Breiðholtsblaðið - Jun 2015, Page 7
7BreiðholtsblaðiðJÚNÍ 2015
Um 40 ár eru liðin frá því
að athafnamaðurinn Gunnar
Snorrason kaupmaður lagði
allt undir, seldi rekstur sinn
og íbúðarhúsnæði til þess
að byggja upp verslunar -
og þjónustukjarna í byggð
sem var að rísa í Hólunum
í Efra Breiðholti – f jærst
eldri byggðum Reykjavíkur.
Verslunarmiðstöðin Hólagarður
við Lóuhóla reis innan um
grunna og hálfbyggð heimili
þar sem athafnamaðurinn
horfði til lengri framtíðar. Þetta
rúmaðist einnig vel innan marka
þess skipulagt sem Breiðholtið
var byggt eftir. Áhersla var
lögð á þjónustukjarna inni í
byggðinni þangað sem fólk gæti
sótt lífsnauðsynjar og einnig
aðra þjónustu í göngufæri frá
heimilum sínum.
Frá því Hólagarður var byggður
hefur margt gerst og sumt orðið
með öðrum hætti en hugarsmiðir
Breiðholtsbyggðanna hugðu.
Mik lar breyt ingar urðu á
verslunarháttum með tilkomu
stórmarkaðanna sem gjarnan
voru staðsettir utan íbúðahverfa
og aukin bílaeign fólks stuðlaði
einnig að þeirri þróun. Þetta
varð til þess að draga mátt úr
þeirri starfsemi sem komið hafði
verið fyrir inn í borgarhverfum í
því augnamiði að þjóna íbúum.
Lítið mál var að skreppa í bíl í
stórmarkaðina sem gátu oft boðið
lægra vöruverð en unnt var í
litlum hverfaverslunum. Saga
kaupmannsins á horninu hvarf
ekki inn í þessa kjarna heldur
stórmarkaðina sem voru í raun
og veru hluti af þróun sem átti sér
stað víða um heim.
Alltaf hafa komið nýir í
staðinn
Flestir þessir kjarnar áttu fljótt
erfitt uppdráttar í Breiðholtinu
sem annars staðar og ýmis
starfsemi fluttist burt eða henni
hvar hreinlega hætt. Eftir stóðu
auðar byggingar og jafnvel
var neglt fyrir glugga þótt aðrir
hafi þraukað í erfiðu umhverfi.
Nokkuð sem hverfishönnuðirnir
sáu ekki fyrir. Þrátt fyrir þetta er
saga Hólagarðs samfelld. Gunnar
seldi verslun sína og Hólagarð og
aðrir tóku við. Ljóst er að stærð
verslunarmiðstöðvarinnar og
að mikil áhersla var frá upphafi
lögð á fjölbreytta matvöruverslun
hefur verið driffjöðrin í því að
halda starfseminni áfram. Bragi
Björnsson verslunarmaður í
Leiksport er búinn að standa
vaktina í Hólagarði í 25 ár. Hann
segir að oft hafi verið á brattann
að sækja í rekstri í Hólagarði og
talsvert um að fyrirtæki hafi farið
eða hætt starfsemi. „En það hafa
alltaf komið önnur í staðinn. Sum
hafa aðeins staðið við í skamman
tíma en önnur lengur. Ætli mitt
fyrirtæki og hárgreiðslustofan eigi
ekki lengstan starfsaldur hér,“
segir Bragi.
Flest er fertugum fært
Bragi er e iginlega al inn
upp í Hólagarði. „Ég fór að
vinna hjá Gunnari Snorrasyni í
matvörubúðinni með skóla eftir
að hann opnaði. Ég var því búinn
að kynnast mörgum hér og þekkti
húsið ef svo má segja og var líka
kunnugur í hverfinu. Það var
svipuð verslun hér áður sem hét
Hólasport. Ég festi kaup á henni
og breytti nafninu í Leiksport
nokkru síðar. Ég aðlagaði
vöruúrvalið meira að þeirri
eftirspurn sem var og er. Ég fór
að leggja áherslu á íþróttavörur
og einnig á riftöng og skólavörur
en dró úr bókaversluninni. Ég
hafði og hef alltaf hafi góð tengsl
við íþróttafélögin í Breiðholtinu
og þau urðu til þess að ég fór að
leggja áherslu á að eiga til vörur
sem þarf til íþróttaþátttöku.
