Breiðholtsblaðið - jún. 2015, Blaðsíða 4
Breiðholtsblaðið heimsótti Sólborgu Jónsdóttur á heimili hennar í Selja-hverfi. Sólborg er deild-
arstjóri í tungumála- og fjölmenn-
ingardeild hjá Mími-símenntun
en hún hefur tekið þátt í Mennt-
un núna verkefninu fyrir hönd
Mímis. Sólborg er uppalin á
Sunnuflöt í Garðabænum með
foreldrum sínum og tveimur eldri
systrum og fjölskyldan átti mikið
af dýrum en móðir hennar var
formaður dýraverndunarsam-
taka. Hún fór í Mennta skólann í
Hamrahlíð og þaðan í ítölsku og
sagnfræði. Áhuginn á ítölskun-
ni kviknaði í MH þar sem hún
hafði frábæran ítölskukennara
sem varð til þess að hún fór sem
skiptinemi í sagnfræði í eitt ár
til Bolognia á Norður Ítalíu og í
framhaldinu ákvaða hún að taka
ítölsku sem aukafag í háskólan-
um. Síðar fór hún til Víetnam sem
hafði áhrif á líf hennar.
“Ég á tvíburadætur þær Sunnu
Tam og Tinnu Mai sem eiga víet
namskan föður sem ég var gift.
Ég starfaði við íslenskukennslu
og gegnum hana kynntist ég víet
nömsk um hjónum sem eru mjög
góðir vinir mínir. Það varð til
þess að ég fór í ferð með þeim og
stórfjöl skyldunni til Víetnam sem
var alveg frábær upplifun. Ég var
alltaf með heima fólki og kynntist
landinu á annan hátt, svaf m.a.
uppí hjá ömmunni í húsinu og fór í
heimsóknir inn á ótal einkaheimili.
Í þessari ferð kynntist ég fyrrum
manni mínu. Við fórum síðan aftur
til Víetnam til að hitta fjölskyldu
hans og mér finnst mikilvægt að
dætur mínar rækti uppruna sinn
og tengsl við fjölskyldu sína í
Víetnam þar sem þær eiga mikið
af frændfólki og hálfsystkini. Eftir
þessa reynslu af Víetnam þá mæli
ég með því að fólk fari til landa
utan Evrópu til að kynnast annarri
menningu og veruleika auk þess
sem Víetnam er eitt öruggasta
landið sem þú getur ferðast til.”
Vann hjá Námsflokkunum
með menntaskóla
En hvernig kviknaði áhuginn á
fræðslu fullorðinna? Meðfram
menntaskólanum vann Sólborg
í Námsflokkum Reykjavíkur sem
þá voru staðsettir í Miðbæjar
skólanum við tjörnina þar sem
hún vann á skrifstofunni og við
ýmsa þjón ustu. “Þar kviknaði
áhuginn á fullorðinsfræðslu, mér
hafði alltaf gengið vel og liðið vel
í skóla og það var upplifun fyrir
mig að hitta allt þetta fullorðna
fólk sem hafði gert svo mikið í
lífinu en aldrei lokið skóla og fékk
þarna tækifæri til að taka upp
þráðinn og ljúka námi. Starfið
hjá Námsflokkunum þróaðist
og ég var farin að skipuleggja
námskeið og fyrsta kennslan sem
ég tók að mér um tvítugt var að
kenna íslensku fyrir útlendinga
þegar ég kenndi blönduðum hóp
byrjenda í íslensku.” Verk efnið
var vissulega áskorun en Sólborg
man eftir því að móðir hennar
sem var kennari sagði við hana
„Það er eitt öruggt og það er að
þú kannt meira í íslensku en þau“
en námskeiðið gekk ágætlega og
eflaust hafa skipulags hæfi leikarnir
og kennaragenin frá móðurinni átt
þátt í því. “Í gegnum árin hef ég,
ásamt Þorbjörgu Halldórsdóttur,
einnig samið mikið af námsefni í
íslensku sem öðru máli. Bæði
almennt efni og starfstengt efni til
að nota á íslenskunámskeiðum á
vinnustöðum.” Leiðin lá síðar til
Mímissímenntunar en í deildinni
sem Sólborg leiðir er boðið upp á
kennslu í fjöl mörgum tungumálum
auk íslenskukennslu sem annað
tungumál auk námskeiða fyrir
fatlaða ein staklinga hjá Fjölmennt.
