Fréttablaðið - 05.03.2019, Síða 21
Audi Q4 jepplingur hefur verið á dagskrá hjá Audi í að minnsta kosti tvö ár og á að
koma á markað á þriðja fjórðungi
þessa árs. Audi ætlar hins vegar að
kynna nýja gerð hans á komandi
bílasýningu í Genf í byrjun næsta
mánaðar og þar fer hreinrækt-
aður rafmagnsbíll. Sú gerð hans á
að fara í sölu í lok næsta árs eða í
byrjun árs 2021. Bíllinn mun sitja
á MEB-rafmagnsbílaundirvagni
Volkswagen Group, en hann er
undir öllum rafmagnsbílagerðum
bílasamstæðunnar hvort sem þær
bera nafnið Volkswagen, Audi,
Skoda, Seat eða Porsche.
Ætla að vera á undan
samkeppninni
Með þessum bíl ætlar Audi
helst að vera á undan með raf-
magnsjeppling í samkeppni við
bíla eins og Volvo XC40 í raf-
magnsútfærslu, Tesla Model Y
og rafmagnsjepplinga frá BMW
og Benz. Audi ætlar ekki að láta
staðar numið með þessum raf-
magnaða Q4 því Q2 rafmagnsbíll
er einnig á leiðinni og er honum
helst ætlað að keppa á Kína-
markaði. Audi Q4 verður í boði
með þrjár stærðir af rafhlöðum,
þá minnstu 48 kWh með 320 km
drægi, en sú langdrægasta á að ná
500 km drægi.
Audi Q4 E-Tron í Genf
Audi Q4 verður í boði með þrjár stærðir af rafhlöðum, sú
minnsta verður með 320 km drægi og sú stærsta 500 km.
Aðeins einn mánuður er síðan Chevrolet kynnti Blazer-jeppa sinn, sem
gengur nú í endurnýjun lífdaga
eftir að hafa legið í láginni frá
árinu 1999. Þróun bílsins heldur
þó áfram hjá Chevrolet og nú er
komið að lengri gerð hans með
þrjár sætaraðir og verður hann
fyrst settur á markað í Kína,
en líklega í framhaldinu á aðra
markaði. Til stendur að markaðs-
setja lengri útgáfuna í byrjun
næsta árs í Kína. Hún fær stafina
XL í endann og stafirnir segja allt
sem segja þarf. Bíllinn er 14 cm
lengri en hefðbundin gerð Blazer
en undirvagn hans er sá sami og
hann má einnig finna undir
GMC Acadia og Cadillac XT5.
Bíllinn verður smíðaður í Kína
af samstarfsaðila GM þarlendis,
SAIC. General Motors, móður-
fyrirtæki Chevrolet, segir að þessi
bíll sé hentugur í sölu á þeim
mörkuðum þar sem Chevrolet
Traverse er ekki í sölu, en hann er
einnig með þrjár sætaraðir en er
enn þá stærri jeppi. Hefðbundinn
tveggja sætaraða Blazer kostar
aðeins 29.995 dollara í Banda-
ríkjunum, eða um 3,6 milljónir
króna. Í þeirri ódýrustu gerð
er hann með 193 hestaf la 2,5
lítra vél. Hann má einnig fá með
3,6 lítra og 305 hestaf la gerð og
kostar þá 43.895 dollara, eða 5,3
milljónir króna.
Chevrolet Blazer
með 3 sætaraðirAudi Q4 E-Tron sver sig ætt nýrra Audi-bíla og ekki verður sagt annað en að hann gleðji augað.
Lengri gerð Chevrolet Blazer verður aðeins framleidd fyrir Kínamarkað.
Lægra lántökugjald við
kaup á vistvænum bílum
Viðskiptavinir Landsbankans greiða ekkert lántökugjald
við fjármögnun rafbíla og fá 50% afslátt af lántökugjaldi
við fjármögnun bíla sem skil greindir eru sem vistvænir.
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
BÍLAR
B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 7Þ R I Ð J U D A G U R 5 . M A R S 2 0 1 9