAR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.