Breiðholtsblaðið - jun. 2015, Síða 6
Allt að eitt hundrað manns mættu á opnun
sýningar á verkum fólks sem tekur þátt í
félagsstarfinu í Gerðubergi 2. maí sl. Dagur B.
Eggertsson borgarstjóri opnaði sýninguna en að
þessu sinni var breytt nokkuð út af venju þar sem
sýningin var haldin í samstarfi við Borgarbókasafn
Gerðubergs. Allt efni sýningarinnar var unnið í
félagsstarfinu af þátttakendum þar og kenndi þar
margvíslegra muna – nýtjamuna sem listmuna.
Anna Kristín Bjarnadóttir umsjónarmaður
félagsstarfsins segir að þar starfi fjölbreyttir hand-
verkshópar og á vorsýningunni megi meðal annars sjá
bókband, bútasaum, glermuni, handavinnu, málun,
pappamódel, postulínsmálun, tálgun og útskurð. Við
opnun sýningarinnar tók harmoníkuleikarinn góðkunni
Þorvaldur Jónasson á móti gestum með harmoníkuleik
og Gerðubergskórinn söng vel valin lög. Sýningin
stendur í fjórar vikur og skipta sýnendur mörgum
tugum og eru verkin því einkar fjölbreytt. Anna Kristín
segir að félagsstarfið sé mikilvægur þáttur í daglegu
lífi fjölmargra borgarbúa en starfið er öllum opið óháð
aldri eða öðrum störfum. Margrét Valdimarsdóttir
verkefnisstjóri í Gerðubergi og sýningarstjóri segir
að vorsýningunni sé ætlað að gefa góða mynd af því
öfluga starfi sem fram fer í félagsstarfinu og hvetja
þannig enn fleiri til þátttöku. Síðasta sýningardag-
inn, sunnudaginn 31. maí var markaðsstemmning á
vorsýningunni.
6 Breiðholtsblaðið JÚNÍ 2015
Vorsýning í Gerðubergi
Eins og sjá má á myndunum kenndi margra muna á vorsýningunni.
... markaðsstemmning á lokadaginn
Hvað segir þú?
Kjörnir fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
verða til viðtals í göngugötunni í Mjódd
föstudaginn 19. júní milli kl. 16 – 18.
Kjartan Magnússon borgarfulltrúi,
Marta Guðjónsdóttir varaborgarfulltrúi og
Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður
svara spurningum og taka við ábendingum
um það sem betur má fara.
Sjálfstæðisfélagið í Bakka- og Stekkjahverfi.
Sjálfstæðisfélagið í Fella- og Hólahverfi.
Sjálfstæðisfélagið í Skóga- og Seljahverfi.
Guðlaugur Þór. Kjartan. Marta.
Mjódd - S. 557 5900
Síðar buxur,
kvartbuxur
stuttbuxur og pils
mikið úrval af
fallegum sumarbolum
Verið velkomnar
Athyglisverð myndlistar -
sýning verður opnuð í
Gerðubergi föstudaginn 26.
júní. Sýningin nefnist Sönn
ásjóna og er unnið af fólki
sem tekið hefur þátt í starfi
Hlutverkaseturs.
Hlutverkasetur er starfs-
endurhæfing þar sem lagt
er upp með að styrkja og
efla fólk til að komast aftur
út á vinnumarkaðinn. Ein af
leiðunum sem er farin er að
ýta undir listræna hæfileika
með markvissri hvatningu og
hér er afrakstur verkefnis af
þessu tagi. Myndlistarkennar-
arnir Anna Henriksdóttir og
Svafa Björg Einarsdóttir hafa
leitt vinnustofurnar síðastliðin
f imm ár. Þess á geta að
Hlutverkasetur fagnar 10 ára
afmæli og er sýningin því einnig
afmælissýning setursins.
S ý n i n g i n b y g g i s t á
andlitsmyndum en andlitsmynd
snýst frekar um að segja satt
en að búa til sögu. Listamenn
sem vinna andlitsmyndir þurfa
að kynna sér viðfangsefnið
náið til að ná sannleikanum á
mynd og stundum þarf til þess
margar tilraunir. Myndverkin á
sýningin eru bæði hefðbundin
málverk unnin með olíu en
einnig pastel-, vatnslita- og klip-
pimyndaverk. Sumar ásjónurnar
eru af gæludýrum, aðrar af fólki
og nokkrir sýnendur hafa gert
sjálfsmyndir. Sýningin stendur
til 28. ágúst og er opin virka
daga kl. 8 til 18.
Hér má sjá eitt verkanna sem verður á sýningunni. Unnið með
blandaðri tækni.
Sönn ásjóna
... sýning Hlutverkaseturs í
Gerðubergi
Augl‡singasími:
511 1188 & 895 8298