Breiðholtsblaðið - jun. 2015, Side 5
sérstaklega fullorðið fólk. Það
er svo margt sem hefur áhrif á
hvernig gengur, aldur, uppruni,
menntun, per sónu leiki, ertu
opinn eða félagslyndur o.s.frv.
Það skiptir máli að hafa tækifæri
til að æfa sig í tungumálinu t.d. í
vinnunni. Íslendingar virðast gera
ríkari kröfu um að innflytjendur
geti talað íslensku ef þeir koma
frá landi utan Evrópu en almennt
er viðurkennt að Evrópubúar geti
talað saman á ensku. Mótsögnin
í þessu er að fólk frá öðrum
heimsálfum á oftast erfiðara með
að læra íslenskuna auk þess sem
margir tala svokallað tónamál og/
eða eru ólæsir á latneskt letur.
Mímir bíður upp á íslensku og
lestrar nám skeið fyrir þessa hópa.
Samfélagsfræðsluna
vantar
En hvernig finnst þér íslenska
fjölmenningarsamfélagið vera
að þróast? “Það er frekar rólegt
yfirbragð á fjölmenningarsam
félaginu hér enn sem komið er,
maður veit af haturs orðræðu og
fordómum á netinu en það er
ekki mjög áberandi auk þess sem
ég hef valið að fylgjast ekki með
því. Ég hef kennt fólki frá um 80
löndum og það er ekkert endilega
mín reynsla að það sé betra að
skipta fólki eftir löndum, menntun
eða öðrum þáttum. Það sem
sárvantar er samfélags fræðsla,
þegar fólk kemur til landsins
þá er það týnt og veit ekki hvar
hægt er að fá upplýsingar þó t.d.
Fjölmenningar setrið á Ísafirði og
Mannréttindaskrifstofa Reykja
víkur geti veitt ýmsar upplýsin
gar. Í Noregi er samfélags fræðsla
skylda og það er sama hvar þú
býrð þú þarft að mæta á næstu
sí mennt unar miðstöð og fræðslan
fer fram annaðhvort maður á
mann eða í gegnum Skype á
tungumáli við komandi.”
Brúarsmíðin er frábær
hugmynd
Sólborg segir að í Menntun
núna verk efninu hafi verið unnið
með hugtakið Brúarsmiði sem
byggir á svipuð um grunni og
samfélags fræðslan í Noregi þ.e.
að þjálfa innflytjendur til að veita
samlöndum sínum og fólki sem
talar sama tungumál samfélags
fræðslu. “Brúarsmiðahugmyndin
er frábær og það er nauð synlegt
að hafa sterka einstaklinga inn í
mál hópunum sem geta aðstoðað
þá sem eru að koma til landsins.
Ísland er lítið land og tungumála
hóparnir eru fámennir en oft er
einmitt leitað til einstak linga innan
þeirra sem oft eru undir miklu
álagi en reyna að gera sitt besta.
Það væri mjög jákvætt ef þessir
aðilar fengju þjálfun og greiðslu
fyrir að veita móttökuráðgjöf
og fræðslu. Það skiptir máli að
innflytj endur læri um lýðræðis
samfélagið sem það býr í og
það er mikilvægt fyrir okkur að
fræða sérstaklega konur þannig
að þær átti sig á réttindum sínum
og hvernig gildi og reglur íslensks
samfélags kunna að rekast á
við hefðbundin gildi þeirrar
menningar sem þær koma frá eða
alast upp við.”
Sakna útlendinga í
fjölmiðlum
“Það þarf sérstaklega að huga
að unga fólkinu og menntun þess.
Ungt fólk af erlendum uppruna
verður að hafa tækifæri til að ljúka
framhaldsmenntun og bæði fram
haldsskólar og framhaldsfræðslan
(fyrir fullorðna) verður að aðlaga
námsleiðir sínar og kennsluaðferð
ir svo að allir hafi jafnan rétt og
möguleika til náms. Ég sakna þess
hversu lítið við sjáum útlendinga í
fjölmiðlum þannig að við heyrum
sjaldan viðtöl við fólk sem talar ekki
fullkomna íslensku en við höfum oft
takmarkað umburðarlyndi gagnvart
þeim sem ekki hafa fullkomið vald
á tungumál inu. Við förum oft að
tala ensku strax og við skiljum ekki
alveg hvað fólk er að segja í stað
þess að hlusta betur og spyrja, oft
þurfum við að tala öðruvísi við þá
sem eru byrjendur í tungu málinu, til
dæmis að tala í nefnifalli o.s.frv.
Hvað tekur svo við hér í Breiðholtinu
eftir að Menntun núna lýkur?
“Mímirsímenntun ætlar áfram
að bjóða upp á íslenskukennslu í
Gerðubergi og svo má geta þess að
við erum flutt í glæsilegt húsnæði á
Höfðabakka en það er tiltölulega einfalt
fyrir Breiðhyltinga að komast þangað
með leið 12 í strætó eða á hjóli.”
SGK.
5BreiðholtsblaðiðJÚNÍ 2015
Ungt fólk af erlendum uppruna verður að hafa tækifæri til að ljúka framhaldsmenntun, segir Sólborg.
Hólagarður 40 ára
Persónuleg
þjónusta.
Verslið í vinalegu
umhverfi!
Sportvörur • Leikföng • Ritföng
Boltinn í beinni
Gullnáman
Gjafavörur, snyrtivörur og fylgihlutir í úr vali
Krá • Sportbar
klipp-art
h á r g r e i ð s l u s t o f a n
Sjávarhöllin
Öflug verslunarmiðstöð í 40 ár!
www.tattoo.is
sim
i :7722171
tattoo@tattoo.is
reykjavik
A
rnarbakki 2
Opið 12:00-19:00 mánudaga til föstudaga