Fréttablaðið - 19.10.2019, Qupperneq 39
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, segir að bank-inn hafi meðal annars látið til
sín taka í baráttunni við fátækt, í
fræðslumálum, í jafnréttismálum,
auk ýmissa verkefna sem tengjast
loftslagsmálum s.s. stuðnings
við Votlendissjóð til kolefnis-
jöfnunar og á frumkvöðlastiginu í
tengslum við nýsköpun hjá litlum
og meðalstórum fyrirtækjum og
háskólum. „Auk þess höfum við
verið aðalstuðningsaðili Reykja-
víkurmaraþonsins sem er stærsti
fjáröflunarviðburður ársins fyrir
mörg góðgerðarfélög sem eru að
leggja sitt af mörkum til heims-
markmiðanna,“ segir hún.
„Í vor samþykktum við nýja
stefnu fyrir bankann og þar eru
markviss samfélagsáhrif eitt af
lykilatriðunum sem styðja við
hlutverk bankans um að vera
„Hreyfiafl til góðra verka“ auk
þess að vera í takt við þrjú gildi
bankans: eldmóð, fagmennsku og
samvinnu. Áherslan er á að hafa
jákvæð og uppbyggileg samfélags-
áhrif með markvissum hætti og
samþætta þetta inn í grunnstefnu
bankans og verðmætasköpun.
Þannig styður þessi samfélags- og
sjálf bærnistefna við framtíðarsýn
bankans um að vera #1 í þjónustu.
Við ætlum enn fremur að styðja
sérstaklega við fjögur eftirfarandi
heimsmarkmið SÞ: Menntun fyrir
alla, Jafnrétti kynjanna, Nýsköpun
og uppbyggingu og Aðgerðir í
loftslagsmálum,“ upplýsir Birna
og bætir við að lögð hafi verið
áhersla á að skapa gott starfsum-
hverfi fyrir starfsfólk bankans
og Hjálparhöndin sé veigamikill
þáttur í því. „Þar styrkir bankinn
fólk, félagasamtök og fyrirtæki
sem stuðla að jákvæðri samfélags-
þróun,“ segir hún.
„Íslandsbanki býður starfs-
mönnum sínum að leggja sitt af
mörkum til góðgerðarmála og geta
starfsmenn þannig varið einum
vinnudegi á ári í þágu góðs mál-
efnis. Um er að ræða sjálf boða-
liðastörf fyrir góðgerðarfélög,
mannúðarsamtök, björgunar-
sveitir og ýmis önnur góð málefni.
Við höfum séð mörg frábær verk-
efni koma út úr þessu og starfs-
Ánægð með samstarfið
Íslandsbanki hefur veitt virkan stuðning til fjölmargra samfélagsverkefna sem tengjast
heimsmarkmiðunum. Meðal annars hefur bankinn átt gott samstarf við Rauða krossinn.
Íslandsbanki
hefur lagt sitt af
mörkum til að
efla hjálparstarf
Rauða krossins
á Íslandi. Birna
Einarsdóttir
bankastjóri
segir að lögð
sé áhersla á
stuðning við
ýmis málefni.
fólkið okkar hefur tekið að sér
mörg mikilvæg störf við skógrækt,
aðstoð við Mæðrastyrksnefnd og
fatasöfnun Rauða krossins svo
eitthvað sé nefnt. Okkar reynsla
er sú að starfsfólk í bankanum
sé ánægt með framtakið og við
teljum að þetta sé mikilvægur
hluti af því að gefa til baka til sam-
félagsins.“
Í hverju felst samstarf Íslands-
banka og Rauða krossins?
„Við erum mjög ánægð með
samstarfið við Rauða krossinn á
Íslandi undanfarin ár þar sem við
höfum lagt til fjármagn og starfs-
fólk bankans til þróunarvinnu
í Afríku. Kristján Rúnar Krist-
jánsson, forstöðumaður í áhættu-
stýringu, og Halldór Gíslason,
tölvunar- og viðskiptafræðingur
hjá Íslandsbanka, hafa verið sendi-
fulltrúar fyrir Rauða krossinn á
Íslandi síðan 2016. Halldór hefur
nú farið í átta ferðir síðan 2017 og
fór í ár til Gana þar sem gerð var
úttekt á samskipta- og upplýs-
ingatæknimálum Rauða krossins
í Gana, og svo ásamt samstarfs-
félaga sínum, Bjarna Sigurðssyni
verkefnastjóra, til Malaví. Þeir
gerðu þar úttekt á uppsetningu
samskiptakerfa sem var hluti af
þróunaráætlun sem Halldór vann
með Rauða krossinum í Malaví
árið 2017. Við höfum fundið fyrir
miklum áhuga á þessum verk-
efnum bæði innanhúss á meðal
starfsmanna en einnig á meðal
eigenda og viðskiptavina.
Við erum spennt fyrir fram-
haldinu með Rauða krossinum
á Íslandi og við erum einmitt að
skoða saman núna hvernig við
getum beitt kröftum okkar enn
frekar til að styðja við heimsmark-
miðin fjögur og við hlökkum til að
greina frekar frá því á næstunni,“
segir Birna.
Það er erfitt að horfast í augu við þá sorglegu staðreynd að eftir átök í 8 ár sjáum við enn
ekki fyrir endann á þeim. Þegar
svo virðist sem öldurnar sé farið að
lægja, gerist hið gagnstæða. Nýlega
hefur ástandið í norðausturhluta
Sýrlands versnað til muna og það
leggst þungt á íbúana sem hafa
mátt þola meira en nóg undanfarin
ár. Ástandið er gríðarlega flókið og
engin lausn virðist vera í sjónmáli.
