Breiðholtsblaðið - jun. 2015, Síða 2
Í sumar mun verkefnið Samspil bjóða
upp á ókeypis íþróttaæfingar í Breiðholti.
Æft verður tvisvar í viku á skólalóð
Hólabrekkuskóla.
Æfingarnar eru ætlaðar börnum í þriðja
til áttunda bekk, en greinarnar sem í boði
verða eru körfubolti, frjálsar íþróttir, keila,
fótbolti og handbolti. Færir þjálfarar munu
hafa umsjón með æfingunum.
Ef veður verður slæmt á verkefnið
athvarf í íþróttahúsinu við Austurberg
3. Öll börn eru hjartanlega velkomin á
æfingu hjá SAMSPIL, hvort sem þau eru
vön að stunda íþróttir eða ekki. Æfingarnar
verða á mánudögum og miðvikudögum á
eftirfarandi tímum: kl. 15.00 til 16.15 fyrir
3. til 5. bekk og kl. 16.15 til 17.30 fyrir 6.
til 8. bekk. Fyrsta æfing sumarsins var
mánudaginn 15. júní, en æfingum lýkur
um mánaðamótin júlí / ágúst. Samspil er
unnið í samstarfi við ÍR og Þjónustumiðstöð
Breiðholts og styrkt af ÍTR.
Samspil í Breiðholti
... ókeypis íþróttaæfingar í sumar
2 Breiðholtsblaðið
Útgefandi: Borgarblöð ehf.
Eiðistorgi 13-15 • 170 Seltjarnarnes • Pósthólf 172
Rit stjóri: Þórður Ingimarsson • Sími 551 1519 • 893 5904
Netfang: thordingimars@gmail.com
Auglýsingasími: 511 1188 • 552 1953 • 895 8298
Heimasíða: borgarblod.is
Net fang: borgarblod@simnet.is
Framkvæmda- og aug lýs inga stjóri: Krist ján Jó hanns son
Um brot: Valur Kristjánsson
Prentun: Landsprent ehf.
Dreif ing: Landsprent ehf.
6. tbl. 22. árgangur
Breiðholtsblaðið er dreift frítt í öll hús í Breiðholti
JÚNÍ 2015
Nýverið lauk verkefninu Menntun núna í Breiðholti og má leiða
líkur að því að um þrjú þúsund manns hafi notið góðs af því.
Með því var náð til brotthvarfsnema og þeim fundin tækifæri til
náms, bæði í dag- og kvöldskóla. Fjöl brauta skólinn í Breiðholti og
Mímir símenntun. Hinn hlutinn byggðist einkum á samstarfi við
félög innflytjenda og þátt töku í fjöl menningarstarfi borgarinnar.
Með því er fólki auðvelduð aðlögun að því sem stundum er þeim
framandi umhverfi og dregið úr þeirri hættu að fólk sem flutt
hefur hingað til lands einangrist.
Heilsueflandi Breiðholt
Átak til heilsueflingar er að hefjast í Breiðholti. Dagur B.
Eggertsson borgarstjóri undirritaði á dögunum yfirlýsingu um að
Breiðholt muni hrinda af stað vinnu um heilsueflandi samfélag og
verða þar með leiðandi hverfi í borginni. Heilsueflandi Breiðholt
er þróunarverkefni sem hefur það markmið að stuðla að
heilbrigði og velferð í samfélaginu. Stefnt er að því að stofnanir
og félagasamtök taki þátt í átakinu þar sem markvisst er hlúð að
þroska og heilbrigði íbúa frá ýmsum hliðum.
Öflug menningarmiðstöð
Með sameiningu Menningarmiðstöðvarinnar Gerðubergs og
Borgarbókasafnsins varð til öflug menningarstofnun í Breiðholti.
Stofnun sem ekki mun einungis halda merkjum hinna fyrri á
lofti heldur og ekkert síður mótast af nýjum viðfangsefnum
á sviði menningar og lista. Fjölbreytni menningarlífsins mun
aukast og margbreytileikinn hafast við í því ágæta húsi sem
Gerðuberg er. Nú hefur verið opnaður bjartur og rúmgóður
kaffi- og veitingastaður í Gerðubergi með aðstöðu fyrir jafnt
einstaklinga sem hópa – nokkuð sem hefur skort í 20 þúsund
manna byggð til þessa.
Eddufellið í nýja lífdaga
Eddufellið er að vakna til lífsins eftir langa þrautagöngu. Með
Pólsku búðinni kom skemmtileg og persónuleg matvöruverslun
í byggð þar sem fólk af hinum ýmsu þjóðernum og
menningarkimum kýs að búa. Fab Lab tækniverið setur svip á
umhverfið og tilkoma Nýlistasafnsins í gamla Breiðholtsbakaríi er
nýjung sem fáa hefði dreymt um fyrir nokkrum árum.
Ungt fólk í félagsstarfið
Margvíslegt félagsstarf fer fram í Breiðholti. Þar starfar fjöldi
félaga auk þess sem Reykjavíkurborg stendur fyrir öflugu
félagsstarfi í Árskógum og í Gerðubergi. Nokkurs misskilnings
hefur gætt að þetta félagsstarf sé eingöngu ætlað heldri
borgurum. Fólki sem komið er að eða á starfslokaaldur. Eðli
málsins samkvæmt nýtir það fólk félagsstarfið meira enda oft
ekki bundið dagsins önn að öðru leyti. En félagsstarfið er fyrir
alla og dæmi um það má nefna að yngra fólk í fæðingarleyfi er
farið að nýta sér það og tekur þá gjarnan ungviðin með.
Litla félagið með stóra hjartað
Og ekki má gleyma velgengni Leiknis á nýbyrjuðu ári í
úrvalsdeildinni. Starf Leiknis hefur eflst að undanförnu bæði
hið innra og ekki síður á keppnisvellinum íbúum Breiðholts
og ekki síst Fella- og Hólahverfi til ánægju. Það er margt að
gerast í Breiðholtinu.
Um þrjú þúsund
í Menntun núna
Reykjavíkurborg mun taka
við húsnæðinu þar sem Strætó
er í Mjóddinni á næstunni. Með
því er ætlunin að skipuleggja
það fyr i r vers lunar - og
þjónustustarfsemi og færa meira
líf inn í Mjóddina. Strætó er
þó ekki að fara úr Mjóddinni
og mun stöðin þar áfram gegna
mikilvægu hlutverki innan
leiðakerfisins þar sem fara yfir
3.000 manns um daglega. Því
eru áhugavert tækifæri að finna
fyrir veitingarekstur sem fer vel
með hlutverki húsnæðisins sem
þjónustustöð Strætó.
Þegar er farið að líta eftir
rekstraraðila t i l samstarfs
við borgina. Nýr rekstraraðili
mun taka þátt í að skipuleggja
b r e y t i n g a r á h l u t v e r k i
húsnæðisins í samvinnu við
Reykjavíkurborg og núverandi
rekstraraðila í Mjódd. Hann velur
verslanir og veitingastaði til
samstarfs, aflar tilskilinna leyfa,
sér um kynningar- og markaðsmál
og annast allan daglegan rekstur
hússins, þar með talið rekstur
á salernum og öryggisvörslu.
Hér er um umtalsvert húsrými
að ræða eða alls 426 fermetra.
Pósturinn hefur starfsstöð í
Strætóhúsinu og hefur þegar sýnt
áhuga á þátttöku í viðræðum
um framtíð rýmisins með það
markmið að minnka starfsstöð
sína á svæðinu sem gæti stækkað
það svæði sem er til þróunar
um allt að 180 fermetra. Í úttekt
á húsnæðinu sem var unnin af
arkitektastofunni Stáss voru
eftirtalin atriði sérstaklega
talin mikilvæg við uppbyggingu
starfsemi í húsnæðinu. Að sterkur
rekstraraðili komi að verkefninu.
Opið verði á milli rekstrareininga
þannig að að sýnileiki og flæði
milli þeirrar starfsemi sem fer
fram auk þess að tryggja öryggi
notenda og farþega Strætó verði
tryggt með viðeigandi hætti.
Verslun og þjónusta
í Strætóhúsið í Mjódd
Séð yfir Mjóddina. Stætóhúsið er fremst á myndinni.