Breiðholtsblaðið - jun. 2015, Síða 13
13BreiðholtsblaðiðJÚNÍ 2015
Nú er kominn sá tími ársins
þar sem ég læt mig dreyma
um ferð til heimalandsins og
er yfirleitt farin að telja niður
dagana í brottför. Þar er sumar
eins og paradís. Ég fæ að slappa
af í sólinni á hverjum degi þar
sem ég legg mikla vinnu við
tanið, fæ mér einn eða tvo kalda
IPA á bryggjunni eða í notalegri
bátsferð, leik við börnin mín
á ströndinni, slæ nokkrum
kúlum á golfvelli og já bara nýt
þess að vera til, annars staðar
en á klakanum. Nú í ár er allt
annað mál, ég hlakka eingöngu
til þess að vera hérna heima í
Breiðholtinu því að það er svo
mikið um að vera hér sem ég vil
alls ekki missa af.
S u m a r i ð h ó f s t f o r m l e g a
fimmtudaginn 23. apríl og ÍR stóð
fyrir fimm km Víðavangshlaupi. Ég
gat ekki annað en verið með þó
ég hafi ekki tekið þátt í götuhlaupi
síðan ég var 25 ára! Vitið þið
hvað, gamla stóð sig vel, kom í
mark sex mínútum á undan
markmiðinu sem ég setti mér, ég
get ekki hugsað mér betri leið
til að byrja sumarið. Þetta kom
auðvitað í lokin á spennandi viku
þar sem borgarstjórinn sjálfur,
Dagur B. Eggertsson, flutti til okkar
í Breiðholtið. Á meðan hann var
hér fékk ég þann heiður að fylgja
honum um hverfið og kynnast
þessari jákvæðu þróun hjá okkur
Breiðhyltingum. Ég var afar stolt
og ánægð að tilheyra þessu hverfi.
Hápunkturinn var þó þegar ég
fékk að skrifa undir yfirlýsingu um
verkefnið Heilsueflandi Breiðholt
ásamt Degi og Óskari Dýrmundi
Ólafssyni hverfisstjóra. Ímyndið
ykkur, við sem hverfi stefnum að
því að efla heilsu og vellíðan allra,
rétt þegar sumarið tekur við að
gleðja okkur og koma fólki út úr
húsi.
Leiknir í Pepsideildina
Það næsta sem við verðum að
ræða er að okkar lið Leiknir tók
sín fyrstu skref inn í Pepsideildina
þann 3. maí. Ég held að ég þurfi
ekki að lýsa ánægjunni sem
fylgdi því kvöldi. Það mun ylja
mitt hjarta um ókomna tíð. Ég
vil nýta tækifærið og hvetja alla
þá sem ekki hafa kynnst Stolti
Breiðholts til þess að mæta
á völlinn í sumar. Ég hef sjaldan
upplifað jafnmikla stemningu og
hamingju eins og ég er að upplifa
í kringum þessi frábæru félög.
Þegar ég mæti í félagsheimilið
eða á völlinn til þess að fylgjast
með æfingu hjá stráknum mínum
fer ég heim 10 sinnum glaðari
en ég þegar ég mætti því það er
svo mikið um að vera, svo mikil
jákvæðni og tilhlökkun. Í kringum
Leikni eru margir Breiðhyltingar
sem hafa lagt allt sitt í að efla
og styðja við uppbyggingu
félagsins og maður finnur fyrir
einhverskonar fjölskyldustemningu
og væntumþykju. Tveir mjög
á b e r a n d i f é l a g s m e n n e ð a
„Leiknisljón“ eins þeir eru kallaðir
innan félagsins eru Aron Fuego
Daníelsson og Orri Eiríksson. Þeir
fara ekki fram hjá manni því þeir
eru báðir lagahöfundar og Aron
er kórstjórinn í stúkunum. Þeir
eru þekktir sem „aðdráttarafl“
og það er augljóst að án þeirra
leiðsagnar væri stemningin sem
veitir Leiknismönnum innblástur á
vellinum ekki nægilega mikil. Aron
er ekki eingöngu aðdáandi, hann
er líka leikmaður liðsins sem er til
í að styðja við menn á hvaða hátt
sem er, eins og flestir sem koma að
félaginu. Þegar þið mætið á völlinn
í sumar líður ekki á löngu þar til
þið byrjið að syngja „Hvar er Binni
Hlö?“ með Aroni og Orra. Ég er nú
þegar byrjuð að æfa sönginn!
Breiðholts Festeval
Við höldum áfram að monta
okkur af „happening“ hverfinu
núna í sumar þegar við fögnum
„Breiðholts festival“ með Bedroom
Community plötuútgáfunni úr
Seljahverfi. Þið heyrðu það fyrst
hér hjá mér að við urðum að
taka laugardaginn 13. júní frá
því að Breiðholt var staðurinn
til þess að vera á. Festival var
menningarhát íð sem ger i r
listamönnum úr Breiðholti og
þeirri fjölbreyttu listsköpun sem
fram fer í hverfinu hátt undir höfði.
Hátíðin teygði sig yfir gróið svæði
í hjarta Seljahverfisins í námunda
við gamla bæinn Breiðholt sem
hverfið dregur nafn sitt af. Ég
vil bara aðeins gefa ykkur smá
smakk af því sem var í boði.