Þannig skynjaði ég umhverfið og
markaðinn og reyndi að bregðast
við eftir bestu getu.“ Bragi segir
þess misskilnings stundum hafa
gætt að stóra matvöruverslunin í
Hólagerði sem rekin hefur verið af
nokkrum aðilum í gegnum tíðina
og af Bónus undanfarin ár hafi
neikvæð áhrif á sérverslanirnar.
„ Þ e s s u e r ö f u g t f a r i ð .
Matvöruverslunin styrkir aðra
verslunar- og þjónustustarfsemi
í húsinu auk þess sem fjölbreytni
skapar ákveðið aðdráttarafl. Ég
veit satt að segja ekki hvernig
farið hefði ef matvöruverslunin
hefði ekki alltaf verið hér.“ Bragi
segir að viðskipti og velgengni
hafi farið nokkuð eftir tímabilum.
Frá 2008 og þangað til á síðasta
ári varð nokkurt líf í versluninni
hér eins og var í innlendri
verslun. Fólk var minna á ferðinni
og hélt sig meira í námunda
við kjarnanna í byggð þess.
Hægja fór á þessu 2013 og nú
er spurning um hvort verslunin
er að koma aftur tilbaka. Nú er
mikil umræða um breyttan lífsstíl.
Meiri hreyfingu og umferðamáta
á borð við hjólreiðar. Að fólk
geti nálgast verslun jafnvel
gangandi frá heimilum sínum
eins og hugmyndir voru um
þegar Breiðholtið var að byggjast.
Borgaryfirvöld hafa einnig
staðið fyrir umræðum um að
virkja þessa kjarna á nýjan leik
og stutt við viðleitni í þá átt. Við
sjáum það í Fellunum þar sem
ný starfsemi er að koma í gömlu
húsin. Við bindum vonir við að
þetta gerist víðar. Í Bökkunum
er gamall kjarni sem muna
hefur mátt fífil sinn fegurri. Þar
mun hugsanlega eitthvað gerast
og vonandi víðar. Í viðtali sem
Kiwanisblaðið Vífill átti við
Gunnar Snorrason framkvæmda-
og verslunarmann í jólaönninni
1986 sagðist hann aldrei hafa
þekkt minna en 12 tíma vinnudag.
Bragi tekur undir þessi ummæli.
„Já – Gunnar vann svona. Hann
hafði líka mikinn áhuga á því
sem hann var að gera. Hann vildi
horfa fram í tímann og þótt hann
hafi ef til vill ekki séð allt fyrir þá
var hann alltaf sannfærður um
framtíð Hólagarðs. Ég smitaðist
eiginlega af þessu og hef aldrei
talið mínar stundir eftir – hvorki
í þágu verslunarinnar eða
Hólagarðs sem heildar. En stóra
málið er að Hólagarður hefur
staðið allar breytingar af sér
þótt stundum hafi gefið á. Er
ekki stundum sagt að flest sé
fertugum fært.“
Hólagarður er 40 ára
Verslanir í Hólagarði hafa þjónað Breiðhyltingum í 40 ár.
Flest er fertugum fært:
Bragi Björnsson verslunarmaður
í Leiksport.
Ökufærni er lykilatriðið
þegar ungmenni hefja akstur.
Hvar fær ungmennið þitt kennslu?
Hluti námsins fer fram í fullkomnum ökuhermi
Áhersla lögð á færni nemenda og öryggi þeirra í umferðinni
Allt kennsluefni innifalið
Ökukennsla www.bilprof.is
Upplýsingar og innritun í síma 567 0300 • Opið 10-17 alla daga.
Hringdu
núna
og bóka
ðu
ökuskól
ann
ÖKUSKÓLINN Í MJÓDD
– yfir 40 ár í fagmennsku.
Þekking og reynsla í fyrrirúmi