Breiðholtsblaðið - jun 2015, Qupperneq 8
Nú eru grunnskólar landsins
að fara í frí og eru nemendur
tilbúnir eftir langan vetur að
njóta sumarsins. Þrátt fyrir það
er mikilvægt að viðhalda lestri
barnanna okkar yfir sumarið.
Sumarfrí þýðir ekki að við
hættum að læra. Rannsóknir
hafa sýnt að lestrarhæfni flestra
nemenda minnkar á sumrin
meðan þeir sem lesa reglulega
auka hæfni sína. Foreldrar geta
viðhaldið læsi og jafnvel aukið
það með mörgum skemmtile-
gum leiðum í sumarfríinu. Með
þeim má byggja upp orðaforða,
auka lesfærni og vekja upp
ómetanlegan áhuga á lestri
góðra bóka eða annars lesefnis.
Nemendur þurfa hvíld frá námi
og þess vegna er mikilvægt að
gera sumarlestur skemmtilegan
svo hann veki áhuga barnanna.
Hér koma nokkrar leiðir til að
gera sumarlestur að skemmti-
legum hluta af tilveru barna.
Lesið eða hlustið á hljóðbækur
með barni ykkar daglega. Lesið
saman eða leyfðu því að lesa
fyrir ykkur. Þið getið jafnvel lesið
til skiptis. Hægt er að lesa eða
fara í orðaleiki, úti, í bílnum, á
ferðalagi, á róló og á rölti um
götur bæjarins. Orðaleikir geta
t.d. falið í sér gátur, orðarím, finna
hljóð (stafi) í orði, klappa atkvæði
orðanna, þekkja stafi eða orð í
umhverfinu svo fátt eitt sé nefnt.
Hafið lesefni sýnilegt á
heimilinu
H a f i ð b æ k u r o g a n n a ð
áhugavert lesefni sýnilegt á
heimilinu. Verið góð fyrirmynd
og lesið sjálf. Kaupið bækur, blöð
eða hljóðsnældur eða fáið lánað
á næsta bókasafni. Ég minni á að
bókasöfn landsins eru ávallt opin
almenningi alla virka daga yfir
sumarið og er það víða sem útlán
eru börnum að kostnaðarlausu.
Leyfið barninu að velja hvað lesið
er og lesið saman, fyrir alla í fjöl-
skyldunni eða lesið jafnvel sömu
bók. Allt þetta getur vakið upp
skemmtilegar umræður ykkar á
milli. Talið um þau orð sem erfitt
er að lesa og veltið vöngum yfir
merkingu þeirra.
Leyfið börnunum að
senda póstkort
Á meðan þið sinnið daglegum
verkum er tilvalið að leika
orðaleiki. Við innkaupin má gera
innkaupalista og lesa á merkingar
í búðum, lesa bæklinga verslana
og velja hvað kaupa á. Á fer-
ðalögum er gaman að skoða og
lesa á götumerkingar, bæjarnöfn
og auglýsingaskilti. Kennið
börnunum að lesa vegakort því
þau geta verið góðir leiðsögu-
menn. Leyfið börnunum að senda
póstkort eða bréf til ættingja og
vina á ferðalögum sínum. Einnig
er gaman að skrifa dagbók
sumarsins, t.d. taka saman og
fjalla um þær bækur sem þið
lásuð. Ég hef nú aðeins bent á
fáeinar leiðir sem aukið geta færni
í lestri en mæli með að foreldrar
reyni allt það sem þeir telja að
komi að gagni og geti verið til
þess að börnin okkar komi enn
sterkari til leiks í haust. Með ósk
um gleðilegt lestrarsumar.
Dröfn Rafnsdóttir,
kennsluráðgjafi hjá
Þjónustumiðstöð
Breiðholts.
Skólaslit Fjölbrautaskólans
í Breiðholt i fór u fram í
Háskólabíói föstudaginn 22. maí.
Alls útskrifuðust 162 nemendur
og afhent voru 175 skírteini þar
sem nokkrir nemendur útskri-
fast af tveimur brautum. Þórunn
Sunneva Elfarsdóttir er dúx
skólans, en hún hlaut 9.17 í aða-
leinkunn, en hún lauk prófi frá
fata- og textílbraut skólans.
Þrjár stúlkur sópuðu að sér
flestum verðlaunum sem veitt
voru fyrir góðan námsárangur.
Auk þess að vera dúx skólans
fékk Þórunn Sunneva verðlaun
fyrir íslensku, bestan árangur á
fata- og textílbraut og að auki fékk
hún viðurkenningu frá Soropti-
mistaklúbbi Hóla og Fella. Sunna
Sól Sigurðardóttir fékk verðlaun
fyrir dönsku, ensku og myndlist
og Sara Líf Magnúsdóttir fékk
verðlaun fyrir myndlist auk þess
sem hún fékk íslenskuverðlaun
í formi peningastyrks úr styrk-
tarsjóðs Kristínar Arnalds. Þá
hlaut Leifur Daníel Sigurðarson
viðurkenningu frá Rotarýklúbbi
Breiðholts.
Verðlaun fyrir góða
árangur í íslensku
Aðrir sem hlutu verðlaun
og viðurkenningu voru m.a.
Gangadai Sahadeo sem verðlaun
fyrir góðan námsárangur í
íslensku sem annað mál og tveir
nemendur á starfsbraut skólans
fengu viðurkenningu fyrir mestar
framfrarir á námstímanum,
þeir Ingimundur Ágústsson og
Sigurður Bjarki Brjánsson. Fjöldi
fyrirtækja, félaga og stofnana
gáfu útskriftarnemendum gjafir,
s.s. Háskóli Íslands, Háskólinn í
Reykjavík, Samtök iðnaðarins,
Gámaþjónustan, Soroptimis-
taklúbbur Hóla og Fella, nokkur
sendiráð erlendra ríkja og
fleiri aðilar.
8 Breiðholtsblaðið JÚNÍ 2015
FB útskrifaði 162 nemendur
Verðlaunahafarnir Sunna Sól, Sara Líf og Leifur .
Lesum í sumar
Verðlaunahafar á sviðinu í Háskólabíói.
Þórunn Sunneva Elfarsdóttir dúx
skólans með 9,17 útskrifaðist
með stúdentspróf af fata- og
textílbraut FB.
Gangadai Sahadeo sem hlaut
verðlaun fyrir góðan árangur í
íslensku sem annað mál.
Myndir: Jóhannes Long.
Opið alla daga
frá kl. 11 til 23.
Lóuhólar 4,nálægt Dominospizza Sími: 557 1414
Dröfn Rafnsdóttir,
kennsluráðgjafi.
Önnumst alla þætti
þjónustunnar með virðingu
og umhyggju að leiðarljósi
Útfarar-
og lögfræði-
þjónusta
Vesturhlíð 2 - Fossvogi - Sími: 551 1266 - www.utfor.is
Við þjónum allan sólarhringinn
Hugrún Jónsdóttir
útfararstjóri
Rósa Kristjánsdóttir
útfararstjóri
Elín Sigrún Jónsdóttir
framkvæmdastjóri
Þorsteinn Elísson
útfararþjónusta
Snævar Jón Andrésson
útfararþjónusta
Ellert Ingason
útfararþjónusta
Katla Þorsteinsdóttir
lögfræðiþjónusta
Gestur Hreinsson
útfararþjónusta
Jón G. Bjarnason
útfararþjónusta
Guðmundur Baldvinsson
útfararþjónusta