Nokkur tónlistaratriði sem ég má
til með að nefna eru til dæmis
Samaris, Ben Frost, Collider,
Valgeir Sigurðsson og Stelpur
Rokka. Það verður dansnámskeið
fyrir fjölskylduna á vegum DFM
danshópsins í Vogaseli, leikjastund
í Skúlptúragarðinum, Lúðrasveit
Breiðholts- og Árbæjar leikur við
Hólmasel, kvikmyndasýningar eftir
Áslaugu Einarsdóttir o.fl. Það er
ekki allt og sumt, það var markaður
í brekkunni við Hólmasel, myndlist
eftir Davíð Örn Halldórsson og Lóu
Hlín Hjálmtýsdóttur. Ég verð að
viðurkenna að ég var afar spennt
fyrir þessu því það hefur alltaf
verið smá draumur hjá mér að
tilheyra tónlistarheimi á einhvern
hátt. Ég held að Breiðholts Festival
sé eins nálægt og ég mun koma til
með að sjá hann rætast. Hver veit
nema þið sjáið mig í því hlutverki
að færa til hljóðfæri og kalla „test
test 1..2..test.“
Og matjurtagarðurinn í
Jaðarseli
Þá er að skoða öll þau frábæru
sumarnámskeið sem verða
í boði hér í hverfinu. Um er
að ræða námskeið á vegum
Frístundamiðstöðvar Miðbergs, ÍR,
Sundfélagsins Ægis, Skátafélaganna
Hafernir og Segull , Leiknis,
Dans Brynju Péturs og margt
fleira. Ég vil líka nefna að núna í
sumar vill Seljagarður Borgarbýli
skapa fagran samfélagsgerð í
matjurtagörðunum í Jaðarseli.
Garðurinn verður skapaður í anda
vistræktar með þekkingu og getu
samfélagsins. Verkefnin verða
margþætt og öllum velkomið að
taka þátt og njóta afrakstursins í
lok sumars. Fyrir þá sem hafa
áhuga þá er hér frábær hópur af
fólki að gera spennandi hluti.
Besta laugin í bænum
Síðast en alls ekki síst vil ég
endilega hvetja fólk til þess að
njóta allrar þessarar fegurðar
sem við búum við hér í Breiðholti.
Við erum svo heppin til dæmis
að „eiga“ Elliðaárdalinn þar sem
hægt er að skella sér í göngutúr við
ána. Við erum með svo mörg opin
svæði og leikvelli að það verður
nóg um að vera fyrir börnin okkar.
Svo er auðvitað það sem öllum hér
þykir vænt um, Breiðholtslaugin,
besta laugin í bænum hef ég
heyrt. Að lokum vil ég óska öllum
Breiðhyltingum gleðilegt sumar
og ég vonast til að sjá ykkur njóta
sumarsins hér í hverfinu eins og ég
mun gera! Ég er viss um að ég finn
leið hérna heima til þess að ná mér
í smá lit.
Margt spennandi að
gerast í Breiðholtinu
Vorið er að vakna í Breiðholtinu – og svo kemur sumarið.
Þessa fallegu mynd sendi Erla Hallgrímsdóttir út Breiðholtinu en
hún sýnir bekk sem komið hefur verið fyrir við Gljúfrasel 13. Hún
segir fólk nota bekkinn mikið til þess að tilla sér þegar það sé á
göngu um hverfið. Mikilvægt sé að bæta aðstöðu fyrir gangandi
fólk og hvetja það til útivistar og þá skaði ekki að bjóða upp á
aðstöðu sem þessa. Þarna sé tilvalið að hvíla sig á göngu, spjalla
saman eða bara að njóta veðurblíðunnar þegar sólin láti sjá sig.
... eftir Nichole Ligh Mosty
– við elskum dósir!
Söfnunarkassar í þínu hverfi eru m.a. við:
Arnarbakka • Austurberg • Seljaskóla
Gerðubergi 3–5
111 Reykjavík
Sími 411 6170
borgarbokasafn.is
FIMIR FINGUR
LJÓSIÐ
SÖNN ÁSJÓNA
VeRIÐ VeLkoMIN
í GeRÐUbeRG
kAFFI 111
oPNUNARTíMI í SUMAR
Systkinin Fanney, Óskar Henning
og Sigurður Valgarðsbörn sýna
fjölbreytta listmuni í Boganum.
Þar má nefna kríur unnar úr
þorskbeinum, laufabrauðsjárn,
silfurskartgripi, tréútskurð og
myndverk unnin í akrýl og vatnslit.
Sýning á fjölbreyttum myndverkum
unnum í Hlutverkasetrinu.
Hefðbundin málverk, pastel-,
vatnslita- og klippimyndaverk.
Sumar ásjónurnar eru af
gæludýrum, aðrar af fólki og
enn aðrar eru sjálfsmyndir.
Kaffihúsið í Gerðubergi hefur
verið opnað á ný eftir miklar
breytingar. Þar er boðið upp á
alvöru kaffihúsastemmingu með
kaffi, kökum, smáréttum og
öðrum léttum veitingum.
Einnig er kjarngóður og hollur
hádegismatur í boði.
Samsýning LITKU myndlistarfélags.
Þema sýningarinnar er ljósið.
Túlkun félagsmanna er marg-
breytileg enda viðfangsefnið
óþrjótandi uppspretta myndefnis.
Verkin eru unnin í olíu, akrýl og
vatnsliti.
bókasafn: mán.– fim. 10 –18 / föstud. 11 –18
kaffihús: 10 –17
Félagsstarf: 1. júní – 15. ágúst 9 –15.30
Sýningar: 8 –18
Lokað
um helgar
júní, júlí og
ágúst
Sýningaropnun 25. júní kl. 17
Sýningaropnun 26. júní kl. 16
www.breidholt.is