Í dag er það metið svo að óeirðirnar
í norðurhluta Sýrlands muni neyða
um 300.000 manns á vergang á
næstu dögum og þurfa tæplega 12
milljónir íbúa landsins nauðsyn-
lega á hjálpar- og mannúðaraðstoð
að halda. Það eru fleiri en allir
íbúar Svíþjóðar.“
Kristín segir að stærsta verk-
efni Alþjóðaráðs Rauða krossins
(ICRC) í dag sé í Sýrlandi. „Innviðir
í Sýrlandi eru mjög veikburða, þar
á meðal heilbrigðisstofnanir, sem
sumar hverjar hafa hreinlega þurft
að loka vegna þess að starfsfólkið
er í lífshættu í starfi sínu. Fólk þarf
að reiða sig á aðstoð hjálparstofn-
ana eins og Rauða hálfmánans og
Alþjóðaráðsins. Um tvær milljónir
barna geta ekki sótt skóla og það
er líklegt til að draga dilk á eftir sér
hvað varðar framtíð landsins.“
Í dag er mest kapp lagt á að
hjálpa fólki í neyð og Rauði kross-
inn og Rauði hálfmáninn vinna
hörðum höndum að því að veita
vatns- og mataraðstoð. Ljóst er að
mikil vinna er enn fyrir höndum
og að fólki, sem neyðist til að flýja,
mun aðeins fjölga. „Vatnsskortur
í kringum borgina Hassakeh í
norðausturhluta landsins er mikið
áhyggjuefni í augnablikinu því
mikilvægar vatnsveitur hafa verið
eyðilagðar og um þessar mundir
streymir fólk til borgarinnar,
leitandi skjóls.“
Íslenskir sendifulltrúar
að störfum í Sýrlandi
„Margar hjálparstofnanir hafa
neyðst til að draga sig í hlé og yfir-
gefa svæðið vegna hættunnar sem
stafar af átökunum. Við í Rauða-
krosshreyfingunni höldum þó
enn áfram okkar starfi á svæðinu
og vettvangssjúkrahúsið við Al
Hol búðirnar, sem Alþjóðaráðið
og Rauði krossinn í Noregi reistu í
maí, er enn starfandi. Sjúkrahúsið
þjónustar yfir 70 þúsund manns úr
búðunum og þess má geta að tveir
þriðju þess flóttafólks sem hefst
við í búðunum eru börn. Á sjúkra-
húsinu hafa 5 sendifulltrúar frá
Rauða krossinum á Íslandi unnið
og sinnt fjölbreyttum störfum.“
Orri Gunnarsson sinnti störfum
tæknimanns í vatnshreinsimálum,
Jóhanna Elísabet Jónsdóttir og Lilja
Óskarsdóttir eru hjúkrunarfræð-
ingar, Hólmfríður Garðarsdóttir er
ljósmóðir og ráðgjafi í heilbrigðis-
málum. Þá sinnti Jón Eggert Víðis-
son fjármálastjórnun, en hann
kom heim í vikunni. „Við erum
í viðbragðsstöðu að senda fleiri
íslenska sendifulltrúa til starfa á
vettvangi í Sýrlandi og fylgjumst
með þróun mála.
Hlutleysi er ein 7 grundvallar-
hugsjóna Rauðakrosshreyfingar-
innar og veitir það okkur sér-
stöðu á átakasvæðum, þar sem
flóknar pólitískar deilur ríkja
oft. „Í Sýrlandi gegnir hreyfingin
margþættu hlutverki á svæðinu
í krafti hlutleysis síns og hafa fá
eða engin önnur hjálparsamtök
viðlíka aðgang að átakasvæðum
þar sem nauðsynlegt er að koma
lífsbjargandi mannúðaraðstoð á.
Hreyfingin brýnir einnig ávallt
fyrir deiluaðilum inntak Genfar-
samninganna, sem hafa þann
tilgang að vernda óbreytta borgara
og heilbrigðisstarfsfólk,“ segir
Kristín.
„Við gerum það sem við getum
héðan og með vinnu sendifulltrúa
okkar á vettvangi. Þörfin fyrir
aðstoð í formi fjármagns er alltaf
mest og sú þörf hverfur ekki, jafn-
vel þótt átökum linni því margra
ára uppbyggingarstarf tekur þá
við. Ég hvet alla sem vettlingi geta
valdið til að styðja við neyðar-
söfnun okkar vegna Sýrlands og
senda HJALP í númerið 1900 og
styðja okkur með 2.900. kr. Fyrir þá
upphæð getum við útvegað þremur
börnum mat í mánuð og fyrir 5.000
kr. er hægt að útvega fimm börnum
mat í mánuð og einu barni nauð-
synlega heilbrigðisþjónustu og lyf í
mánuð. Hver króna skiptir máli.“
Stríð í Sýrlandi í um átta ár
Kristín S. Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi.
Kristín S. Hjálm-
týsdóttir, fram-
kvæmdastjóri
Rauða krossins
á Íslandi, fer yfir
stöðuna í Sýr-
landi. Þar hafa
geisað vopnuð
átök í um 8 ár,
sem nýlega hafa
versnað. Þörfin
fyrir mannúðar-
aðstoð er gríðar-
lega mikil.
Ég hvet alla sem
vettlingi geta
valdið til að styðja við
neyðarsöfnun okkar
vegna Sýrlands og senda
HJALP í númerið 1900 og
styðja okkur með 2.900
krónum.
FRÉTTABLAÐ RAUÐA KROSSINS HJÁLPIN 3 L AU G A R DAG U R 1 9 . O K TÓ B E R 2 0 1 9