Fréttablaðið - 05.03.2019, Qupperneq 24
Bílamerkið sem bjó til jeppann er sannarlega Jeep. Ekkert segir meira JEPPI en Jeep enda orðið frá merkinu komið. En
meira að segja Jeep hefur teygt sig
niður skalann í stærð og jeppa
getu til að þjóna endalausum
þörfum markaðarins fyrir bíla
með hárri setu án þess að þeir eigi
mikið erindi í vegleysur. Segja
má að Jeep Cherokee liggi ein
hvers staðar þar á milli, en f lestir
eigendur hans eiga meira erindi í
mollið en á torfærari vegslóða. Þó
má alveg treysta Jeep Cherokee í
smá átök, en rétt er þó að aðgreina
hann nokkuð frá stærri bróðurn
um Jeep Grand Cherokee sem er
með háu og lágu drifi, sem ekki er
í þessum venjulega Cherokee.
Þar fyrir ofan í getu er svo
Wrangler sem sniðinn er til átaka
við torfærurnar. Fyrir neðan
Cherokee eru svo Compass og
Renegade þar sem Jeep hefur
krækt sér í nýjan og stækkandi
kúnnahóp sem gerir ekki miklar
torfærukröfur en vill eiga Jeep og
sitja hátt. Reyndar er það svo að
Jeep hittir algjörlega í mark hvað
eftirspurn varðar á tímum jeppa
og jepplinga, ekki síst á heima
markaðnum í Bandaríkjunum þar
sem megnið af seldum bílum eru
af þeirri gerð að pallbílum með
töldum. Enda hefur salan verið
glimrandi á síðastliðnum árum,
þarlendis sem annars staðar.
Mýkri línur og
breyttur framendi
Núverandi fimmta kynslóð Jeep
Cherokee kom fram árið 2013, en
með 2019 árgerðinni gerði Jeep
umtalsverðar breytingar á bílnum í
útliti, innréttingu, tæknibúnaði og
bætti við í vélaúrvali. Nýtt útlit hans
hefur fært hann nær Grand Cher
okee og Compass og því er hann
ekki eins sjálfstæður í útliti og áður.
Mat greinarritara er þó svo að hann
er nú meira fyrir augað þó ekki sé
hann sláandi fallegur. Mörgum
fannst framendinn á forveranum
full reiðilegur og grófgerður og
hefur hann mýkst og grillopin sjö
minnkað.
Að innan er allt nokkuð smekk
legt en hann fær þó engin hönn
unarverðlaun eða klapp fyrir
efnisnotkun. Mjög jákvæð breyting
er fólgin í stórum bakka fyrir
framan gírskiptinguna sem rúmar
allra stærstu farsíma og USBtengi
rétt við. Bæði hiti og kæling í fram
sætum kemur líka skemmtilega á
óvart og risastórt geymsluhólf undir
armpúðanum í miðjunni, sem og
stór flöskuhólfin í hurðunum. Öll
sæti bílsins eru þægileg en fáir full
orðnir vildu vera sem fimmti farþegi
í miðju aftursætisins. Skottrýmið
mætti líka vera stærra og mætir þar
ekki samkeppninni með sína 570
lítra. Toyota RAV4 og Honda CRV
eru með meira skottrými. Einn stór
kostur í mælaborðinu er fólginn í
því hve snúningstakkar eru stórir,
sem alltaf ætti að vera í jeppum.
Fín vél en undarleg skipting
Hjá Ísband í Mosfellsbæ, söluaðila
Jeep, er Cherokee í boði aðeins
með einni vélargerð. Það er 2,2
lítra og 195 hestafla MultiJet dísil
vél. Þessi vél togar bílinn ágætlega
áfram en gerir hann ekki að neinni
rakettu. Vélin hefur í sjálfu sér
nægt afl og tog en þjáist mjög af
undarlegri 9 gíra sjálfskiptingunni
sem veit oft á tíðum ekki hvar
hún á að vera og hangir alltof oft á
snúningi þar sem fullt afl vélarinn
ar nýtist ekki. Oftar en ekki á of
háum snúningi. Það breytist því
miður ekki við það að skipta um
þær 4 akstursstillingar sem í boði
eru, en hann er þó snarpari í Sport
stillingunni. Hvort sem það var
skiptingunni að kenna eða öðru
var mjög erfitt að komast nálægt
uppgefnum eyðslutölum sem er 5,7
lítrar í blönduðum akstri, en tíðara
var að sjá um þrefalda þá tölu.
Kalt var þó í veðri í reynsluakstri
bílsins og snjór á götum.
Bíllinn fór vel með ökumann
í akstri en fyrir svo háfættan bíl
gætti eðlilega hliðarhalla er lagt
var á hann. Vel má ímynda sér að
Cherokee sé einkar þægilegur í
langakstri, en liprari samkeppnis
bíla má fá fyrir borgaraksturinn.
Verst er að geta ekki nýtt fullt afl
vélarinnar vegna einkennilegrar
skiptingarinnar, sérlega í fram
úrakstri eða almennt í grimmum
akstri. Ef aldrei er stigið almenni
lega á eldsneytisgjöfina finnst þó
síður fyrir þessum og því munu
margir aldrei finna þennan ókost.
Vel búinn en kostar sitt
Jeep Cherokee er hérlendis aðeins í
boði fjórhjóladrifinn af skiljanleg
um ástæðum, þó svo hann sé einn
ig framleiddur með framhjóladrifi
eingöngu. Því er ódýrasta útfærsla
hans ekki í boði en það væri 148
hestafla bensínbíll. Ísband býður
Cherokee í tveimur útfærslum,
Longitude Luxury á 7.990.000 kr.
og Limited á 9.580.000 kr. en þá er
bíllinn kominn með hátt og lágt
drif og fullt af aukabúnaði.
Í ódýrari útgáfunni fylgir þó
margt gúmmelaðið, svo sem áður
nefndar akstursstillingar og hiti og
kæling framsæta, en að auki mjög
gott hljóðkerfi, fjarstart, leðurinn
rétting, Apple & Androit Carplay,
rafdrifin framsæti, rafdrifin sner
tilaus opnun á afturhlera og svo
mætti lengi telja. Vel búinn bíll og
með talsvert meiri torfærugetu
en margur samkeppnisbíllinn.
Hann þjáist þó helst af undarlegri
skiptingunni og tiltölulega háu
verði.
Tímabær andlitslyfting
Fimmta kynslóð Jeep Cherokee er frá árinu 2013 og því kominn tími á andlitslyftingu hans.
Hann er hérlendis í boði einungis með 2,2 lítra 195 hestafla dísilvél og 9 gíra sjálfskiptingu.
KOSTIR OG GALLAR
JEEP CHEROKEE
l 2,2 LÍTRA DÍSILVÉL
l 195 HESTÖFL
l FJÓRHJÓLADRIF
l Eyðsla 5,7 l/ km í bl. akstri
l Mengun: 172 g/km CO2
l Hröðun: 8,8 sek. í 100 km hraða
l Hámarkshraði: 202 km/klst.
l Verð frá: 7.990.000 m.kr.
l Umboð: Ísband, Mosfellsbæ
l Torfærugeta
l Staðalbúnaður
l Sjálfskipting
l Eyðsla
l Verð
Jeep Cherokee er reffilegur á velli og til Íslands hafa margir slíkir bílar ratað í gegnum árin og virðast endast einkar vel. MYNDIR/SIGTRYGGUR ARI
2,2 lítra dísilvélin er 195 hestöfl og er hún tengd við 9 gíra sjálfskiptingu. Skottrými er 570 lítrar.
5 . M A R S 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R10 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
BÍLAR