Fréttablaðið - 05.03.2019, Side 26

Fréttablaðið - 05.03.2019, Side 26
Í tilefni þess að 10 ár eru liðin frá því að Audi kynnti V10 5,2 lítra FSI-vélina í R8 sportbílnum ætlar Audi að framleiða 222 sér- merkt eintök af þessum magnaða bíl í þessum svargráa lit. Til að tryggja sér eintak af bílnum þarf að punga út 222.000 evrum en venjulegur Audi R8 V10 Perform- ance kostar 200.000 evrur. Audi R8 V10 FSI er 620 hestöfl og aðeins 3,1 sekúndu í 100 km hraða og með hámarkshraðann 331 km/ klst. Þessi afmælisútgáfa verður með sama afli. Svartur litur verður einkennandi á þessari afmælis- útgáfu, bæði að utan og innan og meira að segja er Audi merkið að framan svart en ekki krómað. Svarti liturinn heldur áfram að innan en sætin eru stungin með bronslitum þræði. Tíu ára afmælisútgáfa Audi R8 V10  Árið 2015 kynnti Ferrari 488 GTB bíl sinn sem leysti 458 Italia bílinn af hólmi. Nú er tími hans á enda runninn því Ferr- ari mun kynna þann bíl sem leysir hann af hólmi, Ferrari F8 Trib uto, á bílasýningunni í Genf sem hefst eftir viku. Ferrari F8 Tributo fær 50 viðbótarhestöfl og verður 40 kg léttari en 488 GTB bíllinn. Það þýðir 720 öskrandi hestöfl og 770 Nm tog úr 3,9 lítra V8 vélinni með tveimur forþjöppum. Það dugar þessum nýja Ferrari til að taka sprettinn í 100 á 2,9 sekúndum og upp í 200 á 7,8 sekúndum, eða hálfri sekúndu skemur en 488 GTB. Hámarkshraði bílsins verður 340 km/klst. eða 10 km meiri en forverans. Ferrari fullyrðir að ekk- ert forþjöppuhik sé í bílnum. Ferrari F8 Tributo er aðeins 1.330 kg enda smíðaður úr léttum efnum þótt sterkur sé. Ferrari segir að nýi bíllinn kljúfi vindinn 10% betur en forverinn. Nokkrar breytingar eru einnig í innan- rými F8 Tributo og meðal annars fær hann nýtt stýri og 7 tommu snertiskjá í mælaborðið. Blaða- menn mun njóta þess að fá fyrstir að berja þennan bíl augum á pressudögunum tveimur sem eru á undan formlegri opnun bíla- sýningarinnar í Genf og hefjast blaðadagarnir 5. mars. Ferrari F8 Tributo leysir af 488 GTB með stæl Samstarfsaðili Ford í Kína er Changan og þar eru Ford-bílar fyrir Kínamarkað framleiddir. Nú heyrast þær raddir að Changan hafi hafið viðamiklar uppsagnir á starfsfólki sökum dræmrar sölu Ford-bíla í Kína undan farið. Þar starfa 20.000 manns en þeim mun fækka um nokkur þúsund á næstunni ef heimildir frá Kína reynast réttar. Ford hefur ekki staðfest þessar fréttir og verst reyndar frétta af vandræðum sínum í Kína, lang- stærsta bílamarkaði heims. Flestir stærri bílaframleiðendur heims hafa fjárfest fyrir milljarða á milljarða ofan í Kína en nú hefur aldeilis dregið fyrir sólu í bílasölu þar eystra. Svo slæmt er ástandið í þeim þremur verksmiðjum sem Ford rekur með Changan í Kína að framleiðslan mun fara þar fram á fimmtungi af mögulegri fram- leiðslugetu og það mun vart borga sig til frambúðar. Ford Changan segir upp þúsundum manna í Kína Úr verksmiðju Ford í Kína. Dökkleit afmælisútgáfa. Ferrari F8 Tributo er sannarlega rennilegur bíll. Bernhard - Honda á Íslandi • Vatnagörðum 24 • 104 Reykjavík • Sími 520 1100 • www.honda.is Umboðsaðilar: Bílver, Akranesi, sími 431 1985 • Höldur, Akureyri, sími 461 6020 • Bragginn, Vestmannaeyjum, sími 481 1535 RAFMAGNAÐIR AKSTURSEIGINLEIKAR 5 . M A R S 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R12 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð BÍLAR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.