Um fangið á starfseminni er mikið
en 99 íslenskunámskeið voru
kennd á síðasta ári hjá Mími
fyrir utan námskeið í öðrum
tungumálum. Mímir býður upp á
margskonar námsbrautir fyrir fólk
með stutta formlega skólagöngu
og námskeið fyrir innflytjend
ur bæði íslenskukennslu og
samfélagsfræðslu.
Landnemaskólinn
– íslenska og
samfélagsfræði
Landnemaskólinn er dæmi
um námsbraut þar sem blandað
er saman íslenskukennslu og
samfélags fræðslu auk þess
sem þar hefur verið fléttuð inn
starfsþjálfun m.a. í tengslum
við Menntun núna verkefnið,
fyrirtæki og stofnanir í Breiðholti.
Sólborg segir miklu skipta
fyrir fólk að fá þessa reynslu og
tengsl inn í atvinnulífið og læra
íslenskuna utan skólastofunnar.
“Það sem hefur nýst sérstaklega
vel í þessu verkefni er Íslensku
þorpið sem Guðlaug Stella Bryn
jólfsdóttir hefur verið að þróa
fyrst í Háskóla Íslands og hefur
nú verið yfirfært á Breiðholtið í
Menntun núna verkefninu þar sem
fyrirtæki og stofnanir í hverfinu
taka þátt í íslenskukennslunni
(www.islenskuthorpid.is). Hjá
Mími var þessi nálgun nýtt í
þróun á starfsþjálfun útlendinga
í leikskólum þar sem starfsfólk
fékk þ já l fun f rá Í s lensku
þorpinu um hvernig væri best
að vinna með íslenskukennslu í
starfsþjálfuninni,” segir Sólborg.
Of há námskeiðsgjöld
“Í Menntun núna verkefninu
upplifði maður að það er þörf
á því að fara með þjónustuna
til fólksins í hverf inu þar sem
fólk getur einnig fengið ráðgjöf
og jafnvel barnagæslu. Þar kom
skýrt fram að verð á námskeiðum
skiptir máli verkefnið niður
greiddi námskeiðin sem kosta
almennt um 40 þúsund krónur en
kostuðu 12.000 kr. Þrátt fyrir að
stéttarfélögin styrki námskeiðin
þá vita ekki allir hvernig á að snúa
sér varðandi þá styrki auk þess
sem styrkirnir duga ekki nema
fyrir einu til tveimur námskeiðum
á ári. Reynslan sýnir að fólk þarf
á samfelldri kennslu að halda til
að ná árangri í íslenskunáminu,
4 Breiðholtsblaðið JÚNÍ 2015
V i ð t a l i ð
Áhuginn á kennslu
fullorðinna kviknaði snemma
Sólborg með tvíburadætrunum þeim Sunnu Tam og Tinnu Mai.
… segir Sólborg Jónsdóttir deildarstjóri hjá Mími
LÁTTU ÞAÐ EFTIR ÞÉR, VERTU FRJÁLS, NJÓTTU LÍFSINS.
Sumar er Sangría
KOMDU Á TABASBARINN OG SMAKKAÐU Á SUMRINU
Glas 1.790 kr.
RESTAURANT- BAR
Vesturgötu 3B | 101 Reykjavík
Sími 551 2344 | www.tapas.is
Ísköld og svalandi Sangríameð ferskum ávöxtum, SOLAZ
rauðvíni, appelsínusafa og blöndu af sterku áfengi og líkjörum.