Fréttablaðið - 19.10.2019, Side 80
erfiðara en að taka þátt í keppninni
hér heima. Þau bjuggust við því að
af því að ég kom frá Íslandi væri ég
hvít. Ég er íslensk, þó að ég hafi ekki
hefðbundið íslenskt útlit. Ég elska
Filippseyjar en þau eru á eftir í þess-
um efnum. Ég stunda mikla hreyf-
ingu, fer út að hlaupa, hef hlaupið
Reykjavíkurmaraþon þrjú ár í röð
og lyfti lóðum. En skipuleggjendur
fegurðarsamkeppninnar báðu mig
að draga úr æfingum þar svo ég yrði
ekki of mössuð á lokakvöldinu. Ég
sagði bara nei! Enda bara gamaldags
vitleysa,“ segir Donna og hlær.
Erfitt að hætta í Vottum Jehóva
Fjölskylda Donnu er mjög trúuð.
Amma hennar og mamma eru í
Vottum Jehóva. Donna tók þátt í
starfinu til fimmtán ára aldurs og
gekk á milli húsa á laugardögum og
predikaði.
„Ég ólst upp sem Vottur Jehóva
og var virk í söfnuðinum frá því að
ég var sex ára til fimmtán ára. Það
var messa þrisvar í viku. Á laugar-
dögum gengum við á milli húsa og
predikuðum og aðalmessan var á
sunnudögum. Þegar ég varð fimm-
tán ára gömul fann ég að ég gat ekki
tekið þátt í þessu lengur. Það var svo
margt sem ég gat ekki verið sam-
mála af öllu hjarta. Ég ákvað því að
hætta og gat það af því ég var ekki
skírð inn í söfnuðinn. Amma varð
ekki ánægð og talaði ekki við mig í
marga mánuði. Það var ofsalega erf-
itt því við erum mjög nánar, reynd-
ar ólst ég mikið til upp hjá henni. Að
lokum tókst mér að ná til hennar. Ég
sagði við hana: Guð sér allt og veit
hvað er í hjarta mínu. Hann veit að
ég vil ekki vera hér. Hún tók þessum
rökum og skildi þau og við gátum
sem betur fer náð aftur saman.
Hún er mér mjög mikilvæg, er stolt
af mér og kom með kærastanum
mínum á frumsýninguna.“
Kærasti Donnu er Ari Steinn
Skarphéðinsson. „Við keyptum
okkur íbúð í Bryggjuhverfinu á
síðasta ári og líkar vel þar. Og við
fengum okkur kött. Ég þurfti svo-
lítið að sannfæra hann um að það
„Það var messa þrisvar í viku. Á laugardögum gengum við á milli húsa og predikuðum og aðalmessan var á sunnudögum,“ segir Donna um árin í Vottum Jehóva. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Fjölskyldan hefur búið hér frá því stuttu fyrir síðustu aldamót.
Donna og
systkini hennar
með foreldrum
sínum, Romeo
og Miriam.
Systkinin voru og eru mjög náín.
FÁUM SEM GLÍMA VIÐ
ALVARLEGT ÞUNGLYNDI
TEKST AÐ KLÁRA
MENNTASKÓLA OG ÞAÐ AÐ
GETA ÞAÐ EKKI EYKUR Á
VANDANN.
væri góð hugmynd því ég er með
ofnæmi,“ segir Donna og hlær.
Alvarlegt þunglyndi
Donna horfir björtum augum til
framtíðar og segir námið sem hún
stundar í frumgreinadeild Háskól-
ans í Reykjavík hafa haft góð áhrif á
sjálfsmyndina. „Ég hætti í mennta-
skóla þegar ég var um það bil átján
ára gömul. Ég var að glíma við svo
mikið þunglyndi að ég réð ekki
við námið. Í HR fæ ég stuðning og
sé fram á að geta klárað skólann.
Nokkuð sem ég trúði ekki áður að
ég gæti. Ég fór ekki að takast á við
þunglyndið að ráði fyrr en fyrir
fáeinum árum,“ segir hún.
Þunglyndið var alvarlegt. „Fáum
sem glíma við alvarlegt þunglyndi
tekst að klára menntaskóla og það
að geta það ekki eykur á vandann.
Þegar ég var sautján ára gerði ég til-
raun til sjálfsvígs. Mamma sendi
mig þá til Filippseyja, henni fannst
góð hugmynd að láta mig skipta um
umhverfi. Það var í raun alveg rétt
hjá henni. Ég var þar í þrjá mánuði
og hætti að hugsa um þetta smám
saman. Ég vann mikið. Svo þegar
ég kom aftur til Íslands kynntist ég
fyrrverandi kærastanum mínum og
varð upptekin af því. Það má segja
að þunglyndið hafi legið í dvala. En
það kemur alltaf aftur og í sumar
leitaði ég mér fyrst sálfræðihjálpar.
Það er mjög erfitt að byrja í skóla
eftir að hafa verið á vinnumarkaði
í sjö ár. En í skólanum eru allir á
sama stað, ég á til dæmis vinkonu
í bekknum sem er 20 árum eldri.
Og mér finnst svo dýrmætt að fá
að hitta fólk sem gefst ekki upp,“
segir Donna og segist hafa áttað sig
á mikilvægi þess að glíma við einn
dag í einu en hafa á sama tíma góða
trú á því að allt fari vel. „Ég veit að
það er engin töfralausn til, ég þarf
bara að reyna að lifa góðu lífi og
gera hluti sem ég veit að styrkja mig.
Hluti af því er að fara í skóla. Láta
drauma sína rætast eins og ég gerði
með því að leika í kvikmynd. Þetta
er krefjandi en hefur góð áhrif,“
segir Donna.
1 9 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R36 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð